Frjáls verslun - 01.05.2010, Qupperneq 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 1 0
agvangur er traust og leiðandi
fyrirtæki á sviði ráðninga, ráð-
gjafar og mannauðsstjórnunar.
Einn helsti styrkleiki Hagvangs
er öflugt starfsfólk sem býr yfir mikilli
reynslu og þekkingu á sviði ráðninga og
starfsmannaráðgjafar.
Að sögn Katrínar S. Óladóttir,, fram-
kvæmdastjóra og Brynhildar Halldórs dóttur,
ráðgjafa, er lögð mikil áhersla á nýjungar
í þjónustu og áreiðanleika í ráðningum og
ráðgjöf.
Miklar breytingar hjá fyrirtækjum
,,Hagvangur hefur verið að vinna spennandi
verkefni á sviði starfsþróunar í fyrirtækjum.
Markmiðið með slíkum verkefnum er m.a.
að meta styrkleika og veikleika starfsfólks
og aðstoða það við að bæta það sem betur
má fara. Þá höfum við einnig lagt áherslu á
stuðning við stjórnendur til að gera starfs-
mannasamtöl markvissari og árangurs-
miðaðri. Allt þetta stuðlar að því að ná fram
því besta í hverjum starfsmanni og byggja
upp öfluga liðsheild innan fyrirtækja. Þetta
hefur t.a.m. gefið góða raun í fyrirtækjum
þar sem miklar breytingar hafa átt sér stað
og nýir eigendur/stjórnendur tekið við
stjórntaumunum.”
Öryggismál eru nýjung
,,Það tíðkast meira nú en áður að fyrirtæki
leita að nýju fólki án þess að notast við
auglýsingar. Við auglýsum t.d. ekki nema
um 30% af þeim störfum sem við höfum
með höndum.
Öryggismál hafa komið inn sem nýjung
hjá Hagvangi bæði í tenglsum við ráðningar
og starfsþróun. Við höfum innleitt próf
sem meta eiginleika í fari umsækjenda
sem gera þá líklegri en aðra til að valda
slysum. Þannig er með skjótum hætti hægt
að velja úr þá einstaklinga sem líklegastir
eru til að sýna af sér fyrirmyndarhegðun
í öryggismálum. Hvað starfsþróun varðar
höfum við verið að meta styrkleika og
veikleika þeirra sem þegar starfa hjá
fyrirtækinu með tilliti til öryggismála. Þar
hefur markmiðið verið að virkja hvern
starfsmann til að taka ábyrgð og vera
meðvitaður um eigin hegðun. Þetta er
ein öflugasta leiðin til að fækka slysum en
almennt er talið að í 90% tilvika megi rekja
orsök vinnuslysa til þess að starfsmenn
bregðast ekki rétt við aðstæðum eða sýna af
sér óæskilega hegðun.
H
Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs.
NÝJUNGAR Í
ÞJÓNUSTU
HAGVANGUR
,,Það tíðkast meira nú en
áður að fyrirtæki leita að
nýju fólki án þess að notast
við auglýsingar. Við aug
lýs um t.d. ekki nema um
30% af þeim störfum sem
við höfum með höndum.
Brynhildur Halldórsdóttir, nýráðinn
ráðgjafi hjá Hagvangi.
Hagvangur er fyrsta ráð n ingar
þjónustan sem tók til starfa á Íslandi.
Starfs fólk Hagvangs leggur sig fram
við að samþætta hag einstaklinga
og velgengni fyrir tækja og það er því
engin tilviljun að Hagvangur er nú eitt
öflugasta ráð gjafar og ráðningar
fyrirtæki á íslenskum vinnu markaði.
Traust, trúnaður og
fagleg vinnubrögð
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Nýttu þér faglega þjónustu Hagvangs þegar þú leitar að starfsmanni.
Hafðu samband - við ráðum fyrir þig.
• Ráðningar og mönnun
• Fyrirtækjaráðgjöf
• Einstaklingsráðgjöf
• Starfsþróun
• Talent Management
• Námskeið
• Ráðgjöf vegna uppsagna
• Stjórnendaþjálfun
• Starfsferilsráðgjöf
• Hönnun starfsmannavalskerfa
• Stjórnendamat og þjálfun
• Greining á fyrirtækjum og liðsheildum
• Persónuleikapróf og rökhugsunarpróf
• Mats og þróunarmiðstöðvar
Við sinnum meðal annars eftirfarandi:
Hagvangur er aðili að alþjóðasam
tökunum EMA Partners Inter na tional,
Excellence in Executive Search og
dreifingaraðili fyrir bandaríska fyrir
tækið Hogan Assessment Systems.