Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Side 94

Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Side 94
I ÁGRIP VEGGSPJALDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ bærileg rannsókn verið gerð hér á landi né erlendis eftir því sem rannsakendur best vita. Tilgangur: Að fá mynd af afstöðu þriggja þjóðfélagshópa sem á einn eða annan hátt láta að sér kveða í umræðunni um siðfræði læknavísinda. Einnig að kanna þörf fyrir þjóðfélagslega umræðu um siðferðisspurningar tengdar stofnfrumulækningum. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti, sem samanstóð af fjórum bakgrunnsspurningum, níu fjölvalsspurningum og þremur tilfellum, var sendur til þátttakenda í júní 2002. Listinn var sendur 300 lækn- um, 300 lögfræðingum og 169 prestum. Læknar og lögfræðingar voru valdir með slembun, 150 karlar og 150 konur í hvorum hópi fyrir sig. Hópur presta samanstóð af öllum starfandi prestum á íslandi, 129 körlum og 40 konum. Svör voru fyrst og fremst flokkuð út frá starfi þátttakenda en einnig var kyn notað sem frumbreyta. Jafnframt voru svör skoðuð eftir viðhorfi þátttakenda til siðferðis- stöðu fósturvísa. Niðurstöður: Alls svöruðu 290 þátttakendur spurningalistanum sem er 38,9% svörun. Almennt eru þátttakendur frjálslyndari í garð lækninga sem notast við stofnfrumur fósturvísa en umræðan erlend- is gefur til kynna. Munur er á milli stétta og í sumum tilfellum milli kynja. Ályktanir: Mikill meirihluti þátttakenda var sammála því að þjóð- félagsleg umræða þyrfti að fara fram um lækningar sem notast við fósturvísastofnfrumur, jafnt um kosti slíkra lækninga sem og þær fórnir sem þær krefjast. Flestir þátttakenda sögðust hafa litla yfirsýn yfir efnið. Menn virðast á því að þjóðfélagið í heild eigi að taka veigamiklar ákvarðanir eins og þá hvort leyfa eigi stofnfrumulækn- ingar. V 118 Með grátt í vöngum - hefur það forspárgildi um beinþynningu? Kolbrún Albertsdóttir1, Björn Guðbjörnsson1- tBeinþéttnimóttaka Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, ^Rannsóknarstofa í gigtarsjúkdómum Landspítala háskólasjúkrahúsi bjorngu@landspitali.is Inngangur: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort gráu hárin og þá sérstaklega þau sem koma snemma hafi forspárgildi um beinþynningu síðar á lffsleiðinni. Efniviður og aðferðir: Prjú hundruð og fimmtíu konur á aldrinum 50-80 ára, sem vísað var til beinþéttnimóttöku FSA til beinþéttni- mælingar og áhættumats með tilliti til beinþynningar voru beðnar að svara stöðluðu spurningakveri. Kverið samanstóð af fjórum spurningum um það hvenær hár þeirra byrjaði að grána og hvenær helmingur og/eða allt hár þeirra var grátt. Auk þess svöruðu þær stöðluðu spurningakveri um heilsufar, áhættuþætti fyrir beinþynn- ingu og hvort þær hefðu beinbrotnað. Beinþéttnimæling var fram- kvæmd á staðlaðan hált af hrygg (L-l - L-4) og af lærlegg með DEXA (Lunar 2000X) og beinþéttnin gefin upp í T-gildum (það er fjöldi staðalfrávika frá hámarksbeinþéttni). Niðurstöður: Tvö hundruð áttatíu og ein kona svaraði spurninga- kverinu (83%). Meðalaldur þeirra var 64±8 ár. Hár kvennanna byrjaði að grána við 42 ára aldur (±12 ár) og 115 konur sögðu að meira en helmingur hársins hefði verið orðinn grár við 53 ára aldur (±10). Konur sem höfðu helming hársins gráan fyrir 43 ára aldur voru taldar til þeirra