Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Síða 53

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Síða 53
ÁGRIP ERINDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ I sama gilti um þá sem voru oft krjúpandi, eða úr 64% í45%. Algengi verkjakvartana frá baki, hnjám og ökklum minnkaði í kjölfarið og það dró úr heimsóknum til lækna vegna bakveiki. Þeim, sem voru mjög oft andlega úrvinda, fækkaði um helming (úr 21% í 11%). Alyktanir: Markvisst vinnuverndarstarf eins og í þessu tilviki skilar verulegum árangri sem er þar með til verulegs gagns fyrir starfs- mann, fyrirtæki og þjóðfélag. E 92 Áhrif nýs barnsföður á endurtekningaráhættu háþrýstings á meðgöngu. Rannsókn á fjölskyldutengdum konum Sigrún Hjartardóttir1, Björn Geir Leifsson2, Reynir Tómas Geirsson1, Val- gerður Steinþórsdóttir-1 1 Kvennadeild og 2skurðdeild Landspítala háskólasjúkrahúss, 2íslensk erfðagreining sighjart@landspitali.is Tilgangur: Hækkun blóðþrýstings í meðgöngu (aðallega með- göngueitrun) sést mun oftar í fyrstu meðgöngu konu en þeim síðari. Fjölskyldusaga um slíka hækkun og fyrri hækkun á blóðþrýstingi í meðgöngu eykur líkur á endurtekningu. Einnig hefur verið talið að áhættan hjá fjölbyrjum aukist ef barnsfaðir breytist. Rannsökuð voru áhrif nýs barnsföður á þessa áhættu hjá konum sem höfðu sögu um slíka hækkun í fyrstu meðgöngu og tilheyra fjölskyldum þar sem sjúkdómurinn er þekktur. Einnig var athugað hvort aldur móður eða tímalengd milli fæðinga hafi áhrif á þessa áhættu. Efniviður og aðferðir: Upplýsingar um 614 konur með staðfesta greiningu háþrýstings eftir 20. viku í fyrstu meðgöngu voru notaðar til að meta áhrif barnsföður, aldurs móður og tímalengdar milli fæð- inga á áhættu þess að fá háþrýsting í meðgöngu að nýju. Niðurstöður: Af 614 konum hafði 121 (19,7%) nýjan barnsföður. Endurtekinn háþrýstingur greindist hjá 62% kvenna með nýjan og 64,5% kvenna með sama barnsföður. Áhættuhlutfall (OR) endur- tekningar með nýjum barnsföður var 0,897 (95% vikmörk 0,595- 1,353). Meðaltímalengd milli fyrstu og annarrar fæðingar var lengri hjá konum sem fengu endurtekinn háþrýsting (4,9 á móti 4,0 ár; p=0,0002). Áhættuhlutfall endurtekningar háþrýstings var 1,154 (95% vikmörk 1,049-1,269) fyrir hvert ár með sama og 1,145 (95% vikmörk 0,958-1,368) með nýjum barnsföður eftir leiðréttingu vegna aldurs móður. Ályktanir: Hjá þessum hópi kvenna með þekkta fjölskyldusögu og fyrri háþrýsting á meðgöngu þar sem búast má við hærri tíðni end- urtekins háþrýstings virðist nýr barnsfaðir í annarri meðgöngu ekki hafa nein áhrif til viðbótar áhættu. Aukin tímalengd milli fæðinga virðist hins vegar geta aukið áhættuna um allt að 15% fyrir hvert ár, hvort heldur barnsfaðir er sá sami eða annar. E 93 Tengsl sálfélagslegra þátta og óþæginda í hálsi, herðum og mjóbaki hjá konum í öldrunarþjónustu Hólmfríður K. Gunnarsdóttir, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Berglind Helga- dóttir, Kristinn Tómasson Rannsókna- og heilbrigðisdeild Vinnueftirlitsins hkg@ver.is Inngangur: Óþægindi í stoðkerfi eru algeng og kostnaðarsöm bæði á Islandi og annars staðar. Umönnun aldraðra er erfið vinna og starfsmannaskipti tíð á öldrunarstofnunum. Markmið rannsóknar- innar var að kanna tengsl sálfélagslegra þátta og óþæginda í hálsi, herðum og mjóbaki hjá fólki í öldrunarþjónustu. