Frjáls verslun - 01.11.2010, Page 44
44 F R J Á L S V E R S L U N • 1 1 . T B L . 2 0 1 0
B Æ K U R
Unnur Valborg
Hilmarsdóttir fjallar
um bókina The Five
Most Important
Questions You Will
Ever Ask About Your
Organization.
TEXTI: UNNUR VALBORG HILMARSDÓTTIR
MYNDIR: ÝMSIR
Margir strengja áramótaheit og víst er að um áramót hefst nýtt áætlunartímabil flestra fyrir
tækja með fögrum fyrirheitum um bætt vinnubrögð og aukinn árangur. Áramót eru kjörið tæki
færi til sjálfsskoðunar fyrir fyrirtæki alveg eins og einstaklinga.
Bók um fimm mikilvægar
spurningar sem auka árangur:
SJÁLFSMAT Á ÁRAMÓTUM
Bókin The Five Most
Important Quest ions
You Will Ever Ask
About Your Organiz
ation eftir Peter Drucker er frábær
leiðar vísir til sjálfsmats og breytinga
sem nauðsynlegar eru til að ná enn
meiri árangri.
Höfundur Peter Druc k er er mörg um
að góðu kunnur og hefur stund um
verið kallaður „faðir nú tíma stjórn
unar“. Hann fæddist í Vín 1909
en flúði ofsóknir nasista í seinni
heimsstyrjöldinni og settist að í Banda
ríkjunum. Þar lést hann í hárri elli 2005.
Fræðistörf hans á sviði stjórn unar eru
heimsþekkt og hann hefur skrifað
fjölda bóka um ýmis svið hennar.
Síðustu árin einbeitti hann sér að
verkefnum tengdum samtökum og
fyrirtækjum sem ekki eru rekin í
hagnaðarvon (non profit) og bókin
sem hér um ræðir er upphaflega
skrifuð fyrir fyrirtæki af því tagi.
Eins og kemur fram í inngangi á hún
hins vegar síður vel við hefðbundin
fyrirtæki því spurningarnar sem bókin
snýst um ganga út á það að skerpa sýn
fyrirtækjanna og með því auka ár ang
urinn.
Endurútgáfa með mikla vigt
Bókin er endurútgáfa af bók sem út
kom fyrir 15 árum og hefur verið
endurskrifuð að hluta. Í endur útgáf
unni hafa fimm heims þekktir aðilar
lagt hönd á plóg við að gera bókina
enn áhrifameiri en hún var í upphafi.
Jim Collins fjallar um togstreitu
stöðug leika og breytinga innan fyrir
tækja og hvernig fyrirtæki sem eiga
auðvelt með að aðlagast breytingum
viti hverju ekki má breyta.
Philip Kotler leggur áherslu á að
fyrir tæki leggi sig fram við að kynnast
við skipta vinum sínum og gera þá
ánægða í stað þess að reyna að gera
alla ánægða.
Jim Kouzes staðhæfir að allt sem
framúrskarandi leiðtogar geri sé að
skapa virði fyrir viðskiptavini sína.
Judith Rodin og V. Kasturi Rangan
fjalla um áætlanir, þær geti ekki talist
fullnægjandi fyrr en þær skili mæl
anlegri niðurstöðu og séu metnar
ítar lega áður en farið er í næstu áætl
anagerð.
Þegar stórt er spurt
Jim Collins segir á bókarkápu að
góðir leiðtogar hafi svörin á reiðum
höndum en framúrskarandi leiðtogar
spyrji réttu spurninganna. Bókin er vel
til þess fallin að auðvelda leiðtogum
að sinna því hlutverki sínu og alls
ekki víst að þeir hafi öll svörin á reið
um höndum. Spurningarnar geta
því kallað á viðamikla sjálfsskoðun
inn an fyrirtækisins, sem alltaf er
holl, ekki síst þegar krafan um aukin
afköst, lægri kostnað og skilvirkari
vinnubrögð verður sífellt háværari.
B