Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 153
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 153
máli en með þessari tækni koma
upplýsingarnar til þín og þú
þarft ekki að leita að þeim. Þetta
hentar vel fyrir unga fólkið sem
finnst, má segja, orðið jafn hall
ærislegt að senda tölvupóst og
mér fannst telex á sínum tíma.
Einnig erum við að vinna með
flottum alþjóðlegum fyrir tækj
um með höfuðstöðvarnar hér
á Íslandi og höfum fengið til
okkar marga nýja viðskiptavini
undanfarið, viðurkennd fyrir
tæki bæði erlendis og innan
lands. Við erum afar stolt af
viðskipta vinahópi okkar og
erum komin með ótrú lega
stóran hóp viðskipta vina í
Core Data ECM, Core Data
Board Meetings og í CoreData
Virtu al DataRoom. Þá erum
við að fjölga verulega starfs
mönn um í vörslusetri okkar í
Reykja nesbæ. Þar hafa verið
mjög mörg skönnunarverkefni
í gangi, auk vörslu og frágangs
muna, listaverka, skjala o.fl.
Auk þess höfum við einbeittt
okkur enn meira að ráðgjöf í
upplýsingastjórnun, gæða og
verkefna stjórnun auk ferlagrein
inga.“
hvaða árangur ertu ánægðust
með innan fyrirtækis þíns að
undanförnu?
„Hvað við erum með frábæra
sérfræðinga í vinnu á öllum
sviðum og á sama tíma hvað við
höfum fengið frábærar móttökur
hjá viðskiptavinum okkar. Hjá
okkur starfa metnaðar fullir
starfs menn og sést það á ýmsum
sviðum en hópur frá okkur
vann t.d. „Hjólað í vinnuna“
og lögðu þeir mikinn metnað
í það verkefni. Þá er ég stolt af
hugbúnaðar sviðinu okkar sem
tók sig til um daginn og breytti
húsnæði sínu í samvinnu við
fjármálastjóra okkar og fleiri
aðila innan fyrirtækisins. Þetta
var allt unnið á kvöldin og um
helgar án þess að menn fengju
borgað aukalega fyrir það sem
sýnir þann frábæra anda sem
ríkir innan fyrir tæki sins. Þeir
fengu að inn rétta húsnæðið að
vild með diskókúlu, upphíf
ingarstöng, fimleika hringjum,
Star Warsmyndum á veggjum,
Playstationhorni o.s.frv. Með
nýju nafni vinnum við að því
að breyta útliti okkar og þegar
það verður formlega tekið upp
opnum við glæsilega heimasíðu
sem unnin er í samstarfi við
Hug smiðjuna.“
hvernig metur þú væntingarnar
í atvinnulífinu eftir kosningar?
„Ég finn fyrir aðeins meiri
bjartsýni og held að almennt
telji menn að þessi ríkisstjórn
muni styðja betur við atvinnu
lífið. Það var meðal annars
mjög erfitt fyrir okkur þegar
tryggingagjaldið var hækkað
um 50%, en nánast allur okkar
kostnaður liggur í launa
kostn aði. Velferð þjóðar okkar
byggist á öflugu atvinnulífi og
því er mikilvægt að stjórn
völd byggi upp umhverfi
svo fyrirtækin geti vaxið og
dafnað. Auk þess vonum
við að þeirri þróun, þar sem
stofnanir hafa verið að selja
þjónustu í samkeppni við
einkageirann, verði snúið við
með þessari ríkisstjórn. Það er
skammtímahugsun að leyfa
stofnunum að selja þjónustu í
samkeppni við einkageirann til
að fá aukatekjur. Enda getum
við einkafyrirtækin ekki keppt
við þau þar sem þau þurfa
ekki að taka inn í útreikninga
sína allan þann kostnað sem
við verðum að gera og eru
þetta því eingöngu aukatekjur
fyrir slíkar stofnanir. Það
eru jú fyrirtækin sem auka
alvöruhagvöxt í landinu og
mikilvægt að þau vaxi og nái í
framhaldinu að selja lausnir og
þjónustu til erlendra aðila.“
Hvernig er staðan í þínu
fyrirtæki varðandi lögin um
kynjahlutföll í stjórninni sem
taka gild 1. september nk.?
„Frá upphafi fyrirtækisins
hefur alltaf verið 40/60hlutfall
milli kynja, í aðra hvora áttina.
Við höfum því ætíð uppfyllt
kröfur um slíkt og auk þess
reynt að ráða til okkar fólk
með mismunandi reynslu.
Mér finnst t.d. mikilvægt að
hafa helst einn lögfræðing í
hverri stjórn, aðila með góða
tölvuþekkingu og einnig góðan
rekstraraðila.“
Er fyrirtæki þitt með sérstaka,
formlega jafnlaunastefnu?
„Við höfum ekki þurft á því að
halda innan okkar fyrirtækis
þar sem laun hjá okkur eru
sjálfkrafa jöfn og fólk fær greitt
miðað við þau störf sem það er
í en ekki eftir kyni. Mér þykir
dapurlegt ef slíkt er ekki sjálf sagt
í einhverjum fyrir tækjum.“
Nafn: brynja guðmundsdóttir
aldur: 46 skv. þjóðskrá en mér
finnst ég miklu yngri, svona 26 ára
menntun: Viðskiptafræðingur af
endurskoðunarsviði
hjúskaparstaða: Frjáls eins og
fuglinn
tómstundir: Fótbolti, golf, fjall-
göngur, hjól og eiginlega allar
íþróttir auk vina, fjölskyldu og
matarklúbba
Sumarfríið 2013: þar ber hæst
fjallgöngu í átta daga í Jötun -
heimum í Noregi með tveimur
frá bærum vinkonum.
Stjórn fyrirtækisins: Frímann
Elvar guðjónsson, helga Valfells,
Jón gunnsteinn hjálmarsson og
arna harðardóttir.
„Það er skammtímahugsun
að leyfa stofnunum að
selja þjónustu í samkeppni
við einkageirann til að fá
aukatekjur.“