Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 126
126 FRJÁLS VERSLUN 4. 2013
Arion banki
Styður við nýsköpun
Arion banki leggur mikla áherslu á ný sköpun og bendir Elísabet Grétars
dótt ir, markaðsstjóri bankans,
á að rannsóknir hafi sýnt að
nýsköpun stuðli að um 80% af
hagvexti í hagkerfum og auki
verðmætasköpun í þjóðfélögum.
„Nýsköpun er okkur hjartans
mál þar sem hlutverk bankans
er að vera milliliður um fjár
magn; við erum ekki með hug
myndirnar en við getum komið
að gagni við að ýta þeim í fram
kvæmd. Við erum rétt í þann
mund að ýta Startup Reykjavík
af stað aftur en það er við skipta
smiðja sem við stofn uðum í
sam vinnu við Klak Innovit.“
Í fyrra fjárfesti Arion banki í
tíu sprotafyrirtækjum í gegn
um verkefnið og hafa nú fimm
þeirra hlotið styrk frá Tækni þró
unarsjóði.
Arion banki hefur einnig hvatt
stærri fyrirtæki til að hugsa um
nýsköpun og nýlega var höf
undi Business Model Canvas
boð ið til landsins og hélt hann
fyrirlestur í Hörpu þar sem
þátt takendur voru yfir þúsund
talsins. „Nýsköpun hefur því
verið okkur hugleikin og er
part ur af okkar samfélagslegu
ábyrgð. Við höfum einnig
verið að styrkja okkar sjálf í
ný sköpun í gegnum vöru og
viðskiptaþróun. Fyrir tæpum
tveimur árum bauð Arion banki
fyrstur íslenskra banka upp á
óverðtryggð íbúðalán en við
erum líka að reyna að nálgast
hlutina frá öðrum sjónarhornum
og undir lok síðasta árs hófum
við að bjóða viðskiptavinum
okkar í fæðingarorlofi að
greiða lægri afborganir af
íbúðalánum.“
jafnmargar konur og karlar
Jafnmargar konur og karlar
eru í stjórn Arion banka og
eru bæði stjórnarformaður og
varaformaður stjórnar konur.
Elísabet segir að jafn launa
stefna sé hluti af jafnréttis
stefnu bankans. „Í fyrra var
fram kvæmd jafnlaunaúttekt
inn an bankans og verður farið
í aðra síðar á árinu. Við erum
komin vel á veg hvað þetta
varðar og getum verið ánægð
með árangurinn þótt við séum
vissulega meðvituð um það að
við getum gert enn betur.“
Sérstök stefna um stjórnarhætti
er innan bankans og hefur hann
birt stjórnarháttayfirlýsingu sem
byggist á lögum um fjármála
fyrirtæki og leiðbein ingum um
stjórnarhætti fyrirtækja.
Um mat á væntingunum í
atvinnulífinu segir Elísabet að
vorið hafi einkennst af mik
illi óvissu. „Ég myndi þó segja
að það væri ríkjandi nokk ur
bjartsýni og áhugavert verð ur
að sjá hvernig spilast úr skatta
málum fyrirtækja og hvernig og
hvort gjaldeyrishöftin þróast á
kjörtímabilinu.“
Elísabet grétarsdóttir, markaðsstjóri arion banka.
texti: Svava Jónsdóttir / mynd: geir ólafsson
Nafn: Elísabet grétarsdóttir
aldur: 33 ára
menntun: alþjóðamarkaðsfræði
frá tækni háskólanum og msc í
mark aðsfræði frá Stokkhólms há -
skóla
hjúskaparstaða: gift Jóni grétari
guðjónssyni hugbúnaðarverk-
fræð ingi
tómstundir: hef áhuga á staf -
rænni framtíð mannkynsins og
held fyrirlestra um það erl endis,
fylgist vel með í tölvuleikja heim -
inum og hef óseðjandi ævin -
týraþrá
Sumarfríið 2013: ævintýri innan-
lands
Stjórn fyrirtækisins: monica
Caneman stjórnarformaður,
guðrún Johnsen varaformaður,
agnar kofoed-hansen, Jón g.
briem, måns höglund og þóra
hallgrímsdóttir
Arion banki leggur aukna áherslu á nýsköpun og hefur jafnframt styrkt eigin
vöru- og viðskiptaþróun hvað hana varðar