Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 123
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 123
HR
Straumlínustjórnun eykur
hraða í ferlum
Á meðal nýjunga hjá Opna háskólanum í HR er nýtt nám í aðferðum straumlínustjórnunar eða Lean
Management Program, aðferðir innan hennar hafa náð gríðarlegri útbreiðslu á síðustu tuttugu árum.
„Straumlínustjórnun er ætl að
að opna augu og huga þátt
tak enda fyrir tækifærum til
um bóta og framfara sem liggja
iðulega falin í viðskiptaferlum
fyrirtækja. Við höfum á undan
förnum misserum lagt aukna
áherslu á námskeið á sviði tækni
og verkfræði, en HR útskrifar
tvo þriðju þeirra sem ljúka
tæknimenntun á háskólastigi á
Íslandi,“ segir Salóme Guð
mundsdóttir, for stöðumaður
Opna háskólans í HR.
hvað hefur verið efst á baugi
innan opna háskólans í hR að
undanförnu?
„Við höfum unnið að því að
skerpa á áherslum í starfsemi
skólans og styrkja tengsl okkar
við atvinnulífið með marg
vís legum hætti. Við höfum
tekið á móti hátt í þrjú þúsund
þátt takendum á yfir hundrað
námskeið og vinnustofur það
sem af er ári. Þessa dagana
erum við í óðaönn að setja upp
haustdagskrána okkar sem
státar af margs konar áhuga
verðum nýjungum í bland
við önnur klassísk námskeið.
Náms framboð okkar byggist
á traustum akademískum
grunni og hagnýtri þekkingu
úr atvinnulífinu með fremstu
leiðbeinendum landsins í
bland við erlenda sérfræðinga.
Kennsluaðferðir eru í senn fjöl
breyttar og krefjandi og skapa
áhrifamikla og per sónu lega
nálgun hverju sinni.“
hvaða árangur ertu ánægðust
með innan fyrirtækis þíns að
undanförnu?
„Íslenskt atvinnulíf hefur
þróast mjög hratt á undan förn
um árum, tækn inni hefur fleygt
fram og áherslur breyst töluvert.
Því er mikilvægt að viðhalda og
bæta færni okkar og þekkingu
til að vera samkeppnishæf á
vinnumarkaði. Við hjá Opna há
skólanum í HR leggjum mikinn
metnað í að vera í takt við
þarfi r atvinnulífsins og bjóðum
upp á fræðslu og menntun á
lykilsviðum HR, sem eru tækni,
viðskipti og lög. Okkar helstu
viðskiptavinir eru annars vegar
sérfræðingar og stjórnendur
sem vilja bæta árangur í starfi
og efla persónulega færni og
hins vegar fyrirtæki og stofn anir
sem leita til okkar eftir heildar
lausnum á sviði fræðslu mála
með fjárfestingu í mann auði og
verðmætasköpun að leiðarljósi.
Með öflugu og samstiga
teymi og virkum tengslum við
atvinnu lífið hefur okkur tekist
að ná þeim markmiðum sem
við settum okkur. Við höfum
m.a. unnið að því að koma á fót
fagráðum sem eru samansett af
sérfræðingum úr akademískum
deild um HR, sérfræðingum úr
atvinnulífinu, fulltrúum fag
félaga og fyrrverandi nemend
um HR. Þessi umræðuvett vang
ur færir okkur sterkari tengsl við
atvinnulífið og þar með aukinn
skilning á helstu áskor unum
sérfræðinga og stjórn enda og því
sannarlega mikil vægur þáttur
í átt að því að auka hagvöxt og
sam keppnis hæfni þjóðarinnar.“
Kamilla Reynisdóttir, rekstrar
verkfræðingur og verkefnastjóri
hjá Opna háskólanum í HR,
og Pétur Arason, framleiðslu
þró unar stjóri Marel, leiða
nám í aðferðum straumlínu
stjórn unar. Að sögn Kamillu
er straumlínustjórnun saman
safn aðferða sem í sinni
ein földustu mynd snúast um
að skilgreina virði og virðis
skapandi aðgerðir innan
fyrir tækisins þar sem virði er
alltaf skilgreint frá sjónarhóli
viðskiptavinarins auk þess að
kortleggja og skilja hvernig
virði flæðir í gegnum fyrirtæki
í svokölluðum virðisstraumum.
Þessir virðisstraumar séu
venjulega þvert á hefðbundið
deildarskipulag.
„Það er mikilvægt að sjá
heildar myndina og að sjá
ferl ana í fyrirtækinu sem kerfi
sem hægt er að þróa og stýra.
Jafn framt er mjög til bóta að
koma á flæði þar sem flæði
verk efna, vöru og/eða þjónustu
er hámarkað með því að vinna
sem fæst verkefni í einu og
forgangsraða samkvæmt eftir
spurn viðskiptavina. Loks að
þróa starfsmenn fyrirtækisins
þannig að þeir séu í stakk
búnir að finna rót vandans
og leysa þau vandamál sem
komið geta upp. Á þennan
hátt er stöðugum umbótum
beitt til þess að þróa þekkingu
starfsfólks og ferli fyrir tæk i
sins,” segir Kamilla.
hverjir eru helstu kostir
straumlínustjórnunar fyrir
íslensk fyrirtæki?
„Það sem íslensk fyrirtæki
hafa einblínt hvað mest á er
að nýta sér sum af einfaldari
tólum leanaðferðanna til að
minnka sóun, bæta samskipti
og auka hraða í ferlum. Þetta er
m.a. gert með því að kortleggja
virðisstrauma, innleiða upp
lýsingatöflur og vinna með
5S, en þetta eru allt skilgreind
tól innan leanaðferðarinnar.
Helsti fjárhagslegi ávinningur
með því að vinna með lean
aðferðir er minni fjárbinding t.d.
í óþarfa aðföngum, tækjum og
búnaði og með auknum hraða í
ferlum fæst hraðara fjárstreymi
sem skilar sér í betri afkomu
fyrirtækjanna,“ segir Pétur.
texti maría ólafsdóttir / mynd: geir ólafsson
Pétur arason, kamilla Reynisdóttir og Salóme guðmundsdóttir
„Við höfum unnið
að því að skerpa
á áherslum í
starf semi Opna
háskólans í HR.“