Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 108
108 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
aNgELiNa JoLiE
Baráttukonan
angelina Jolie
TexTi: HilMar Karlsson
Angelina Jolie prýðir forsíður glanstímarita enda
löngum verið talin ein fegursta kona heims og
er auk þess meðal vinsælustu og hæst launuðu
kvikmyndastjarna. Mun meira er samt spunnið
í Jolie en það sem augað nær að fanga, hún
er einn virkasti sendiherra Sameinuðu þjóð-
anna á sviði flóttamanna- og mannúðarmála og
dugleg að ferðast til þróunarlanda til að vekja
athygli á ástandinu hjá flóttamönnum. Þá sýndi
hún mikinn kjark fyrir stuttu þegar hún steig
fram fyrir skjöldu og tilkynnti að hún hefði látið
fjarlægja bæði brjóst sín til að forðast krabba-
mein. Hafði hún í þeirri viðkvæmu umræðu
meiri áhrif á kynsystur sínar en tugir vísinda-
manna og svo má ekki gleyma að hún og eigin-
maður hennar, Brad Pitt, eiga sex börn sem
öll eru yngri en tólf ára.
að var í stuttri grein
í New York Times í
byrjun maí sem An
ge lina Jolie skrif aði
að óttinn við krabba mein hefði
fengið sig til að láta fjarlægja
bæði brjóst sín í for varnarskyni.
Móðir Angelinu lést vegna
brjóstakrabbameins og er leik
konan með sama genamengi,
eða BRCA1, sem eykur líkur á
brjóstakrabbameini til muna.
Hún vildi því minnka áhættuna.
„Móðir mín barðist við krabba
mein í tæp tíu ár og dó 56 ára.
Læknar mínir áætluðu að það
væru 87 prósent líkur á því að
ég fengi brjóstakrabbamein og
50 prósent líkur á að ég fengi
eggjastokkakrabbamein og ég
skrifa um þessa reynslu mína til
að miðla því til annarra kvenna
að þrátt fyrir að sú ákvörðun að
láta fjarlægja brjóstin hafi ekki
verið auðveld er ég afskaplega
hamingjusöm með hana. Hætt
an á því að ég fái brjóstakrabba
mein fór úr 87 prósentum í
fimm prósent.“ Aðgerðin, og
eftir meðferðin, tók þrjá mánuði
alls og lauk í apríl. Þess má svo
geta að móðursystir Jolie lést
úr krabbameini aðeins tveimur
vikum eftir að Jolie hafði skrifað
greinina, hún var 61 árs.
Með þessari einstöku játningu
í New York Times vildi Jolie
hvetja aðrar konur í sömu
stöðu til að leita upplýsinga og
úr ræða til að geta tekið eigin
ákvarðanir um næstu skref í
bar áttunni gegn brjóstakrabba
meini.
Stjórnlaust ungmenni
Angelina Jolie Voight fædd
ist 4. júní 1975 og er faðir
henn ar leikarinn Jon Voight.
Á farsælum leikferli hefur hún
unnið til þrennra Golden Globe
verðlauna, tvennra SAGverð
launa og einna óskars verðlauna.
Hún hóf leik ferilinn barn að aldri
en var uppreisnargjarn ungling
ur og send í ýmsa einkaskóla
þar sem hún samlagaðist
Þ
Angelina Jolie á efnahagsmála
þinginu í Davos 2005.