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti var sendur á allar öldrunar- deildir og öldrunarstofnanir þar sem voru 10 starfsmenn eða fleiri, á samtals 62 vinnustaði. Peir sem voru í vinnu sólarhringinn 1.-2. nóvember 2000 voru beðnir að svara listanum (N=1886). Spurt var um persónulega hagi, svo sem hjúskaparstöðu, heimilisaðstæður, menntun og stöðu, líkamlegt álag og líkamsbeitingu, félagslega og andlega álagsþætti. Svörun var 80%. Konur voru 96%. Meðalaldur var 45 ára, en aldursbilið 14-79 ára. Sextán af hundraði voru hjúkr- unarfræðingar, 20% sjúkraliðar, ófaglærðir 44%, ræstitæknar 8%, aðrir 11%. Körlunum var sleppt. Tengsl sálfélagslegra þátta og óþæg- inda í stoðkerfi voru könnuð með lógístískri aðhvarfsgreiningu og reiknuð líkindahlutföll (odds ratio, OR) með 95% öryggisbilum. Niðurstöður: Óþægindi í hálsi og hnakka tengdust mörgum sálfé- lagslegum þáttum þó einkum óánægju í starfi, að vera úrvinda eftir vaktina, óánægju með yfirmenn og að hafa orðið fyrir áreitni (OR>2). Óþægindi í öxlum tengdist sérstaklega óánægju með valda- skipulagið og yfirmennina (OR>3). Óþægindi í mjóbaki tengdust sérstaklega skorti á samstöðu í vinnunni, óánægju með yfirmenn og valdaskipulagið (OR>2). Að vera yfirleitt andlega úrvinda eftir vinnu og að hafa orðið fyrir einhvers konar áreitni tengdist óþæg- indum í öllum fyrrnefndum líkamssvæðum. Ályktanir: Til að koma í veg fyrir vinnutengd óþægindi í stoðkerfi er mikilvægt að huga bæði að sálfélagslegum þáttum og líkamlegu álagi. E 94 Próffræðilegir eiginleikar BASC hegðunarmatskvarðanna Sólveig Jónsdóttir1, Sigurlín H. Kjartansdóttir2, Jakob Smári2 1 Barna- og unglingageðdeild Landspítala háskólasjúkrahúss, 2félagsvísindadeild HÍ soljonsd@landspitali.is Inngangur: BASC (Behavior Assessment System for Children) hegðunarmatskvarðarnir eru yfirgripsmikið mælitæki, sem ætlað er til notkunar við mat, greiningu og meðferð geðraskana, þroskarask- ana, námserfiðleika og hegðunartruflana barna og unglinga á aldr- inum tveggja og hálfs árs til 18 ára. Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa sýnt að þeir reynast vel við mat á athyglisbresti með ofvirkni, sem er algengasta taugageðröskun barna og unglinga. Megintil- gangur rannsóknarinnar var að athuga próffræðilega eiginleika ís- lenskrar þýðingar hegðunarmatskvarðanna. Efniviður «g aðferðir: Tvö hundruð þrjátíu og tvö börn á aldrinum 6-11 ára voru valin af handahófi úr nemendahópi eins skóla á höf- uðborgarsvæðinu. Eitt hundrað þrjátíu og sjö foreldrar (60%) sam- þykktu að taka þátt og sendu útfyllta foreldramatskvarða fyrir börn sín. Átján kennarar (86%) 117 barnanna fylltu út kennaramats- kvarða. Sjálfsmatskvarðar bárust frá 95 (61%) barnanna á aldrinum 8-11 ára. Niðurstöður: Kennarar meta drengi marktækt hærri en stúlkur á kvörðum er mæla ofvirkni og árásargirni. Athyglisvandamál eru einnig meiri hjá drengjum. Kennarar meta stúlkur hærri á kvíða og líkamlegum umkvörtunum. Stúlkur eru metnar með heldur betri félagsfærni en drengir. Mat foreldra er í sömu átt og kennaranna, en ekki kemur fram eins mikill munur á milli kynja. Meðaltal áreiðan- leikastuðla undirkvarða kennaramatsins er 0,84 og yfirkvarða 0,94. LÆKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2 0 02/88 53
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.