Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 20
kYnninG20 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
Skatta- og lögfræðisvið Pricewater- houseCoopers hf. (PwC) býður viðskipta-vinum sínum margvíslega
þjónustu á sviði skattaréttar og lögfræði.
Starfsmenn sviðsins hafa mikla reynslu
og yfirgripsmikla þekkingu og veita
viðskiptavinum aðstoð og ráðgjöf varðandi
skattamál innan lands sem og erlendis.
Skatta- og lögfræðisvið stendur einnig
fyrir útgáfu á efni er viðkemur skattarétti
og tengdum málum. „Skattavaktin“ er
mánaðarlegt fréttabréf
þar sem sérfræðingar
PwC skrifa um
skattaleg málefni
og það sem efst er á
baugi þá stundina og
árlega er gefinn út
Skattabæklingur, bæði
á rafrænu formi og prentuðu, þar sem
dregnar eru saman ýmsar skattaupplýsingar
og tölur á aðgengilegu formi. Sviðsstjóri
skatta- og lögfræðisviðs er Elín Árnadóttir:
„Mikill vöxtur hefur orðið á skatta- og
lögfræðisviði á undanförnum árum. Að
mestu hefur þjónustan falist í að
aðstoða fyrirtæki og einstaklinga
í alþjóðlegum skattamálum og
erum við tíu lögfræðingar sem
störfum á þessu sviði í dag, auk
þess sem viðskiptafræðingar
og endurskoðendur vinna
með okkur. Í alþjóðlegum
skattamálum er oft um
erfið túlkunaratriði að
ræða enda geta skattamál
einstakra ríkja verið flókin.
Íslensk skattamál eru oftast
tiltölulega einföld og yfirleitt leyst í
góðri samvinnu við skattyfirvöld án þess að
málaferli þurfi til.“
alþjóðlegt net skattasérfræðinga
„Mikilvægur hluti af starfsemi okkar er
að leiðbeina erlendum fyrirtækjum sem
vinna hér á landi eða eru að koma sér fyrir
og innlendum fyrirtækjum sem vinna
erlendis. Í þessum málum njótum við góðs
af því að vera í stóru alþjóðlegu neti og
við sækjum reglulega námskeið, ráðstefnur
og fundi um alþjóðleg skattamál á vegum
PwC erlendis og erlendir sérfræðingar
PwC koma og vinna með okkur. Er
mjög gott og í raun
lykilatriði þegar
unnið er í alþjóðlegu
umhverfi að hafa
aðgang að þessu stóra
heimsneti og þar með
erum við jafnvíg hvar
sem er í heiminum.
Þess ber að geta að kröfur PwC eru miklar
þegar kemur að þessu samstarfi og okkar
fólk hefur notið mikils trausts í flóknum
verkefnum sem upp hafa komið.“
breytinga er þörf á skattalögum
Elín er spurð hvort skattaumhverfið hér
á landi sé mjög frábrugðið því sem ger-
ist í Evrópu: „Við erum með nokkuð
svipað skattkerfi og önnur Norðurlönd
og eigum að mestu samleið með þeim í
skattamálum. Skattalögin okkar eru að
nokkru leyti byggð á dönsku lögunum og
stundum leitum við í danskar fræðibækur
og dóma þegar íslenskt efni þrýtur. En
þegar á heildina er litið þá eru skattalögin
á Íslandi einfaldari en í flestum öðrum
löndum. Það er í sjálfu sér ekki endilega
til bóta þar sem ýmsar glufur eru í lög-
unum sem valdið geta óþolandi óvissu um
túlkun, flestir vilja hafa það á hreinu hvar
þeir standa, t.d. eiga margir þessir flóknu
Skatta- og lögfræðisvið PricewaterhouseCoopers hf.
Skattaráðgjöf
til fyrirtækja og einstaklinga
Elín Árnadóttir er sviðs-
stjóri skatta- og lög-
fræðisviðs Pricewater-
houseCoopers hf.
einn þáttur í þjónustu
pricewaterhouseCoopers
er skattaráðgjöf til
einstaklinga og lögaðila.
Þessi bæklingur PwC
fylgir Frjálsri verslun
að þessu sinni.