Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 50
50 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
p i s T i l l s i G r ú n a r
„Nú fyrst skil ég merkinguna í nafninu hans, Made-off (stakk af ) –
hann stakk af með peningana okkar!“ Þetta sagði kona í golfklúbbi
Bernards Madoffs í viðtali við New York Times. Klúbburinn var einn
af stöðunum þar sem Madoff kynntist auðfólki og fékk það til að
fjárfesta í sjóðum sínum. Blaðamaðurinn komst að því að klúbburinn
var klofinn í tvennt: þeir sem Madoff leyfði náðarsamlegast að
fjárfesta hjá sér – og svo hinir sem ekki máttu vera með. Nú er síðari
hópurinn ögn kíminn.
Ein helsta tækni Madoffs var að láta alla vita að sjóður hans
væri bara fyrir fá útvalda. Það gerði fólk enn ákafara að komast í
þennan hóp útvalinna. Það var líka eftir nokkru að slægjast: stöðugur
og viðvarandi hagnaður, 10-12% ávöxtun. Viðskiptavinirnir voru
auðugir einstaklingar, fjárfestingasjóðir jafnt á vegum banka sem
einstaklinga og góðgerðarfélög.
Stórir bankar eins og spænski bankinn Santander hafa orðið að
viðurkenna að þeir hafi fallið fyrir bragði Madoffs. Ýmsir sjóðir
höfðu þó varað viðskiptavini sína við Madoff því þeir skildu ekki
hvernig hann starfaði svo það er ekki hægt að segja að enginn hafi
séð við honum. Þó ekki SEC, bandaríska fjármálaeftirlitið sem
athugaði starfsemina átta sinnum á sextán árum. Þau verða mörg
skaðabótamálin sem spretta á rústum Madoffs. Enn er margt óljóst:
hversu lengi stóð svikamyllan yfir og var Madoff í alvörunni einn að
verki?
Gert út á vini og kunningja
Bernard Madoff fæddist 1938 í gyðingafjölskyldu í New York.
Mamma hans rak fjárfestingasjóð að heiman og er sögð hafa lent upp
á kant við lögin. Sonurinn tók háskólapróf í stjórnmálafræði og not-
aði svo peninga sem hann hafði unnið sér inn við almenn störf til að
setja upp sjóð 1960 sem keypti og seldi hlutabréf. Hann var snjall að
nýta sér tölvutækni og varð áhrifamaður í NASD, samtökum verð-
bréfasala.
Það fór aldrei mikið fyrir Madoff út á við en meðal verðbréfasala
í New York varð hann vel þekktur. Listina að kynnast rétta fólkinu
og rækta sambönd kunni hann til hlítar. Golfklúbburinn var góður
vettvangur og sama var með golfmót og önnur auðmannamót. Eins
og oft er með minni sjóði byggðist öll starfsemin á Madoff sjálfum.
Hann krækti í samböndin og lagði línurnar hvernig starfsemin átti
að vera.
Framan af byggði Madoff upp starfsemina með fé frá auðmönnum,
einkum gyðingum úr eigin kunningjahópi. Madoff tók viðamikinn
þátt í góðgerðarstarfi, gaf venjulega um milljón á ári og var viðriðinn
BernArd MAdOFF:
SvindLarinn
á WaLL Street
Stöðugur hagnaður sem aðrir fjárfestar gátu
ekki leikið eftir. Samt var það ekki fyrr en
að lausafjárkreppan lagðist yfir af þunga að
svikamylla Bernards Madoffs kom í ljós.
texti: sigrún davíðsdóttir