Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Side 65

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2001, Side 65
SIÐFRÆÐI FÓSTURGREININGAR lagslega undir það að eiga „vanskapað" barn. Þegar um alvarlegan erfðasjúkdóm er að ræða getur fólk tekið upplýsta ákvörðun um fóstureyðingu. Allt þetta getur þó haft mikla angist í för með sér sem komast hefði mátt hjá eða fresta með því að fá ekki þessi vitneskju. Það blasir því við að þörf er á faglegri ráðgjöf sem auðveldar fólki að ákveða hvort það gengst undir ómskoöun, hvernig túlka eigi niðurstöð- ur skoðunar og meta hvort það þiggur boð um frekari rannsóknir. Auk þess að upplýsa konuna eða parið verður slík ráðgjöf öðru fremur að greiða fyrir því að fólk taki sjálfstæða ákvörðun sem það er sjálft sátt við. Rannsóknir hafa sýnt að konur sem ákveða að ganga með barn, sem greinst hefur með erfðagalla, mættu oft mótstöðu, vantrú eða skilningsleysi (10). Það er því ekki nóg að tryggja að ákvörðun kon- unnar eða parsins sé upplýst; hún verður líka að vera óþvinguð. Það getur verið erfitt fyrir fólk að hafna faglegum úrræðum sem standa til boða, ekki síst þegar sjálfsagt þykir að notfæra sér þau. Fólk fær á tilfinninguna að það sé „undir læknishendi" fremur en það sé venjulegir verðandi foreldrar. Það skapar þrýsting á parið að þiggja þau próf sem í boði eru sem vekur áhyggjur og kvíða en hlúir ekki að eftirvænt- ingu (11). Þetta ferli „sjúkdómsvæðir" meðgönguna, oftast að óþörfu því að sem betur fer eru erfðagallar sjaldgæfir. Konur eiga vitanlega þann rétt að hafna fósturgreiningu og ganga með barn án þess að lúta eftirliti af þessu tagi. En það er hægara sagt en gert. Öllu þessu ferli er þannig fyrir komið að það þykir sjálfsagt að ganga í gegnum það og mikið þrek getur þurft til að standa gegn straumnum. Leit að „fóstur- göllum" er orðin það viðtekin að það er orðið nánast ámælisvert að eignast barn með erfðagalla eða fötlun sem hægt er að greina á fósturskeiði (12). Slík börn eiga ekki lengur „að sleppa í gegn“ um skoðunar- eftirlitið. Fósturgreining virðist njóta almenns stuðn- ings almennings og stjórnvalda sem stefna að því að „ná“ sem allra flestum mannverum með erfðagalla þegar á fósturstigi. Með þessu móti er hin þungaða kona nútímans sett í afar tvibenta stöðu. Annars vegar er höfðað til hennar sem sjálfráða veru sem ber ábyrgð á ákvörð- unum sínum, hins vegar er hún ofurseld faglegu eftir- litsferli sem á að tryggja heilbrigði hins ófædda barns. Þetta er afar erfið staða og ein leið til að slaka á spennunni sem hún skapar er að líta svo á að kerfið sjái um þetta. Svona sé einfaldlega staðið að málum og einstaklingurinn hafi ósköp lítið með það að gera. Önnur leið er að líta svo á að hér sé um eins konar neytendaval (consumer choice) að ræða sem ekki baki fólki tilfinningalegt álag. Þótt orðræðan gefi vís- bendingar um þessa þróun, þá verður ekki horft framhjá því að einstaklingar taka erfiðar siðferðis- legar ákvarðanir í þessu ferli og það veldur mörgum kvíða og áhyggjum. Þótt markmiðið með skimun á meðgöngu virðist vera að stuðla að bættri heilsu þungaðra kvenna og barna þeirra, getur þetta snúist upp í andhverfu sína vegna þess álags sem konurnar verða fyrir 13). Sum þeirra prófa sem í boði eru fela líka í sér umtalsverða hættu á fósturláti, auk þess sem greining er ekki alltaf áreiðanleg. Þetta getur bæði skapað falska öryggis- tilfinningu, óþarfa angist og í versta falli leitt til þess að heilbrigðu fóstri sé eytt (14). Þessi atriði stríða augljóslega gegn kröfunni um virðingu fyrir velferð einstaklingsins. Þetta er raunar einn höfuðvandinn við reglubundna skimun frá siðferðislegu sjónarmiði. Fólki er boðið upp á sjúkdómaleit án þess að nokkur trygging sé fyrir því að niðurstöðurnar séu réttar eða yfirleitt að nokkur ávinningur verði af skoðuninni. Sigurður Kristinsson hefur bent á að þetta samrýmist illa heilbrigðisþjónustu sem á umfram allt að lúta reglunni um valda ekki skaða (primum rton nocere) (15). Varla er réttlætanlegt að bjóða slíka þjónustu nema sýnt sé að ávinningur sé meiri en áhætta fyrir hlutaðeigandi aðila. I ljósi þess ég hef sagt hér að framan, virðist mér að einkum þurfi að huga að tvennu varðandi grein- ingu erfðagalla á fósturstigi. Annars vegar að fram- boði á þessari þjónustu og hins vegar að þeim ákvörðunum sem fólk þarf að taka í ferlinu. Eins og ég vék að hér að framan, geta skimun og greining erfðagalla valdið fólki það miklum vanda, bæði með tilliti til sjálfræðis skjólstæðinga og velferðar þeirra, að heilbrigðisþjónustan ætti ekki að bjóða slíka þjón- ustu nema þeim pörum sem eru í umtalsverðri áhættu að eignast alvarlega fatlað barn. Frá siðferðis- legu sjónarmiði virðist mér það orka vægast sagt tví- mælis að bjóða upp á greiningu erfðagalla á fóstur- stigi sem sjálfsagðan hlut af meðgöngu. Þótt hug- myndin sé að efla sjálfræði fólks, þá er það dýru verði keypt og hneppir konuna jafnvel í viðjar ferlis sem hún hefði aldrei kosið að hefja ef hún hefði séð fram- vinduna fyrir. Það er erfitt að bæta úr þessu með auknum upplýsingum öðrum en þeim að útlista betur þá óvissuþætti og þá áhættu sem í ferlinu felast. En þá er spurning hvort ekki væru dregin fram í dagsljósið atriði sem orka mjög tvímælis að heilbrigðisþjónust- an geti boðið upp á vegna þess hve ávinningurinn er hæpinn. Svo er auðvitað hugsanlegt að menn gangist einfaldlega við því að eina skýra markmiðið með skimun sé að finna þau „gölluðu“ fóstur sem ástæða er til að eyða. En þá er líka mjög erfitt að halda þess- ari umræðu aðgreindri frá réttmæti fóstureyðinga. Það er því óhjákvæmilegt að spyrja hvenær upplýs- ingar fengnar með erfðarannsóknum réttlæti fóstur- eyðingu (16). Svar mitt við því miðar við svonefnda líknarreglu: Þegar erfðagallinn er svo alvarlegur að allt bendir til þess að lífið yrði viðkomandi einstak- lingi sjálfum böl og aðstandendum hans þungbær byrði. Það er ábyggilega ekki einfalt mál að komast að því hvenær þetta er tilfellið í raun, en það er mikilvægt að hafa þessa hugsun til viðmiðunar þegar fósturgalli Læknablaðíð 2001/87/Fylgirit 42 65 L

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.