sem urðu gráhærðar óeðlilega snemma (neðan 95% CI). Nítján konur höfðu orðið gráhærðar fyrir 43 ára aldur. Sex af þessum 19 konum (32%) höfðu beingisnun og fimm (26%) höfðu beinþynningu í hrygg miðað við 35% og 24% í viðmiðunar- hópnum. ANOVA-reikniaðferðir sýndu ekki heldur samband milli beinþéttnigilda og þess á hvaða aldri hárið byrjaði að grána né hve- nær helmingur þess varð grár. Hins vegar höfðu helmingi færri kon- ur, sem voru orðnar gráhærðar fyrir 43 ára aldur, sögu um beinbrot eða 26% miðað við 52% í viðmiðunarhópnum. Ályktanir: Rannsóknin sýnir að íslenskar konur sem verða grá- hærðar snemma á lífsleiðinni hafa ekki aukna áhættu á beinþynn- ingu. V 119 Lífsgæði íslenskra kvenna með samfallsbrot í hrygg af völdum beinþynningar Kolbrún Albertsdóttiri, Elvar Örn Birgisson1, Halldór Benediktsson2, Björn GuöbjörnssonL3 tBeinþéttnimóttaka og 2inyndgreiningardeild Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, 3Rannsóknarstofa (gigtarsjúkdómum Landspítala háskólasjúkrahúsi bjorngu@landspitali.is Inngangur: Hér á landi er talið að árlega megi rekja 1000-1200 bein- brot til beinþynningar. Samfélagskostnaður er mikill, bæði vegna sjúkrahúskostnaðar og félagsþjónustu. Þá eru ótalin áhrif brotsins á lífsgæði þess sem fyrir brotinu verður. Markmið þessarar rannsókn- ar er að kanna lífsgæði þeirra sem hafa orðið fyrir samfallsbrotum í hrygg- Efniviður og aðferðin Prjú hundruð og fimmtíu konum á aldrinum 50-80 ára sem komu til beinþéttnimælingar við FSA var boðin þátt- taka í lífsgæðarannsókn, þar sem borin eru saman áreiðanleiki tveggja staðlaðra spurningakvera. Annað er hið íslenska spurningakver Heilsutengd lífsgæði (IQL) og hið síðara er sjúkdómasérhæft spurn- ingakver fyrir einstaklinga með beinþynningu (QUALEFFO). Auk þess svöruðu þátttakendur stöðluðu spurningablaði um áhættuþætti og almenn heilsufarsatriði. Beinþéttnimæling af mjöðm og hrygg var framkvæmd með DEXA-mæli og beinþéttnin gefin upp í T-gildum. Pá voru allar röntgenmyndir sem til voru af þátttakendum skoðaðar með tilliti til samfallsbrota í hrygg. Verkefni þetta er hluti af stærri lífsgæðarannsókn sem verður kynnt á öðrum vettvangi. Niðurstöður: Af konunum svöruðu 83% spurningakverunum, meðalaldur þeirra var 64±8 ár. Pær höfðu T-gildi að meðaltali - 1,2±1,6 í hrygg og -2,22±1,26 í mjöðm. Þrjátíu og tvær konur höfðu sögu um samfallsbrot í hrygg, sem staðfest var með myndatöku. T- gildi þessa hóps var -2,90±1,21. Til samanburðar voru 72 konur sem höfðu ekki sögu um samfallsbrot í hrygg (T-gildi -1,6±1,25). Mark- tækur munur var á upplifun kvennanna á lífsgæðum sínum mælt með IQL, en munurinn var enn meiri ef stuðst var við QUALEFFO. Nánari niðurstöður verða kynntar á þinginu. Ályktanir: Rannsóknin sýnir að samfallsbrot í hrygg meðal ís- lenskra kvenna hefur veruleg áhrif á getu kvennanna til athafna daglegs lífs, hreyfifærni og félagslífs. Þá hafa þær meiri verki og telja sig hafa lakara heilsufar. Ennfremur telja þær konur sem höfðu fengið samfallsbrot í hrygg sig hafa verri fjárhagsstöðu. Langtíma- áhrif samfallsbrota í hrygg eru umtalsverð á heilsu kvenna og því mikilvægt að efla forvarnir og koma í veg fyrir beinbrot af völdum beinþynningar. L/EKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2 0 0 2/88
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.