Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Page 15
ÓlöfHalldóra Albert Páll
Bjarnadóttir. Sigurðsson.
Snjólaug
Arnardóttir.
lyflækningum á Dartmouth-Hitchcock Medical
Center í Lebanon í New Hampshire og í tauga-
lækningum við University of Massachusetts
Medical Center í Worcester í Bandaríkjunum á
árunum 1994-1997. Hann var einnig við sémám
í heilaæðasjúkdómum (cerebrovascular diseases)
á Rhode Island Hospital við Brown University í
Providence í Bandaríkjunum á árunum 1997-1998.
Frá árinu 1999 hefur hann verið taugalæknir á
taugalækningadeild Landspítalans og sjálfstætt
starfandi í Reykjavík.28
Snjólaug Arnardóttir og Martin Leonard
Grabowski fengu sérfræðileyfi hér 2000 en bæði
höfðu þau stundað sérnám í taugalækningum
í Svíþjóð.45 Martin hafði lokið doktorsritgerð,
Neuronal grafting in stroke. An experimental study
on fetal cortical transplants in the infarcted brain, frá
læknadeild Háskólans í Lundi í Svíþjóð 1993.46
Martin er taugalæknir á taugalækningadeild á
Landspítala í Fossvogi og sjálfstætt starfandi á
stofu í Reykjavík.
Snjólaug Arnardóttir hóf sémám í tauga-
lækningum á Karolinska Sjukhuset í Stokkhólmi
1995.28 Áður hafði hún verið aðstoðarlæknir á
tauga- og endurhæfingardeild Grensásdeildar.
Snjólaug lauk doktorsritgerð, Studies in sporadic
inclusion body myositis, frá Karolinska Institutet
árið 2003 og er fyrsta íslenska konan sem lýkur
doktorsritgerð í taugasjúkdómafræði.28-47 Snjólaug
er læknir á taugalækningadeild á Karolinska
Sjukhuset.
Ólafur Thorarensen barnalæknir hlaut
sérfræðiviðurkenningu í barnataugalækningum,
árið 2000. Hann var við sérnám í barnalækningum
við University of Connecticut og í heila- og
taugasjúkdómum barna á Children's Hospital
of Philadelphia við University of Pennsylvania í
Bandaríkjunum á árunum 1995-1998.28 Hann er
barnataugalæknir á Barnaspítala Hringsins og
sjálfstætt starfandi í Reykjavík.
Laufey Ýr Sigurðardóttir barnalæknir fékk
sérfræðileyfi í barnataugalækningum árið 2002.
Hún er fyrst kvenna í bamataugalækningum
hér á landi. Laufey Ýr var við sérfræðinám í
bamalækningum á Hartford Hospital í Connecticut
í Bandaríkjunum á árunum 1995-1999. Árið 1999
hóf hún sérfræðinám í taugalækningum barna á
Childrens' Hospital of Philadelphia við University
of Pennsylvania í Bandaríkjunum.28 Hún er
barnataugalæknir á Barnaspítala Hringsins og
sjálfstætt starfandi í Reykjavík.
Páll Eyjólfur Ingvarsson varð sérfræðingur í
taugalækningum 2002. Hann stundaði sémám
í taugalækningum á Sahlgrenska sjukhuset í
Gautaborg. Páll Eyjólfur varði doktorsritgerð,
On objective evaluation of the motor disability in
Parkinson's disease: pathophysiological and clinical
aspects, við Gautaborgarháskóla árið 1997.
Hann hafði þá verið skipaður yfirlæknir við
mænuskaðadeild á Sahlgrenska sjukhuset.28'48
Páll Eyjólfur er taugalæknir á endurhæfingarsviði
Landspítala á Grensási.
Jón Hersir Elíasson hlaut sérfræðileyfi í
taugalækningum 2003 eftir sérnám við Karolinska
Sjukhuset í Stokkhólmi. Áður hafði hann
starfað sem deildarlæknir á taugalækningadeild
Grensásdeildar.28'45 Hann er nú taugalæknir á
Reykjalundi og sjálfstætt starfandi í Reykjavík.
María Guðlaug Hrafnsdóttir fékk sérfræði-
leyfi 2004 eftir að hafa stundað sémám í
taugalækningum við Haukeland Sykehus í
Björgvin í Noregi. Hún var deildarlæknir á
taugalækningadeild Grensásdeildar áður en hún
hélt til Noregs.28-45 María Guðlaug er taugalæknir á
endurhæfingarsviði Landspítala á Grensási.
Sóley Guðrún Þráinsdóttir hlaut sérfræðileyfi
árið 2005 eftir nám í taugalækningum við
Universitetssjukhuset MAS í Malmö og
á háskólasjúkrahúsinu í Lundi. Sóley varði
doktorsritgerð, Peripheral polyneuropathy in
Martin Leonard
Grabowski.
Ólafur
Thorarensen.
Laufey Ýr
Sigurðardóttir.
LÆKNAblaðið 2010/96 Fylgirit 64 15