Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 167
7. Christine Lagarde, forstjóri
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins:
Forbeslistinn er bandarískur. Það er ef til vill ástæða
þess að Christine Lagarde er ekki ofar á lista. Hún
er frönsk og hefur einkum orðið að fást við skulda
krepp una í Evrópu. Það er meira segja talað um að
hún verði í framboði til forseta í heimalandi sínu
næst. Áður var hún fjármálaráðherra þar.
Lagarde hefur mælt fyrir stofnun sjóðs til að jafna skuld
um ríkja Evrópusambandsins á herðar allra. Það hefur
hún mætt Angelu Merkel fastri fyrir enda ljóst að þýskar
herðar eru flestar og breiðastar í Evrópu. En þrátt fyrir
andstöðu eru áhrif Lagarde mikil og hún stýrir sterkustu
alþjóðlegu fjármálastofnuninni.
8. janet napolitana, öryggisráðherra
Bandaríkjanna:
Utan Bandaríkjanna er nafn hennar ekki þekkt. Janet
er engu að síður með áhrifamestu konum í banda
rískum stjórnmálum. Hún stýrir ráðuneyti sem varð
til eftir hryðjuverkin 11. september og er nú orðið
ígildi innanríkisráðuneyta annarra landa. Starfmenn
eru 240 þúsund og mögum þykir nóg um afskipti
ráðuneytisins af daglegu lífi fólks.
Janet hefur lagt áheslu á hlut kvenna í stjónmálum og
segir að framtíðarþróun stjórnsýlsunnar byggist á þáttöku
kvenna. Völd hennar og áhrif eru ótvíræð í bandarísku
þjóðlífi.
9. sonja gandhi, forseti þjóðþings
indlands:
nafn og staða gæti bent til inversks uppruna. Svo
er þó ekki. Edvige Antonia Albina Maino er frá Ítalíu
en var gift Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Indlands.
Þann ig fékk hún nafnið Sonja Gandhi.
Rajiv var myrtur árið 1991 og eftir það komu fram ein
dregnar kröfur um að ekkjan tæki við forystuhlutverki
NerhuGandhifjölskyldunnar. Hún neitaði í fyrstu en
hefur nú í 15 ár verið þingforseti og er orðin ein af stóru
konunum í indverskum stjórnmálum, næst á eftir Indiru
heitinni tengdamóður sinni.
Öryggismál eru af gefnu tilfefni áhyggjuefni þessarar
fjölskyldu. Núna boðar Sonja að skipt verði um öryggis
sveitir þeirrra Gandhia. Héðan í frá verða þær aðeins
skipaðar konum.
10. indira nooyi, forstjóri PepsiCo:
Indira nooyi er enginn nýliði meðal áhrifamestu kvenna
heims. Hún hefur verið á lista Forbs alla þessa öld
og í raun verið áhrifamesti stjórnandi PepsiCo enn
lengur og forstjóri frá 2006. Hún hefur endurskipulagt
framleiðsluna, selt og keypt dótturfyrirtæki og gert
PepsiCo að alþjóðlegum risa í framleiðslu drykkja og
léttmetis. núna er fullyrt að nýtt og enn betra sætuefni
sé í bruggun á rannsóknarstofu Pepsi. Það gætu
reynst slæm tíðindi fyrir keppinautinn Coca Cola.
Nooryi er indversk að uppruna, eðlis efna stærð og
við skiptafræðingur að mennt, og vann fyrst fyrir alþjóðleg
fyrirtæki þar heima áður en hún fór til Bandaríkjanna.
Frami hennar vestra þykir með eindæmum en hún hefur
líka tövfaldað hagnað fyrirtækisins á stjórnarárum sínum
og er að vonum vinsæl meðal hluthafanna.