Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Blaðsíða 73
ÁGRIP VEGGSPJALDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ I
V 54 Ensímlitanir á vefjasneiðum úr þorski
Sigríður Guðniundsdóttiri, Díana Guðmundsdóttiri, Einar Jörundssoni,
Slavko H. Bambiri, Agnar Steinarsson2, Bergljót Magnadóttir1
^Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, 2Tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofn-
unar í Grindavfk
siggag@hi.is
Inngangur: Vegna fyrirhugaðs þorskeldis er brýnt að efla rann-
sóknir á líffræði þorsks. Rannsóknin beindist að þroskun ónæmis-
kerfisins fyrstu vikurnar eftir klak, en þá verða mikil afföll. Líkur
benda til að starfsemi átfrumna skipti afar mikiu máli við varnir
þorsks gegn sýkingum. Þannig er óvenju hátt hlutfall frumna með
átfrumuvirkni í blóði, en magn sérvirkra mótefna er lágt. I rann-
sókninni var ensímvirkni, sem á að einkenna átfrumur, könnuð með
litunum á vefjasneiðum.
Efniviður og aöferðir: Sýni voru tekin á Tilraunaeldisslöð Haf-
rannsóknastofnunar, við klak, tveimur dögum síðar og vikulega eftir
það í átta vikur. Sýni voru fryst í fljótandi köfnunarefni og skorin í 4
p.m sneiðar. Litanir voru gerðar samkvæmt lýsingu framleiðanda
(Sigma) til að greina alpha-naphtyl butyrate esterase (NBE), beta-
glucuronidase (BG), alkaline phosphatase (Al-P) og acid phosphat-
ase (AP).
Niðurstöður og umræður: Öll ensímin greindust í meltingarvegi
og þrjú þeirra (Al-P, AP og BG) einnig í lifur og húð, strax við klak
eða tveimur dögum síðar. í nýrnavef var jákvæð Al-P litun sex vik-
um eftir klak og jákvæð BG litun á áttundu viku. Erlendar rann-
sóknir á blóðstroki úr þorski og sýnum úr tveimur öðrum fiskteg-
undum benda til að kleyfkjarna átfrumur hafi Al-P og AP en hnatt-
kjarna átfrumur AP og NBE. Niðurstöður hér benda til að báðar
gerðir átfrumna séu virkar í meltingarvegi og lifur allt frá klaki. Al-
P og AP sýndu sterka svörun allar átta vikurnar, en NBE dofnaði og
var nær horfið á áttundu viku. Því breytist ef til vill samsetning
hópsins. Nýrnavefur varð ekki jákvæður fyrr en á sjöttu viku. Þar
sem vefurinn, sem er blóðmyndandi vefur í fiski, er til staðar allt frá
klaki og vitað er að eitilfrumur finnast í honum á sjöttu viku, var bú-
ist við jákvæðum átfrumulitunum þar fyrr á þroskaferlinu.
Þakkin Styrkt af Evrópuverkefninu FISHAID og Rannsóknasjóði HÍ.
V 55 Áhrif ónæmisörvandi efna á lifun og sjúkdómsþol
þorskalirfa/seiða
Bergljót Magnadóttir1, Sigrún Lange1, Slavko H. Bambiri, Sigurður Helga-
son>, Bjarnheiður K. Guömundsdóttir1, Sigríður Guðmundsdóttirt, Agnar
Steinarsson2
'niraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, 2Tilraunaeldisstöö Hafrannsóknastofn-
unar í Grindavík
bergmagn@hi.is
Inngangur: Mikil afföll á lirfustiginu háir eldi margra sjávarfiska, til
dæmis þorsks. Ttlraunir hafa sýnt að efni sem örva ósérvirka ónæm-
iskerfið geta bætt lifun og aukið sjúkdómsþol á fyrstu vikunt eftir
klak, það er áður en sérvirka ónæmiskerfið hefur þroskast.
Efniviður og aðferðir: Könnuð voru áhrif þriggja efna á lifun
þorskalirfa á fyrstu vikum eftir klak við þolrifsaðstæður, það er ekki
var skipt um vatn, loftað eða fóðrað á tímabilinu.
