Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 84
84 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
Allar áætlanir okkar riðluðust í banka-
krísunni með þeim afleiðingum að nú
þurfum við að mæta þörfum fyrir-
tækja og stofnana með nýjum og
breyttum áherslum fyrir fólk í breyttu
þjóðfélagi. Fyrirtæki og stofnanir
hafa nú ekki lengur fé í fræðslu og
símenntun. Starfsmannastjórar eru
víða í hremmingum hvað þennan
nauðsynlega þátt áhrærir, enda má segja
að þörfin fyrir fræðslu hafi kannski
aldrei verið meiri en einmitt núna. Til
að koma til móts við þá miklu þörf, sem
blasir við, höfum við verið að sérsníða
fjölda námskeiða að þörfum tiltekinna
fyrirtækja og stofnana,“ segir Erna
Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands.
Fyrirtæki og stofnanir eru núorðið ekki aðeins að sækjast eftir
starfstengdum námskeiðum fyrir starfsmenn sína heldur færist það
í vöxt að óskað sé eftir alls kyns fræðsluefni til að styrkja starfsmenn
og innviði fjölskyldnanna í einkalífinu. Milli sex og sjö þúsund
nemendur sækja námskeið hjá Endurmenntun HÍ á ári hverju.
Endurmenntun, sem fagnaði 25 ára afmæli á síðasta ári, býður
árlega upp á yfir tvö hundruð námskeið og því er óhætt að segja að
flóran sé afar fjölbreytileg. Námskeiðsgjöld hafa í sumum tilfellum
lækkað og laun kennara sömuleiðis auk þess sem fyrirtæki og
stofnanir geta nú lágmarkað kostnað með því að hýsa námskeiðin
hjá sér fyrir starfsmenn sína.
„Við erum með puttana á púlsinum alls staðar, en sjáum,
því miður, bara samdrátt framundan á öllum sviðum. Það
er því nauðsynlegt að vera opin fyrir hvers kyns nýsköpun á
fræðslusviðinu, sem og öðrum sviðum þjóðlífsins, í samstarfi við
okkar fjölmörgu samstarfsaðila, með sveigjanleikann að leiðarljósi.
Við sjáum samdrátt í námi samhliða starfi. Við höfum að sama
skapi orðið að slá af ýmis fjármálatengd námskeið þó gaman sé að
segja frá því að enn er fullt af fólki hér að nema verðbréfaviðskipti.
Og svo er svolítið merkilegt að segja frá því að við urðum að fella
niður námskeið um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja vegna ónógrar
þátttöku strax eftir bankahrunið,“ segir Erna.
Breyting á gildismati
Gildin í samfélaginu hafa líka verið að breytast því nú ráða pen-
ingaleg sjónarmið í minna mæli vali fólks á námskeiðum en áður
enda liggur straumurinn nú miklu fremur í sjálfsrækt og menning-
artengd fög. „Seigla í kjarna sigurvilja“ er námskeið sem við settum
á dagskrá í kjölfar kreppunnar, en á því
ræða sálfræðingarnir Jóhann Ingi Gunn-
arsson og Marteinn Steinar Jónsson
um aðferðir sem hvetja til bjartsýni
og athafnagleði á óvissutímum. Fólk
streymir að á námskeið um ræktun mat-
jurta í heimilisgarðinum. Blússandi
aðsókn er á námskeið í Íslendingasög-
unum. Pílagrímaleiðin til Santiago de
Compostela er afskaplega vinsælt nám-
skeið og Orðspor þjóðarinnar og endur-
skoðun á gildunum í samfélaginu hefur
verið ofarlega á baugi að undanförnu.
Þar fjallar heimspekingurinn Gunnar
Hersveinn um það hvernig einstaklingar
geta lagt öðrum lið og tekið þátt í að
bæta samfélagið sitt, auk þess sem kenndar eru aðferðir til að velja
sér gildi í lífi og starfi og hvernig hægt er að beita sér til að bæta
samfélagið.
Erna segist vera sannfærð um að á endanum komi eitthvað gott
út úr þeim krepputíma, sem þjóðin sé nú í. „Ég held að allt gild-
ismat komi til með að breytast til hins betra. Við erum nú þegar
farin að sjá það á því í hvaða fög fólk sækir hér hjá okkur. Ég er viss
um að þessi þróun muni leiða til agaðri og gagnrýnni þjóðar, sem
láta mun þá af þeim ósið að synda bara með straumnum.“
endurmenntun háskóla íslands
Sjálfsrækt og menning
afsprengi kreppukrísu
„Ég held að allt gildismat komi til með að breytast til hins betra,“
segir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri hjá Endurmenntun HÍ.
Ný launasetning, breyttar
forsendur í starfsmannamálum,
jákvæð breytingastjórn,
lausnamiðuð nálgun, skilvirkari
vinnufundir, jákvæður starfsandi,
vinnusálfræði í þrengingum,
stefnumótun í eigin lífi, skilvirkari
tölvupóstur, tímastjórnun og
streitustjórnun eru allt nýjar
áherslur hjá Endurmenntun HÍ í
kjölfar bankakrísunnar.