Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Qupperneq 28
SIÐFRÆÐI FÓSTURGREININGAR
Heiniilislæknir. sérl'ræðingur,
baniadeild sjúkrahúss,
félagsráðgjafi.
Grciningar- og íáðgjafasluð
Rikisins.
Þjnnustiinætlun gerð.
Sveitarfélög.
skólar.
Svæðisskriístofa.
Sértæk
þjúnusla.
Altnenn
þjónusta.
Þjúnustu-
áætlun.
Grunur um þroskafravik.
Skilnftmdur þar scm niðurstöður
greiningar eru kynnlar ásamt
heildstæðum lillögum umþjóuustu.
1. Afangi: Frumgreining.
Starfsfólk almennrar heilbrigðisþjónuslu eöa
sérfræðingar og srnrfsfólk bamadeilda sjúkrahúsa
annast frumgreinmgu. Kfá.stæða er til sbr. 17 gr.
laga nr. 59/1992 þá er vísað til Greimngar- ug ráó-
gjafastöðvar til frekari greiningar.
2. Afangi: Frckari greining.
Greiningarstöð annast frekan greiningu og mcðferð
ef þurfa þykir og mat á þörf fyrir frekau þjónuslu.
Niðurstöðui greiningar og tillögur um þjónuslu cru
kynntar fynr væntanlegum þjónustuaðilum.
SvæðisskrirsLofa og aðrir þjónustu-, grciningar-
og ráðgjafaaðilar katma úrræði og gera áætlun um
framkvæmd þjónustu. Myndað er sérfræðingaleymi
sem fullirúi Svæðisskrifstofu verkstýrir.
[ Skammtimavist, ráðgjiif, T Almenn liðveisla,
stiióningsíjölskylda. leikskóli, skóli. J"
4. Afangi: Þjónusta veitt
Almcnn og sértæk þjónusta veitt skv. áætlun
Endurmat þjónustuáætlunar á reglulegum samTáösfundum teymis. ^5. Áfangi: Fndurmat.
Skýrlnj*ar
xanr’ uppiufwíiii
Endurmal þjónusmáætlunar er í höndum
tcymis með fulltrúum frá þjónustuveitendum,
ráðgjafaaöilum og aðstandendum.
Skipurit mcö stc.140
Höfuudur: Starfsmcnn skrifstofu
Samþykkur:
Mynd 1. Heildstæð þjón-
usta fyrir fötluð börn.
Úr Gæðahandbók Svæðis-
skrifstofu Reykjaness.
Ferli þjónustu
Á meðfylgjandi myndriti (mynd 1) kemur fram ferli
þjónustu við fötluð börn eins og Svæðisskrifstofa
Reykjaness kynnti það á árinu 1995 og hefur leitast við
að vinna eftir. Samkvæmt því skiptist þjónustan í fimm
áfanga, það er frumgreining, frekari greining, gerð
þjónustuáætlunar, veiting þjónustu og endurmat (2).
Sérstök þjónusta fyrir börn og unglinga með
fötlun
Frá bernskuárum stendur fötluðum börnum og for-
eldrum þeirra til boða fjölbreytt þjónusta á ýmsum
sviðum. Hér á eftir verður þessi þjónusta tilgreind en
nánari upplýsingar um hana er að finna í þeim ritum
og á þeim slóðum sem nefnd eru í heimildaskrá í
lokin.
- Umönnunargreiðslur og önnur aðstoð samkvœmt
lögum um almannatryggingar: Umönnunargreiðslum
er ællað að koma til móts við kostnað foreldra vegna
vinnutaps og sérstakra útgjalda vegna fötlunar.
Þessar greiðslur geta hafist þegar fæðingarorlofi lýk-
ur og staðið til 18 ára aldurs. Upphæð greiðslna er
mismunandi eftir umönnunarflokkum sem eru fjórir.
Starfandi svæðisskrifstofur taka við umsóknum og
meta þær en greiðslurnar koma frá Tryggingastofnun
ríkisins. Til Tryggingastofnunar ríkisins er einnig hægt
að sækja um kostnaðarþátttöku vegna þjálfunar
fatlaðra barna (tal-, iðju- og sjúkraþjálfunar). Einnig
kostnaðarþátttöku vegna hjálpartækja þar með talið
bleyja (3).
Skammtímavistun og stuðningsfjölskyldw: Til þess
að aðstoða fjölskyldur barna með fötlun.við að hafa
þau heima gefur Svæðisskrifstofa fólki kost á að
sækja um dvöl fyrir börnin í skammtímavistun eða hjá
stuðningsfjölskyldu samkvæmt reglugerð um þjón-
ustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra nr. 155/1995
(4). I báðum tilvikum er um að ræða samningsbundna
dvöl ákveðinn fjölda sólarhringa í mánuði. Sótt er um
þessa þjónustu til Svæðisskrifstofu og hver umsókn
metin með tilliti til fötlunar og félagslegra aðstæðna.
Skammtímavistun: Skammtímavistun er veitt á
sérstökum heimilum undir handleiðslu fagfólks. Til-
gangurinn er að bjóða börnum og ungmennum upp á
tímabundna dvöl til að létta álagi af fjölskyldum
þeirra og veita þeim sjálfum tilbreytingu. Pessi þjón-
usta stuðlar að því að börnin geti búið sem lengst í
foreldrahúsum. Jafnframt býr skammtímavistunin
ungmenni með fötlun undir flutning úr foreldrahús-
um á sambýli eða í aðra sjálfstæða búsetu (1). Tengi-
liður Svæðisskrifstofu annast umsóknir um skamm-
tímavistun og veitir foreldrum og aðstandendum
barna í skammtímavistum ráðgjöf og stuðning ef með
þarf (5).
Stuðningsfjölskyldur: Stuðningsfjölskyldan hefur
barnið í umsjón sinni allt að þremur sólahringum í
mánuði, samkvæmt samningi við aðstandendur. Hlut-
verk stuðningsfjölskyldu er að taka fatlað barn í umsjá
sína í skamman tíma í þeim tilgangi að létta álagi af
fjölskyldu þess (4). Slíkri umsjá fylgir ekki krafa um að
stuðningsfjölskylda láti í té sérstaka þjálfun eða
hæfingu umfram þá daglegu þjálfun sem felst í þeim
kröfum sem gerðar eru til uppeldis barnsins.
Ýmis ömittr þjónusta: Meðal annarrar þjónustu
sem fötluð börn eiga kost á samkvæmt lögum um
málefni fatlaðra er sumardvöl þegar þörf krefur, til að
skipta um umhverfi sér til ánægju og tilbreytingar. I
lögunum er einnig kveðið á um að sveitarfélög skuli
eftir föngum veita fötluðum, þar með talið fötluðum
börnum, liðveislu í formi persónulegs stuðnings og
aðstoðar til að njóta meðal annars tómstunda og fé-
lagslífs (1).
Annar stuðningur, foreldrasamstarf og fleira
Auk þess stuðnings sem samfélagið býður fötluðum
börnum og fjölskyldum þeirra upp á vegum ríkis,
sveitarfélaga og félagssamtaka geta foreldrar sótt
ómetanlegan stuðning til annarra foreldra í hags-
munasamtökum. Foreldrar barns með Downs heil-
kenni geta leitað til Félags áhugafólks um Downs-
heilkenni (6). Pað félag er eitt af mörgum aðildar-
félögum Landsamtakanna Þroskahjálpar.
28 Læknablaðið 2001/87/Fylgirit 42