Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 47
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 47
s T U ð U l l
„Að bjarga er ekki endilega besta lausnin.
Það skekkir samkeppnina bæði innan hvers
lands og milli landa,“ segir Jón. „Það eru því
mörg merki um einangrunarhyggju og þrátt
fyrir allt tal um samvinnu ríkja til að leysa
vandann reynir hver að bjarga sér sem best
hann getur.“
Þarna er oft munur á orðum og gerðum.
„Dæmi um þetta var ræða Gordons Brown,
forsætisráðherra Breta, sem talaði um samstöðu
þjóða í sinni ræðu en nefndi ekki að hann beitti
sjálfur hryðjuverkalögum gegn Íslendingum,“
segir Jón.
Jón segir að Brown hafa reynt að sannfæra
ráðstefnugesti um að Lundúnir færu ekki
sömu leið og Reykjavík – verði Reykjavík-on-
Thames. Jón segist einnig halda að Lundúnum
verði bjargað sem fjármálamiðstöð.
rofar til árið 2010
Á framtíðarráðstefnu eins og þessari í Davos
var að sjálfsögðu rætt um hvort hagkerfi okkar
tíma – kapítalisminn – væri að niðurlotum
komið.
„Pútín tók til orða um kapítalismann og
sagðist hafa þekkt annað kerfi áður og það væri
ekki gott,“ segir Jón. „Menn segja stundum að
hvorki lýðræði né kapítalismi séu gallalaus kerfi
en aðrar lausnir hafa reynst miklu verri. Það er
þrátt fyrir allt margt gott í því sem gerst hefur
síðustu ár.“
Núna segir Jón að mestu skipti að fá
peningana aftur inn í hagkerfið. Það þurfi að
bæta reglur um viðskipti og hugsanlega að
hverfa frá ýmsum svokölluðum nýjungum í
starfsemi banka.
„Mestu skiptir að nýjar reglur verði ein-
faldar,“ segir Jón. ,,Það mun ekki rofa til næstu
þrjá mánuðina og ekki næstu sex mánuðina en
eftir 12–18 mánuði ættu menn að hafa fengið
yfirsýn yfir vandann. Það er meira en nú er.“
Jón spáir því engum hagvexti í heiminum á
þessu ári og ekki heldur því næsta.
„Það má ekki gleyma að þetta fjallar mikið
um sálfræði,“ segir Jón. „Væntingar fólks ráða
miklu um hvað gerist. Það eru sálfræðilegar
skýringar á hinum mikla vexti síðari ára og sál-
fræðilegar skýringar á hruninu líka.“
birtir ekki tiL í ár
„Að bjarga er ekki
endilega besta
lausnin.“
Jón er Íslendingur og einn þekktasti maðurinn í viðskiptalífi Noregs.