Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Blaðsíða 33
Denis Williams eftir komu hans til íslands í júní
1972 sagði hann að fyrir fáeinum árum hefðu
læknar svo til ekkert vitað um heilann og staðið
ráðþrota gagnvart hvers kyns sjúkdómum í
honum en á síðustu árum hefðu orðið gríðarlegar
framfarir í rannsóknum á heilanum. Hann
taldi að þessar rannsóknir slægju út framfarir
í kjarnorkuvísindum. í máli hans kom einnig
fram að nú væri hægt að lækna ýmsa sjúkdóma
í heila sem læknar kunnu engin ráð við fyrir
fáeinum árum. Hann taldi að markverðastar
væru rannsóknir og lækningar á heilablóðfalli
sem hefði fleygt svo fram að með ólíkindum væri
og benti á þá staðreynd að nú væri heilablóðfall
ekki lengur dauðadómur heldur mætti í mörgum
tilfellum lækna það svo að sjúklingurinn fengi
með tímanum góðan bata.125
Denis Williams flutti fyrirlestra á Landspítal-
anum um flogaveiki, á Borgarspítalanum um
heilablóðföll og á Kleppsspítala fjallaði hann um
breytingar á heilariti afbrotamanna. Mun hann
lengi hafa rannsakað það fyrirbrigði og helstu
niðurstöður hans voru á þá leið að hjá þeim
afbrotamönnum sem framið höfðu ofbeldisglæp,
svo sem morð eða nauðgun, sýndi heilaritið
yfirleitt ekkert óvenjulegt umfram það sem var að
finna hjá venjulegu fólki. Hins vegar væru heilarit
hjá þeim sem staðnir höfðu verið að árásar-
eða ofbeldisglæpum hvað eftir annað talsvert
frábrugðin og taldi hann það benda til þess að
ástæðu atferlis þeirra væri að leita í heilaveilum
fremur en ytri aðstæðum.124125
Denis Williams dvaldi á íslandi í nokkra
daga og fór ásamt Sverri Bergmann taugalækni í
ferðalag, þar á meðal til Flateyjar á Skjálfanda.31
Hann kom hingað aftur í byrjun desember
1974 og var andmælandi þegar Kjartan R.
Guðmundsson yfirlæknir varði doktorsritgerð
sína, Epidemiological studies of neurological diseases
in lceland, við Háskólann.31-126
Fyrstu aukafélagar
í Taugalæknafélagi íslands
Á aðalfundi sem haldinn var í Taugalæknafélaginu
11. október 1971 óskaði Sverrir Bergmann eftir því
að heilaskurðlæknum og Denis Williams, hinum
heimsþekkta taugalækni, yrði boðið að gerast
aukafélagar í félaginu.1
Heilaskurðlæknarnir sem Sverrir átti við voru
Frá heimsókit Denis Williams til íslands 1972. Taliðfrá
vinstri: Peter Rugde taugalæknir, Gunnar Guðmundsson
yfirlæknir, Sverrir Bergmann taugalæknir, Denis Williams
taugalæknir, Kjartan R. GuÖmundsson yfirlæknir og John
Benedikz taugalæknir.
Bjarni Hannesson og Kristinn Guðmundsson.
Á fundi sem haldinn var í Taugalæknafélagi
íslands 15. mars 1972 mættu Bjarni og Kristinn
sem áheyrnarfulltrúar í boði stjórnar félagsins.
Endanleg ákvörðun um inngöngu aukameðlima
í félagið var tekin fyrir á fundi 12. júlí 1972. Þá
stakk Kjartan upp á því að Bjarna, Kristni, Jóni
L. Sigurðssyni og Hannesi Blöndal yrði boðið
að gerast aukafélagar í félaginu og var tillagan
samþykkt. Gunnar Guðmundsson stakk upp á
því að bjóða einnig Jónasi Hallgrímssyni að gerast
aukafélagi og var það einnig samþykkt.1,25 Sverrir
hafði þá boðið Denis Williams inngöngu í félagið
sem aukafélaga sem hann og þáði.1,11,31
Fyrstu aukameðlimirnir sem gengu í
Taugalæknafélag Islands urðu sex talsins. Denis
Williams var sérfræðingur í taugalækningum
í Lundúnum og hirðtaugalæknir bresku
Frá vinstri: Peter Rudge, Denis Williams og Kjartan R.
Guðmundsson.
LÆKNAblaðið 2010/96 Fylgirit 64 33