Frjáls verslun - 01.04.2013, Page 177
FRJÁLS VERSLUN 4. 2013 177
glæsileg bulthaup-innrétting frá Eirvík. háfurinn er einnig frá Eirvík.
búddastytta sem var keypt í kína.
er tilbreyting,“ segir Yrsa sem vinnur sem
verkfræðingur fyrir utan ritstörfin. Hún er
búin að minnka þá vinnu niður í 7080%.
„Þetta gekk ekki upp vegna þess að ég
fer um tvisvar í mánuði til útlanda vegna
bókanna.“
Bækur Yrsu hafa verið gefnar út á 34
tungu málum og hafa selst í meira en milljón
ein tökum.
„Ekki, Pilla mín,“ segir Yrsa við tíkina sem
er eitthvað að óhlýðnast. Palli liggur enn
graf kyrr við fætur hennar.
SvOLÍtið SúrreALÍSkt
Hún segir frá bók sem hún er um það bil
hálfnuð með og á að koma út síðar á þessu
ári. Þetta eru þrjár sögur. Þrír þræðir sem
tengjast. „Fjölskyldur í tveimur löndum
skiptast á húsum með hörmulegum afleið
ingum, lögreglukona finnur gamlar skýrslur
í kjallara lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu
sem lýsa atburðum óþægilega líkum þeim
sem sviptu hana manninum sínum og
þriðja sagan tengist klettasúlu þar sem
Þrí drangaviti stendur en þar eru nokkrar
manneskjur að vinna að uppfærslu búnaðar
og lagfæringum á þyrlupalli sem neyðast
til að húka þar lengur en þeim er hollt
þegar ekki reynist unnt að sækja þau eins
og til stóð. Örlög þessa ólíka fólks tvinnast
saman fyrir tilstilli óhugnanlegs þráðar
haturs og hefndar og nokkuð víst að hluti
sögupersónanna á ekkert gott í vændum.“
Yrsa mun síðan skrifa bók í samstarfi við
Norðmann, sem hún má ekki gefa upp hver
er sem stendur, og mun sú bók fyrst koma út
í Noregi. Eftir það er von á Þórubók.
Glæpir, morð, heimurinn að handan … Það
er svolítið súrrealískt að þessi kona, sem situr
með Palla grafkyrran við fætur sér, skapi
þennan ófögnuð. En svona er þetta bara.
Nútímalegt og bjart heimilið passar ekki inn
í þessa mynd. Það er þó þessi hauskúpa með
hvítu framtönnina. Og lampinn sem virðist
svífa í lausu lofti …
Múmínálfurinn á bolla Yrsu liggur
ma kinda legur á postulíninu. Það er
kom inn tími til að kveðja. Hjónin kveðja
jafnhlýlega og þau höfðu heilsað. Tveir litlir
hundar elta húsmóðurina eins og skugginn
sjálfur. Kötturinn sést hvergi.
Það er ekki laust við að hauskúpan glotti
örlítið svo skín í hvíta framtönnina.
Leðursófi frá Rolf benz og málverk eftir arngunni ýri gylfadóttur.