Læknablaðið : fylgirit - 01.12.2002, Side 105
ÁGRIP VEGGSPJALDA / XI. VÍSINDARÁÐSTEFNA HÍ I
vegna þess að áður en það gerist þurfa þau að ná tilætluðum áhrif-
um.
V 150 Samanburður á stöðugleika mónókapríns
í mismunandi lyfjaformum
Þórunn Osk Þorgeirsdóttirl, Halldór Þormar2, Þórdís Kristmundsdóttirl
iLyfjafræðideild og 2Líffræðistofnun HÍ
thoth@hi.is
Inngangur: Mónókaprín (1-mónóglýseríð af kaprínsýru) er eitt af
mörgum náttúrulegum fituefnum sem sýnt hafa mikla virkni gegn
ýmsum bakteríum og veirum. Hönnuð hafa verið lyfjaform, hlaup
og lausnir, sem innihalda mónókaprín. Þar sem mónókaprín hefur
takmarkaða leysni í vatni var notuð blanda leysis og yfirborðsvirks
efnis til að ná því í lausn. Lyfjaformin hafa sýnt mikla virkni gegn
bakteríum og veirum en mónókaprín reyndist ekki stöðugt í lausn-
um. Markmið verkefnisins var að kanna hvaða þættir hafa áhrif á
stöðugleika mónókapríns í lausnunum.
Efniviður og aðferðir: Framleiddar voru lausnir og hlaup sem inni-
héldu mónókaprín. Breytur í forskriftunum voru magn leysisins
própýlenglýkól svo og styrkur yfirborðsvirka efnisins pólýsorbat 20,
en lausnirnar voru að auki framleiddar með og án antioxidants.
Hlaupin og lausnirnar voru geymdar við 4,30 og 60°C. Virkni mónó-
kapríns í hinum ýmsu samsetningum á herpes simplex veiru af teg-
und 1 var könnuð (HSV-1) in vitro.
Niðurstöður: Breyting á hlutföllum leysis og yfirborðsvirks efnis
hafði meiri áhrif á virkni mónókapríns gegn HSV-1 en á geymsluþol
efnisins. Öll lyfjaformin sýndu mikla virkni gegn HSV-1 strax að
lokinni framleiðslu svo og eftir geymslu í 15 vikur, að undanskildum
þeim lyfjaformum sem innihéldu 3% pólýsorbat 20 og hvorki anti-
oxidant né hlaupmyndandi efnið karbomer. Hvorki hærra hlutfall
af leysinum própýlenglýkóli né viðbót antioxidants virðist auka
geymsluþol lausnanna.
Ályktanir: Hlaupefnið karbomer virðist auka stöðugleika mónó-
kapríns til muna þar sem geymsluþol hlaups er mun betra en sam-
svarandi lausnar. Stöðugleika mónókaprínlyfjaforma má einnig
auka með geymslu í kæli. Niðurbrotsleið mónókapríns í lausn virð-
ist þó ekki vera oxun þar sem íbót antioxidants bætir ekki stöðug-
leika þess.
V 151 Sýkladrepandi krem til notkunar á húð. Þróun
og prófanir
Þórunn Ósk Þorgcirsdúttir'. Halldór Þormar2, Þórdís Kristmundsdóttiri
'Lyfjafræðideild og 2Líffræðistofnun HÍ
thoth@hi.is
Inngangur: Nokkur mismunandi lyfjaform eru notuð til að gefa lyf
á húð. Virkni lyfs sem gefið er í húðlyfjaformi er meðal annars háð
samsetningu lyfjaformsins og því hvernig það losnar úr burðarefn-
inu. Hlaup sem innihalda náttúrulega fituefnið mónókaprín hafa
reynst virk gegn bakteríum og veirum. Hlaup er mjög heppilegt
lyfjaform til lyfjagjafar á slímhúð þar sem góðir viðloðunareigin-
leikar eru nauðsynlegir. Mónókaprín hefur hins vegar mjög breiða
örverudrepandi eiginleika og kæmi því til greina til notkunar við
sýkingum á húð. Lyfjaformið krem gæti verið æskilegra en hlaup til
notkunar á húð. Markmið þessa verkefnis var að kanna áhrif ýmissa
breyta á eiginleika krems (o/v-fleytu) sem inniheldur mónókaprín.
