Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Síða 30

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Síða 30
■ ÁGRIP ERINDA / XI. VlSINDARÁÐSTEFNA HÍ karldýra. Hormónið GnRH er 10 amínósýru langt peptíð, sem slýr- ir myndun gónadótrópína og hefur áhrif á kynhormónaferilinn og sáðfrumuframleiðslu. Mótefni gegn GnRH geta bælt virkni þess, en af GnRH bóluefnum þarf marga skammta og/eða sterka ónæmis- glæða til að fá jafnt svar. Hitalostsprótein (Hsp) hafa verið notuð sem burðarprótein í tilraunabóluefnum, þau eru sjálf öflugir ónæm- isvakar og vekja einnig ónæmissvar gegn tengdum ónæmisvökum. Efniviður og aðferðin GnRH með D-lysín í stað glycín stöðu 6 (GnRH-D6-Lys) var tengt Hsp70 með glútaraldehýði. Karlmýs (BALB/c) voru bólusettar í kvið með GnRH-Hsp70 í mildum ónæm- isglæðum (Ribi eða ICF), fyrst ókynþroska, það er þriggja vikna, og síðan endurbólusettar tveimur og fjórum vikum síðar. Mýsnar voru drepnar 12 vikna og GnRH-sértæk mótefni og testósterón mælt í sermi. Pær voru einnig krufnar og eistu og önnur æxlunarfæri skoðuð. Niðurstöður: Allar mýsnar mynduðu GnRH-sértæk mótefni, hvort sem þær voru bólusettar með ónæmisglæði eða án. Þrátt fyrir að testósterónmagn væri afar breytilegt innan hópa var munur á þrosk- unarstigi innri æxlunarfæra, svo sem urogenital complex, og höfðu bólusettar mýs vanþroskaðri líffæri (p<0,05) en óbólusettar mýs. Munur fannst einnig á vefjauppbyggingu eistnanna, en miðað við þær óbólusettu höfðu bólusettu mýsnar marktækt minna milli- frumuefni (p<0,05), sem er samsett úr Leydig frumum. Testósterón- háð genatjáning í eistum var einnig lægri í bólusettu músunum. Ályktanir: Niðurstöðurnar benda til að Hsp70 sé gott burðarpró- tein í bóluefni gegn GnRH og eru hvatning til frekari þróunar slíkra bóluefna. E 25 Prófun á ónæmisviðbrögðum íslenskra hrossa hér á landi og í Sviss við bitmýi (Simulium) og mýflugunni (Culicoides) sem veldur sumarexemi Sigurbjörg Þorsteinsdúttir1, Silvia Baselgia2, Vilhjálmur Svansson1, Freyja S. Eiríksdóttir1, Agnes Helga Martin1, Sigríður Björnsdóttir2, Eliane Marti2 ^Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, 2Háskólinn í Bern, ^embætti yfirdýra- læknis, Hólaskóla í Hjaltadal sibbath@rhi.hi.is Inngangur: Sumarexem er ofnæmi í hrossum gegn prótíni sem berst við bit mýflugna af ættkvíslinni Culicoides (biling midges). Of- næmið er vandamál í íslenskum hestum á erlendri grund en Culi- coides lifir ekki á íslandi, bitmýið hér er af ættkvíslinni Simulium (blackflies). Af hestum fæddum á íslandi sem útsettir eru fyrir Culi- coides fá 20-50% einstaklinga sumarexem en einungis 3-7% hesta af öðrum kynjum erlendis. Sumarexem er ofnæmi af gerð I með framleiðslu á IgE og losun á bólgumiðlum, svo sem histamíni og leukótrínum. Notað var sulfídóleukótrína (sLT) losunarpróf til að prófa ofnæmisviðbrögð. Hestar með sumarexem svara í sLT losun- arprófi bæði þegar þeir eru með einkenni á sumrin og líka ein- kennalausir á veturna. Margir hestar sem svara á Culicoides svara líka á Simulium. Verið gæti að einhver hross hafi þegar þróað of- næmisviðbrögð gegn Simulium hér á landi áður en þau eru flutt út án þess að sýna sumarexemseinkenni. Efniviður og aðferðir: Tekið var blóð úr 170 hrossum hér heima. Hrossin voru af báðum kynjum á aldrinum 3-25 vetra. Prófuð voru 76 hross af svæðum þar sem er mikið mýbit, 54 samanburðarhross og 40 útflutningshross. I Sviss voru prófaðir á