Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Side 47

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2010, Side 47
að skilja að bráðameðferð og endurhæfingu þessara sjúklinga og töldu fundarmenn að endurhæfing heilablóðfallssjúklinga ætti að vera í höndum taugalækna. Þessi ályktun Taugalæknafélags Islands vakti furðu og óánægju félagsmanna í Félagi íslenskra endurhæfingarlækna á fundi sem haldinn var í því félagi 9. september 1999. Þar harmaði félagið að sérfræðingar í einni grein læknisfræði skyldu „með þessum hætti vega að starfsheiðri og kunnáttu kollega sinn í öðrum sérgreinum."25 í framhaldi var ákveðið að senda stjórn Taugalæknafélags íslands ályktun og þar kom þetta m.a. fram: Algengt er að sjúklingar með taugasjúkdóma þurfi á þjónustu annarra sérfræðinga í læknisfræði að halda og má þar nefna heila- og taugaskurðlækna, hjartalækna, endurhæfingarlækna, þvagfæraskurðlækna, öldrunarlækna og heimilislækna auk annarra. Allar þessar sérgreinar hafa áratuga þróun að baki eftir að þær voru sérgreindar frá gömlu aðalgreinunum, lyflækningum og skurðlækningum. Hinn sérstaka þekkingarforða þessara greina er ekki að finna í taugalækningum. Það þarf því að fara mjög langt aftur í tímann til að finna ályktun taugalækna stað auk þess sem með henni eru hagsmunir sjúklinga bornir fyrir borð með alvarlegum hætti.25 Að lokum áréttaði Félag íslenskra endurhæf- ingarlækna að læknisfræðileg endurhæfing ætti að vera í höndum sérfræðinga í endur- hæfingarlækningum og þessi réttur og skylda sérgreinarinnar átti að vera jafn sjálfsögð og annarra sérgreina. Eftir að ályktun Félags íslenskra endurhæfingarlækna hafði borist stjóm Taugalæknafélags íslands var ályktun félagsins dregin til baka einkum vegna þess að hún var talin geta valdið ónauðsynlegri „úlfúð" milli endurhæfingarlækna og taugalækna. Tengsl taugalækninga og endurhæfingar voru mjög náin á þessum tíma bæði á Grensásdeild og Landspítalanum og em enn.25 Gefur ráð um aksturs- heimildir og hnefaleika Ýmis mál hafa verið tekin fyrir á fundum í Taugalæknafélagi íslands og verða ekki tíunduð hér. Þó ber að nefna að árið 1980 óskaði landlæknir eftir tillögum frá félaginu um hvaða reglur ættu að gilda um útgáfu ökuskírteina til þeirra sem haldnir væru flogaveiki því að nokkurs misræmis gætti í áliti sérfræðinga um það hvenær ætti að veita sjúklingum með flogaveiki ökuréttindi. Málið átti eftir að skjóta upp kollinum aftur og aftur á fundum félagins.25 Árið 1999, þegar leyfa átti hnefaleika, barst fyrirspurn frá karlanefnd Jafnréttisráðs um hvort Taugalæknafélag íslands hefði í hyggju að beita sér á einhvern hátt í því. Taldi karlanefndin þrennt mæla á móti leyfisveitingunni, þ.e. hættu á höfuðáverkum og heilaskemmdum í kjölfar hnefaleika, ofbeldi og þá staðreynd að það eru karlar sem stunda hnefaleika og að leyfið myndi ýta undir þá staðalmynd að karlar séu ofbeldisfullir í eðli sínu. í svar- bréfi Taugalæknafélags íslands koma fram að félagsmenn voru alfarið á móti því að hnefaleikar yrðu leyfðir hér á landi vegna heilsufarslegra afleiðinga þeirra og bauðst félagið til að styðja við bakið á þeim aðilum sem vildu halda uppi virkri baráttu gegn hnefaleikum.25 Þrátt fyrir það gengu í gildi lög um áhugamannahnefaleika árið 2002.161 Merki Taugalæknafélags íslands. Merki Taugalæknafélags íslands Á fundi í Taugalæknafélagi íslands 6. maí 1991 var fyrst farið að tala um merki fyrir félagið. Það var ekki fyrr en tæpum 10 árum síðar sem Sigurður Vilberg Sigurðsson röntgenlæknir var fenginn til að hanna merkið. Árið 2003 var merkið fullbúið af hálfu höfundar.25 Merkið sýnir höggorm umlykja taugafrumu með taugaþræði og griplum. Stjórn Taugalækna- LÆKNAblaöiö 2010/96 Fylgirit 64 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.