Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 107
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 107
því að uppbyggingin muni byggja mjög á því
að við berum gæfu til þess að vinna með
fjölbreyttum hópi fólks en ekki jafn ein-
sleitum og leiddi okkur til hrunsins.
Okkar nálgun er sú að í stað þess að
vera einungis með áhættusækni þá erum
við áhættumeðvituð. Við hugsum ekki bara
um arðsemi í fjárhagslegum skilningi. Það
er: við viljum hagnast – en okkur er ekki
alveg sama á hvern hátt.
Við viljum heilbrigðari fjármálageira,
fyrirtæki sem horfa lengra fram í tímann,
fyrirtæki sem segja hlutina eins og þeir eru.
Ég er þeirrar skoðunar að þau fyrirtæki sem
nýta kraft kvenna í viðskiptarekstri muni ná
að standa sig betur á næstu 5–10 árum, í
heimsskilningi. Ég trúi því að okkar áherslur
séu það sem koma skal og geti leyst þessa
hugmyndafræðilegu kreppu sem við erum í.“
agnes fékk hvatningarverðlaunin
Hvatningarviðurkenningu FKA 2009 hlaut
Agnes Sigurðardóttir, Bruggsmiðjunni
á Árskógssandi. Það voru ekki margir
sem höfðu trú á því að Agnesi og fjöl-
skyldu hennar tæk-
ist að reisa alvöru
bruggverksmiðju á
Árskógsströnd, þegar
hún viðraði fyrst hug-
myndina árið 2006.
Nú fyrir jólin seld-
ist afurð þeirra; hinn
alíslenski Kaldi, hins-
vegar upp í vínbúðum
landsins. Bjórinn er
ógerilsneyddur og syk-
urlaus – og 1. febrúar
mun fyrsti farmurinn af Kalda leggja úr höfn
til Færeyja. Mánuði síðar er gert ráð fyrir
að útflutningur hefjist til Noregs. Agnes er
lifandi sönnun þess hverju ástríða, áræði
og þrautseigja fá áorkað – ekki síst þegar
gefur á bátinn.
guðrún Birna
fékk Þakkarviður-
kenninguna
Guðrún Birna Gísla-
dóttir, forstjóri dvalar-
heimilisins Grundar,
hlaut Þakkarverðlaunin
2009. Hún fæddist
á elliheimilinu Grund;
dóttir hjónanna Helgu
Björnsdóttur og Gísla
Sigurbjörnssonar, sem jafnan var kenndur
við Grund – enda rak hann heimilið frá 27
ára aldri og þar til hann lést 1994. Eftir
hans dag tók Guðrún við stjórnartaumunum
enda Grund sjálfseignarstofnun. Af sömu
hugsjón og mannkærleika hefur Guðrún lei-
tast við að bæta aðstöðu íbúanna og efla
starfið innan heimilisins. Árangurinn hefur
heldur ekki látið á sér standa. Trúlega segir
það þó meira en mörg orð að þegar starfs-
menn Grundar eldast sækja þeir flestir fast
að gerast heimilismenn á Grund. Það má
segja að Guðrún Gísladóttir hafi helgað líf
sitt umönnun þeirra eldri borgara sem búa
á Grund.
Guðrún Birna
Gísladóttir.
Agnes
Sigurðardóttirr.
Agnes Sigurðardóttir og Margrét Kristmannsdóttir.