Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Síða 66
National Hospitalfor the Paralysed and Epileptic við Queen
Square í London árið 1884.
einnig talað um „efferent" og „afferent" taugaboð
eða taugaþræði. Sá, sem fyrstur komst þannig
að orði, var írski læknirinn Robert Bentley
Todd (1809-1860), prófessor í lífeðlisfræði og
líffærameinafræði við Kings College í London.
Hann stóð fyrir byggingu Kings College Hospital
við Lincolns Inn Fields, þar sem Lister byrjaði
að skera upp við aseptiskar aðstæður árið 1877.
Árið 1913 var sjúkrahúsið flutt til Denmark
Hill í Suður-London og stendur nú beint á móti
geðsjúkrahúsinu Maudsley Hospital og Institute
of Psychiatry. Todd er best þekktur fyrir lýsingu
sína á post-ictal lömun, svokallaðri „Todds palsy".
Todd var samtímamaður Michael Faradays (1791-
1867) og þekkti hann vel. Todd taldi, að rafmagn
væri mikilvægt í starfsemi taugakerfisins og í
flogaveiki og reyndist þar sannspár.26
Bresk taugafræði stendur á gömlum merg, og
má rekja sögu hennar til Thomas Willis. Klínísk
taugafræði eða taugalæknisfræði í Bretlandi er
hins vegar talin hefjast árið 1860 við stofnun
sérstaks spítala fyrir lamaða og flogaveika í húsi
númer 24 við Queen Square í miðri London.
Sjúkrahúsið hlaut upphaflega nafnið The National
Hospital for the Paralysed and Epileptic, en heitir
nú The National Hospital for Neurology and
Neurosurgery (í daglegu tali kallað Queen Square)
og er frá 1997 hluti af University College London
(UCL). Þar er einnig UCL Institute of Neurology,
sem var upphaflega stofnað 1950 til að efla
akademíska taugalæknisfræði í Bretlandi.
Fyrstu læknarnir á Queen Square voru Jabez
Spence Ramskill (1824-1897) og Charles Edouard
Brown-Séquard (1817-1894). Sá fyrrnefndi var
frá Yorkshire, hafði lært læknisfræði í London
og var einnig starfandi við London Hospital
John Hughlings
Jackson.
í Whitechapel. Hann sá þörfina á sérstökum
spítala fyrir lamaða og flogaveika og fékk vel
efnaða fjölskyldu til að styrkja spítalann. Sá
síðarnefndi fæddist á eyjunni Mauritius fyrir
austan Madagascar í Afríku. Eyjan var frönsk
nýlenda, þegar Bretar hertóku hana 1810 í
stríði sínu við Napóleon. Brown-Séquard var
því breskur, móðirin frönsk, en faðirinn var
bandarískur sjómaður. Franska var móðurmál
Brown-Séquards. Hann fór til Frakklands til að
læra læknisfræði. Að námi loknu dvaldi hann í
Frakklandi, á Mauritius og í Bandaríkjunum, en
1860 varð hann læknir á National Hospital við
Queen Square. Þar starfaði hann aðeins í þrjú ár.
Eftir það var hann þrjú ár prófessor í lífeðlisfræði
og meinafræði við Harvard, en 1878 tók hann við
prófessorsstöðu Claude Bernards (1813-1878) við
Collége de France í París. Sagt er, að Ramskill
hafi verið orðinn þreyttur á Brown-Séquard, því
sá síðarnefndi lét oft ekki sjá sig á spítalanum,
var þá við dýratilraunir!27 Sjúklingabiðlistinn
lengdist og lengdist, og er auðvelt að skilja
ánægju Ramskills, þegar kollegi frá Yorkshire
var ráðinn til spítalans 1862. Ef til vill varð hann
enn ánægðari, þegar Brown-Séquard sagði upp
ári seinna. Nýi læknirinn var John Hughlings
Jackson, sem kallaður hefur verið faðir enskrar
taugalæknisfræði.28
John Hughlings Jackson lærði læknisfræði í
York á Norður-Englandi og fór þaðan til London,
þar sem hann vann sig upp í lagskiptu kerfi
breskrar læknisfræði. Samhliða því að vera
læknir við National Hospital hafði hann stöðu
við London Hospital eins og Ramskill. Jackson
er sagður vera mjög fræðilegur taugalæknir.
Hann leit á taugakerfið sem lagskipt kerfi, og
66 LÆKNAblaðið 2010/96 Fylgirit 64