Frjáls verslun - 01.05.2010, Blaðsíða 60
60 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0
Margrét G. Flóvenz, KPMG og formaður löggiltra endurskoðenda.
Anna Kristín Traustadóttir, frkvstj. Ernst & Young, formaður áfrýjunarnefndar
samkeppnismála og skiptastjóri Baugs Group.
Auður Þórisdóttir, frkvstj. endurskoðunarsviðs KPMG.
Margrét Sanders, endurskoðandi Deloitte.
Anna Þórðardóttir, endurskoðandi KPMG.
Sigrún Guðmundsdóttir, endurskoðandi hjá PricewaterhouseCoopers.
ENDURSKOÐENDUR
– Hvaða árangur ertu ánægðust með innan þíns
fyrirtækis?
Ég er auðvitað ánægð með hvað við höfum haft mikið
að gera þrátt fyrir samdrátt í samfélaginu. Ánægð ust
er ég samt með hvað fólkið okkar stendur saman um
að reka fyrirtæki sem veitir fyrsta flokks þjón ustu
með gæðin að leiðarljósi.
– Finnur þú fyrir nýjum tímum og nýrri hugsun í
þjóðfélaginu eða finnst þér allt vera að fara í sama
farveg aftur?
Já og nei. Fólk er að sumu leyti meðvitað um að
heiðar leiki er það sem þarf til að við getum átt gott
og gjöfult samfélag. Á hinn bóginn verður maður samt
oft svolítið dapur yfir því hvað margir eiga enn erfitt
með að sjá út fyrir þrönga eiginhagsmuni.
– Ef þú yrðir forsætisráðherra í einn dag; hvert yrði
þitt fyrsta verk?
Ætli ég myndi ekki byrja á að reyna að koma skikki á
lagasetningaferlið hjá Alþingi.
Það er oft sorglegt að sjá hversu illa ígrunduð laga
setning er hér á landi og hefur verið um langa hríð.
– Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja er mál
málanna. Hvernig geta bankarnir hraðað þessu ferli?
Fyrst og fremst með því að óttast ekki að taka
ákvarðanir. Það má samt ekki rasa um ráð fram og
það er algert grundvallaratriði að gleyma ekki stóra
samhenginu þegar ákveðið er hvort og hvernig
tryggja eigi áframhaldandi rekstur fyrirtækja.
Við verðum að hætta að hugsa um skammtíma ávinn
inginn – við erum búin að brenna okkur nóg á því.
– Sérð þú einhver teikn á lofti um að það versta sé
að baki í atvinnulífinu?
Vissulega er farið að sjá til sólar hjá mörgum fyrir
tækjum þótt enn sé langt í land hjá öðrum. Ég held
þó að það sé of snemmt að úrskurða sjúklinginn
lækn aðan og enn á brattann að sækja hjá mörgum.
Þórunn Guðmundsdóttir,
hæstaréttarlögmaður hjá LEX
HEIÐARLEIKI
ER ÞAÐ SEM ÞARF
Margrét G. Flóvenz,
einn af eigendum KPMG