Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Síða 39

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Síða 39
SIÐFRÆÐI FÓSTURGREININGAR Ákvarðanataka foreldra eftir greiningu fósturgalla Sigríður Haraldsdóttir Höfundur er hjúkrunarfræðingur og Ijósmóðir, starfandi ljósmóðir í Hreiðrinu kvennadeild Landspítala Hringbraut og á Heilsugæslustöð Hlíðasvæðis. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Sigríður Haraldsdóttir kvennadeild Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. Sími: 560 1000; netfang: sigridha@landspitali.is Lykilorð: fósturgreining, fósturgallar, fóstureyðing, erfðaráðgjöf Ágrip I þessari grein er fjallað um ákvarðanatöku foreldra eftir að barn þeirra hefur greinst með fósturgalla. Eiga þeir að binda endi á meðgöngu sem var þráð, eða eignast barn með fósturgalla; jafnvel barn sem á sér enga lífsvon? Áhersla er lögð á reynslu foreldra sem ákváðu að eignast barnið. Stuðst er við niður- stöður erlendra rannsókna, reynslu í starfi og reynslu þriggja íslenskra foreldra sem tóku þá ákvörðun að eignast barn sem greint hafði verið með alvarlegan fósturgalla. Meðal þeirra þátta sem hafa áhrif á ákvörðun verðandi foreldra barns með fósturgalla eru trúarskoðanir þeirra, siðferðisgildi, fyrri reynsla og það að „sjá“ fóstrið hreyfa sig á ómskjánum. Fjall- að verður um jákvæða og neikvæða reynslu foreldra af upplýsingum, stuðningi og viðbrögðum frá heil- brigðisstarfsfólki og mikilvægi þessara þátta í ákvarð- anatökunni. Upplýsingar, sem miðlað er af hrein- skilni og þekkingu, reynast foreldrum í þessum spor- um best, en einnig er miklvægt fyrir þá að fá sam- fellda þjónustu, virka hlustendur, stuðning, áfalla- hjálp og nægan tíma til ákvarðanatöku án þrýstings frá öðrum. Þegar ákvörðun foreldra liggur fyrir ber að virða hana sem þá réttu. Inngangur I starfi mínu sem ljósmóðir við meðgönguvernd hef ég kynnst foreldrum sem hafa mismunandi reynslu af skimunum á meðgöngu. Margir þeirra fundu fyrir ánægju og öryggi að fenginni niðurstöðu en aðrir for- eldrar stóðu frammi fyrir óvæntum aðstæðum og erfiðri ákvörðun. Eftir að hafa kynnst foreldrum í þeirri sáru og erfiðu lífsreynslu að verðandi bam þeirra greindist með fósturgalla og fundið þörf þeirra fyrir stuðning fór ég að kynna mér rannsóknir um reynslu foreldra við svipaðar aðstæður. Umræðan um samráðshyggju varðandi skimanir og fósturgrein- ingar og hið upplýsta samþykki í stað forræðishyggju vakti einnig áhuga minn. Tiltölulega fáar rannsóknir hafa verið birtar og engin íslensk rannsókn var til um reynslu foreldra sem tóku þá ákvörðun að eignast barnið eftir að alvarlegur fósturgalli hafði greinst. Það varð kveikjan að B. Sc. lokaverkefni mínu í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands vorið 2000'. Verkefnið byggðist á eigindlegri rannsóknaraðferð og fjallar um reynslu þriggja foreldra af greiningu barns með alvarlegan fósturgalla og ákvarðanatöku í kjölfar þess (1). Niðurstöður úr rannsókninni gætu nýst sem grunnur að frekari rannsóknum sem gæfu 1 Undir leiðsögn Ólafar Ástu Ólafsdóttur. ENGLISH SUMMARY Haraldsdóttir S Parents’ decision-making following a diagnosis of fetal anomaly Læknablaöiö 2001; 87/Fylgirit 42: 39-41 In this paper parents’ decision-making following a con- firmed diagnosis of serious fetal anomalies is discussed. Should they terminate a wanted pregnancy or carry the baby to term, despite serious anomalies? The author focuses on the experience of parents who subsequently decide to carry their child to term. Several foreign studies as well as one qualitative lcelandic study are reviewed and related to the author’s clinical experience. Religious beliefs, moral values, previous experience and “watching” the baby move on the ultrasound monitor are among the factors that have been shown to influence parents’ decision-making. Parents report both positive and negative experiences in relation to the information and support provided by health care workers, as well as the impact of personal reactions expressed by professionals. The importance of these factors for the decision of the parents will be discussed. Honest information given professionally is most important for parents, but it is also important to provide continuity of care, active listening, support and psychological debriefing. It is important to provide parents with enough time to make up their mind without any pressure or demands from others. Once the parents have made their decision, it should be respected as the right one. Key words: prenatal diagnosis, counselling, fetal anomaly, termination of pregnancy. Correspondance: Sigríöur Haraldsdóttir, B.Sc, midwife. E- mail: sigridha@landspitali.is vísbendingu um hvernig stuðning og ráðgjöf ber að veita fólki. í greininni fléttast frásagnir þeirra öðru fræðilegu efni á þessu sviði. Skimun - val - ákvörðun Mörgum konum er bent á að fara í ómskoðun bara til að sjá að allt sé í lagi en þeim er oft ekki sagt frá möguleikanum á að fósturgallar finnist, þrátt fyrir að ómskoðanir hafi á stuttum tíma öðlast mikið vægi við greiningu þeirra (2). Rannsóknarniðurstöður Press og Browners (3) benda til að konum séu ekki gefnar nægjanlegar upplýsingar til að taka upplýsta ákvörð- un um skimanir og að nauðsynlegt sé að tala skýrar um bæði áhættur og ábyrgð sem felast í því að bjóða og þiggja þær. Nauðsynlegt er að heilbrigðisstarfsfólk kynni ómskoðun (skimun) sem valkost og að foreldr- Læknablaðið 2001/87/Fylgirit 42 39

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.