sama hátt með sömu fluguseyðum 87 íslenskir hestar með sumarexem og 71 heilbrigður. Hvílfrumur úr hestum voru örvaðar in vitro með seyði af Culicoides nubeculosus og Simulium vittatum (íslenskt bitmý) og losun á sLT mæld með ELISA-prófi. Niðurstöður og ályktanir: Hestarnir hér á landi svöruðu ekki á Culicoides og einungis tveir svöruðu mjög veikt á Simulium. Af sumarexemshestunum svöruðu 80% á Culicoides en 59% á Simul- ium. Af heilbrigðu hestunum í Sviss svöruðu 4% á Culicoides en 15% á Simulium. Með sLT losunarprófi var því ekki hægt að sýna fram á að hestarnir hefðu myndað ofnæmisviðbrögð gegn flugunum hér heima. E 26 Þróun ósérvirkra ónæmisþátta hjá þorski Bcrgljót Magnadúttir1, Sigrún Lange1, Sigríður Guðmundsdóttir1, Agnar Steinarsson2 'Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum. 2Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofn- unar í Grindavík bergmagn@hi.is Inngangur: Sérvirkt ónæmiskerfi þorsks, það er virkar eitilfrumur og framleiðsla mótefna, er talið t'ullþroskað um 56 dögum eftir klak þegar seiðin hafa náð um 33 mm stærð. Fram að þessum tíma eru seiðin háð ósérvirkum varnarþáttum til varnar sýkingu. Lítið er vit- að um þróun ósérvirka ónæmiskerfisins hjá fiskum. Fylgst var með myndun ákveðinna þátta hjá þorski frá frjóvguðu eggi þar til 57 dögum eftir klak. Efniviður og aðferðir: Sýni voru tekin í fljótandi köfnunarefni af frjóvguðum eggjum og lirfum frá þremur dögum eftir frjóvgun þar til 57 dögum eftir klak (16 sýni). Próteinlausn var unnin úr þessum efniviði og greind í ónæmisþrykki með mótefnum gegn þorskapró- teinum (IgM, magnaþáttum, apólípópróteini, pentraxíni, hemó- glóbúlíni) og með mótefnum framleiddum gegn ýmsum próteinum annarra tegunda. Niðurstöður og ályktanir: Helstu niðurstöður voru að mótefni gegn sermispróteinum þorsks greindi þrjú óskilgreind prótein þremur dögum eftir frjóvgun: um 52,18 og 14 kDa. 52 kDa próteinið sást ekki í öðrum sýnum, 18 kDa próteinið greindist líka í eggjum tekn- um sjö, níu og 11 dögum eftir frjóvgun og í lirfum þar til tveimur dögum eftir klak en ekki í eldri lirfum og 14 kDa próteinið greindist ekki í eldri eggjum en kom aftur fram í lirfum einum til tveimur dögum eftir klak og gæti því hafa borist frá hrygnu til eggs. 30 kDa prótein, sem hefur verið greint sem apolipoprotein pre- cursor, kom fram í eggjum sjö dögum eftir frjóvgun og var áberandi prótein þaðan í frá. Mótefni sem framleidd hafa verið gegn magna- þáttum (C3) þorsks hafa einnig greint þetta 30 kDa prótein. Petta sýnir að C3 og apolipoprotein precursor eru sennilega sértækt tengd í þorski um leið og C3 kemur fram. a- og þ-keöjur C3 greind- ust með nokkurri vissu frá og með 11-15 dögum eftir klak, þ-keðjan greindist ef til vill fyrr eða rétt um klak. IgM greindist ekki í neinu sýni sem sýnir að mótefni berast sennilega ekki frá hrygnu til eggs eins og gerist hjá ýmsum fiskteg- undum. í þroskunarferli fiska skiptir stærð yfirleitt meira máli en aldur og þar sem elstu lirfurnar (57 daga gamlar) voru rétt um 20 mm að lengd var ekki líklegt að framleiðsla IgM væri hafin þrátt fyrir réttan aldur. Minni stærð kom sennilega til af lægra hitastigi eða meiri þéttleika en viðmið úr fyrri rannsóknum. Imkkir: Verkefnið var styrkt af Evrópuverkefnin.u FISHAID og Rannsóknasjóði HÍ. 30 LÆKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2002/88
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.