Efniviður og aðferðir: Breytur í framleiðslu kremanna voru: mis-
munandi hjálparleysar (sorbítól og própýlenglýkól) í vatnsfasanum;
hlutfall vatns og fitufasa; vatnsfasinn gerður þykkur með mismiklu
magni af karbopoli; mónókaprín í vatnsfasa eða í fitufasa. Fram-
kvæmdar voru virkniprófanir gegn herpes simplex veiru af tegund 1
(HSV-1) og gerð voru losunarpróf og viðloðunarpróf við gervi-
himnu á þeim kremum sem sýndu virkni gegn HSV-1.
Niðurstöður: Kremin þar sem mónókaprín var leyst upp í fitufas-
anum reyndust ekki virk gegn HSV-1 og kremin þar sem það var
leyst upp í sorbítóli voru lítið virk. Kremin þar sem mónókaprín var
leyst upp í própýlenglýkóli voru misjafnlega virk og jókst virknin
með auknu karbomermagni. Niðurstöður sýndu að hlutfall fitufasa
svo og karbomers í forskriftinni hafði áhrif á losun virka efnisins svo
og virkni gegn HSV-1. Viðloðunarprófin sýndu að mónókaprín
minnkar viðloðunareiginleika kremsins.
Ályktanir: Niðurstöður benda til að tekist hafi að þróa stöðugt
krem en bæta má losun mónókapríns og virkni á örverur með litlum
breytingum á formúleringu.
V 152 Notkun gervihimnu við mælingar
á slímhimnuviðloðun hlaupa
Eysteinn Ingólfssonl.2, Skúli Skúlasonl.2, pórdís Kristmundsdóttir2
^Líf-Hlaup ehf., 2lyfjafræöideild HÍ
skulis@hi.is
Inngangur: Ýmsar fjölliður hafa þá eiginleika að loða við líffræði-
legan vef. Vaxandi áhugi er á að nota slíkar fjölliður í lyfjaform þar
sem það gæti haft ýmsa kosti, einkum þá að á þennan hátt er hægt
að staðbinda lyfið og tryggja langan snertitíma. Fjölliður sem loða
vel við slímhúð hafa verið notaðar við gerð lyfjaforma til lyfjagjafar
í munnholi, svo sem töflur, himnur eða hlaup. Nokkrar aðferðir
hafa verið notaðar til að mæla slímhimnubindingu efna, en það in
vitro líkan sem oftast er notað fyrir munnslímhúð er munnslímhúð
svína, en henni svipar á margan hátt til munnþekjuvefs manna.
Markmið þessarar rannsóknar var að þróa in vitro aðferð þar sem
notuð væri gervihimna til að meta og spá fyrir um bindingu vatns-
hlaupa (hydrogel) við slímhúð.
Efniviður og aöferöir: Mismunandi gervihimnur (SpectraPhor;
DuoDerm®) voru bornar saman við munnslímhimnur svína. Not-
aður var TA-XT2Í texture analyser til að mæla viðloðunarkraft fjöl-
liðuhlaupa (Carbopol 981, Carbopol 1382, xanthan og natríum
carboxymethylcellulosa) við himnurnar.
Niðurstööun Besta samsvörun gervihimnu við munnslímhúð fékkst
þegar notuð var hýdrókollóíð himna (DuoDerm) sem 17% mucin
var dreift yfir. Röð bindingar fjölliða við gervi- og lifandi himnur
var sú sama. Samsvörun var allt að 98% fyrir Carbopol 981 mælt
með svínaslímhúð og gervihimnu, samsvörun fór hins vegar minnk-
andi með lækkandi viðloðunarstyrk fjölliða.
Ályktanir: Mælingar á bindingu mismunandi fjölliðuhlaupa við
hýdrókollóíð himnu með mucin lagi gefur mjög góða samsvörun við
mælingar á bindingu við munnslímhúð svína. Samsvörun var betri
eftir því sem binding ljölliðu var sterkari. Aðferðin gefur kost á að
takmarka notkun dýraslímhúðar við mælingar á viðloðun fjölliða
LÆKNABLAÐIÐ / FYLGIRIT 47 2002/88 105