Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 103
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 103
Munur á konum og körlum
Höfundi verður í bókinni tíðrætt
um eðlislægan mun karla og
kvenna. Í samanburðinum
vísar hún ávallt í rannsóknir og
athuganir máli sínu til stuðn -
ings. M.a. segir hún frá skýrslu
sem unn in var hjá Hewlett -
Pack ard. Þar er greint frá
innan hússkönn un sem leiðir í
ljós að konur sækja aðeins um
laus störf upp fylli þær 100%
hæfnis krafna. Karlar hins vegar
sækja um störf þótt þeir uppfylli
ekki nema 60% hæfniskrafna.
Þessi munur á kynjunum hefur
gríðarlegar afleiðingar og er
eitt af því sem konur verða að
komast yfir eigi fullt jafnrétti
að nást. Í stað þess að líta á
hæfnis kröfurnar og hugsa „ég
get þetta ekki“ eða „ég hef
aldrei gert þetta“ verði þær að
hugsa „þetta langar mig að
gera – ég get lært það“.
það að verkum að þær virðist
ekki eins metnaðarfullar og karl
mennirnir og getur jafnvel aukið
líkur á að þær komi ekki aftur
til starfa eftir barneignir því þær
hafi ekki fengið nægilegar áskor
anir í starfi áður en þær fóru í
orlof. Sheryl tekur það sérstak
lega fram að hún sé alls ekki að
tala fyrir því að allar konur verði
að vinna að starfsframa, það sé
val hverrar og einnar, en þær
sem vilja vinna úti ættu að gæta
þess að sinna starfi sínu til fulls
jafnvel þótt þær séu að íhuga
barneignir.
Mentorar og makar
Ráð Sheryl eru fleiri. Hún fjallar
t.d. um mismunandi túlkun á
hegðun karl og kvenstjórn
enda. Það sem karlstjórnand
inn gerir er e.t.v. ásættanlegt
en ef kvenstjórnandinn gerir
það sama er það jafnvel litið
hornauga. Jafnframt fjallar hún
um ofuráherslu kvenna á að
finna sér mentor til að hjálpa
sér að komast áfram. Mentorar
eru að mati Sheryl nauðsynlegir
en konur taki þá nauðsyn oft
of alvarlega með því að ganga
manna á milli og biðja þá að
vera mentorar sínir. Mentorsam
band er samband sem krefst
mikils trausts og ekki hægt að
biðja aðila sem þú þekkir ekkert
að vera mentorinn þinn. Þessu
til viðbótar leggur Sheryl áherslu
á að á heimilinu ríki fullkomið
jafnrétti. Hjón séu fullkomnir
jafnokar þegar að heimilisstörf
um og umönnun barna kemur.
Aðeins með því móti eigi konan
nokkra möguleika á því að láta
að sér kveða.
Er langt í land?
Lean in er ákaflega athyglisverð
lesning fyrir konur og einnig
fyrir karla sem vilja heilshugar
styðja konur til áhrifa. Hinn
sterki undirtónn bókarinnar um
að konur verði sjálfar að breyta
ýmsu í sínu fari til að hægt verði
að ná meiri árangri í jafnréttis
baráttunni er það sem margar
konur þurfa að heyra. Þó eru
ekki allir sammála því og fleiri
atriði sem fjallað er um í bókinni
eru umdeild. Það breytir því
ekki að óhætt er að ráðleggja
öllum konum að lesa þessa
bók. Sérstaklega þeim sem eru
að drukkna í vinnu og þjást af
stöðugu samviskubiti yfir að
standa sig ekki 100% á öllum
vígstöðvum. Og þær eru ekki
svo fáar. Það væri forvitnilegt að
sjá hvað gerðist ef konur tækju
sig saman og gerðu það
sem Sheryl leggur til.
Það er nokkuð víst að
við næðum lengra í
jafnréttisbaráttunni.
Stelpur – látum
vaða!