Þriggja daga gamlar lirfur voru baðaðar í 20 daga í 0,25,50,100
og 150 pg/ml af 1) lipopolysaccharide (LPS), sem unnið var úr bakt-
eríunni kýlaveikibróður (Aeromonas salmonicida undirteg. achro-
mogenes), 2) lichenan, sem unnið var úr fléttunni Cetraría islandica
og 3) thamonlan, sem unnið var úr fléttunni Thamnolan vermicu-
laris var. subuliformis.
Niðurstöður: Allir styrkleikar af LPS (25-250 pg/ml) bættu mark-
tækt lifun þorskalirfa en aðeins minnsti styrkur (25 pg/ml) af
lichenan og thamnolan.
I kjölfarið var kannað hvaða áhrif böðun finim daga gamalla
lirfa í 100 pg/ml af LPS í 30 mínútur hefði á sjúkdómsþol þorsksins.
Fimm mánuðum eftir böðun voru þorskaseiðin sýkt með mismun-
andi styrkleika af kýlaveikibróður. í Ijós kom að LPS böðuð seiði
sýndu marktækt betra sjúkdómsþol en viðmiðunarhópurinn. Nokkr-
ir óvissuþættir drógu hins vegar úr gildi niðurstaðnanna eins og
stærðarmunur, sem var á baðaða og viðmiðunarhópnum og sýking
af völdum Vibrio tegundar, sem greindist í mestöllum fiskinum.
Alyktanir: Niðurstöður gefa til kynna að bæta megi lifun og sjúk-
dómsþol þorsks á fyrstu vikum eldis með meðhöndlun (böðun)
með ónæmisörvandi efnum.
Þakkin Verkefnið var styrkt af Evrópuverkefninu FISHAID og Rannsóknasjóði HÍ.
V 56 Samanburður á ónæmisviðbrögðum hesta eftir bólu-
setningu með human serum albumin (HSA) próteini og
HSA-genaferju
Vilhjálmiir Svansson', Freyja S. Eiríksdóttir1, Einar Jörundsson1, Viktor
Mar Bonilla1, Agnes Helga Martin1, Alfons RameP, Helga ÁrnadóttirL
Eliane Marti2, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir1
'Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum, 2Division of Clinical Immunology, Dept
of Clinical Veterinary Medicine, University of Berne
vsvanss@hekla.rhi.hi.is
Inngangur: Sumarexem er ofnæmishúðsjúkdómur í hestum sem bit
mýflugna af ættkvísl Culicoides veldur. Ofnæmið er í flestum tilfell-
um af týpu I sem einkennist af myndun IgE-mótefna og losun á
histamíni og öðrum bólguhvötum frá basa- og mastfrumum. í sam-
bærilegum sjúkdómum hjá mönnum hefur komið fram að ónæmis-
svarið er á Th2-braut. DNA-bólusetningar beina ónæmissvarinu
inn á Thl-braut og í nagdýrum hefur verið hægt að nota DNA-bólu-
setningar bæði sem vörn gegn ofnæmi og eins hefur verið hægt að
snúa Th2 ónæmissvari inn á Thl-braut. Við höfum sett upp DNA-
tilraunabólusetningarverkefni í hrossum þar sem notað er human
serum albumin (HSA) sem ofnæmisvaki. Rannsóknin beinist að því
að finna genaferju sem virkar vel til DNA-bólusetninga í hrossum
og ennfremur að rannsaka Thl og Th2 ónæmisviðbrögð hjá bólu-
settum hestum.
Efniviður og aöferðir: Tveir hestar hafa verið bólusettir undir húð
með blöndu af HAS-próteini og alúmíníumhýdroxíði. Tvær
pcDNA3.1 genaferjur (ferja A og B) hafa verið reyndar í hestum
með geninu sem skráir fyrir HSA-próteininu. Ferjurnar eru ólíkar
með tilliti til CpG ónæmisörvandi kirnisstefa. Bólusettir voru tveir
hestar með ferju A og tveir hestar með ferju B. Hestarnir voru bólu-
settir í húð og vöðva með 500pg af HSA-ferju-DNA í hvert sinn.
Niðurstööur: Próteinbólusetlir hestar mynduðu öflugt IgE og
IgG(T) HSA sértækt mótefnasvar og svöruðu á HSA-próteinið í
húðprófi. Af ferjubólusettum hestum mynduðu einungis hestar bólu-
settir með ferju-A lág IgG HSA sértæk mótefni. Þessir tveir hestar
L/EKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2 0 02/88 73