„Tekin eru skemmti
leg dæmi um það í
bókinni hvernig karl
ar eiga auðveldara
með að trana sér
fram, efast síður um
eigið ágæti og eigna
eigin getu árangur
sinn.“
Sheryl Sandberg
Sheryl Sandberg er fram -
kvæmas tjóri Facebook og hefur
starfað þar síðan 2008. Áður
starfaði hún sem aðstoðar-
forstjóri Global Online Sales
and Opera tions og sem
starfsmannastjóri í fjármála -
ráðu neyti Bandaríkjanna. Hún
þykir ein valdamesta kona í
bandarísku viðskiptalífi í dag
og var valin í hóp 100 áhrifa-
mestu einstaklinga í heimi 2012
að mati Time-tímaritsins auk
þess að vera í hópi valdamestu
kvenna í heimi að mati tímarita
á borð við Fortune og Forbes.
Fáar konur í dag hafa eins mikla
reynslu og hún af störfum í
æðstu stöðum stærstu fyrir-
tækja Bandaríkjanna og hún
hefur óspart nýtt sér reynslu
sína til að hvetja konur sem
vilja láta að sér kveða til dáða.
Sheryl er stofnandi Lean In-
hreyfi ngarinnar sem hefur það
að markmiði að hvetja konur
um allan heim til áhrifa www.
leanin.org
Upp með hendur
Í bókinni er Sheryl óhrædd við
að deila eigin reynslu og þeim
lærdómi sem hún getur dregið af
mistökum sínum. Í einni þessara
dæmisagna segir hún frá erindi
sem hún hélt fyrir nokkur hundruð
Facebook-starfsmenn. Að erindinu
loknu kom upp að henni kona sem
sagðist hafa lært mikilvæga lexíu á
fyrirlestrinum. Það sem hún lærði
var að halda hendinni uppi. Sheryl
verður hissa og spyr hvað hún eigi
við og konan svarar: „Í lok fyrirlestr-
arins sagðist þú ætla að svara
tveimur spurningum til viðbótar.
Þú gerðir það og ég setti höndina
niður, það sama gerðu allar konurn-
ar í salnum. En nokkrir karlmenn í
salnum héldu höndunum uppi og
þar sem enn voru hendur á lofti
svaraðir þú nokkrum spurningum til
viðbótar – aðeins frá karlmönnum.“
Sheryl brá við að heyra þetta enda
hafði hún ekki áttað sig á þessu,
sem var ansi kaldhæðnislegt þar
sem efni erindisins var um mun
kynjanna. Það má draga mikinn
lærdóm af þessari stuttu sögu um
hegðunarmun kynjanna.
Nýtir sér stöðu sína
konum til heilla
Madeleine Albright á að hafa
sagt að til væri „sérstakur
stað ur í helvíti fyrir konur sem
ekki hjálpa öðrum konum“. Það
er deginum ljósara að Sheryl
Sandberg mun ekki enda á
þeim stað. Fram til ársins 2010
hafði hún haldið örfá erindi
um konur í viðskiptum fyrir
litla hópa „fyrir luktum dyr -
um“ eins og hún orðar það í
bók inni. Hún fær boð um að
tala um samfélagsmiðla á TED
Women -ráðstefnu það ár og
stingur í stað þess efnis upp á
viðfangsefninu hvers vegna svo
fáar konur eru í áhrifastöðum.
Margir réðu henni frá því að
halda erindið og héldu því fram
að í kjölfarið yrði hún stimpluð
sem kvenstjórnandi í stað þess
að halda ímynd sinni sem „alvöru“
stjórnandi. Hún lét varnaðar-
orð in sem vind um eyru þjóta
og erindið hefur hlotið fá dæma
áhorf og farið víða. Þessi
ákvörðun hennar hefur þó ekki
verið gagnrýnilaus en Sheryl
telur að sterk viðbrögð segi
henni það að umræða af þessu
tagi á opinberum vettvangi sé
gríðarlega mikilvæg til að þoka
jafnréttisbaráttunni fram á við
og styrkja konur í því að gera
meira.