Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 30
Forsíðugrein
30 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
1. VerÐtrYGGinGin
Vandinn: Verðbólgan er auðvitað meinið. En það er
þetta með eggið og hænuna. Verðtryggingin er líka vandi
sem hækkar skuldir heimila, fyrirtækja og ríkissjóðs. Rústar
greiðslubyrðinni og kemur í veg fyrir nýfjárfestingar, ný
störf og ráðningar fólks í vinnu.
Hvað er til ráða? Frysta vísitöluna í öllum lánasamn-
ingum og aftengja þannig verðtrygginguna í tvö til þrjú ár
til að hreyfa okkur af botninum og koma í veg fyrir náð-
arhöggið þegar verðbólgan fer af stað með gengisfalli krón-
unnar.
Framtíðin: Verðbólgan er að minnka og hún hjaðnar á
næstu tveimur árum. En sprengjan er virk. Þegar gjaldeyr-
ishöftin verða afnumin fellur gengið og útkoman verður
bomba; öflugt verðbólguskot. Það er því forvörn að frysta
vísitöluna.
3. keppni uM FJárMaGniÐ
Vandinn: Það sárvantar fé í atvinnulífið og til að fjármagna fjár-
lagahallann. Það eru engir peningar til. Við blasir því keppni á milli
ríkissjóðs og fyrirtækja um fé lífeyrissjóða og sparifjáreigenda.
Hvað er til ráða? Keppni um fjármagnið (skuldabréfaútboð fyr-
irtækja og ríkisins) bendir kannski ekki til þess að hægt sé að lækka
vexti og afnema verðtryggingu. En hvert á fjármagnið að fara þegar
það eru gjaldeyrishöft? Ekki til útlanda. Það er fast inni í íslensku
hringrásinni. Þess vegna er hægt að lækka stýrivexti niður úr öllu
valdi, sem og frysta vísitöluna í öllum lánasamningum.
Framtíðin: Frjáls utanríkisviðskipti eru forsenda framfara og
skapar hagkvæmustu lausnirnar. En framtíðin er ekki núna. NÚIÐ er
neyðarástand og það er allt læst.
2. krónan
Vandinn: Krónan er ónýtur gjaldmiðill og hefur verið
það lengi. Hún hefur kostað þjóðina harða gjaldeyriskreppu
ofan á allt annað; heimskreppuna. Þá er ónýt króna orsök
ofurhárra vaxta hér á landi og verðtryggingar.
Hvað er til ráða? Því miður er nýr gjaldmiðill ekki í
augsýn. Allt tal um að taka þurfi upp evru til að leysa vand-
ann er gott og gilt – en leysir ekki vandann NÚNA. Evra
er framtíðarmúsík. Fyrst þarf að ganga í Evrópusambandið
og svo að sækja um evruna. Þetta tekur tíu ár. Það þarf hins
vegar að leysa vandann NÚNA. Við verðum að gera það
besta úr krónunni.
Framtíðin: Nauðsynlegt er að taka upp nýjan gjaldmiðil
sem fyrst. Hann er forvörn; forðar þjóðinni frá annarri
harðari gjaldeyriskreppu og leyfir nauðsynlegum vindum
frelsis að njóta sín í utanríkisviðskiptum í stað hafta.
4. húsnæÐi oG heiMili
Vandinn: Þúsundir heimila eru í greiðsluvandræðum vegna verð-
tryggingar, hárra vaxta og erlendra skulda. Þau eru tæknilega gjald-
þrota. Skuldir hafa stóraukist vegna gengisfalls krónunnar og verð-
bólgunnar. Á meðan hefur verð á húsnæði hrunið og húsnæði er óselj-
anlegt.
Hvað er til ráða? Það verður ekki komist hjá því að nokkur þús-
und fjölskyldur missi húsnæði sitt vegna gjaldþrots – en mikilvægt er
að þær missi ekki heimili sín og húsaskjól. Bankar og Íbúðalánasjóður
verða að vera tilbúnir til að leigja fólki aftur það húsnæði sem það
hefur misst.
Framtíðin: Ekki verður hægt að afskrifa skuldir útvalinna heimila.
Það er ekki réttlátt gagnvart öðrum. Fyrst verða þau að fara í gjaldþrot
og gjaldþrot blasir við mörgum. En það er hægt að fækka fleiri gjald-
þrotum á næstu tveimur til þremur árum með því að frysta vísitöluna
í öllum lánasamningum og aftengja þannig verðtrygginguna tíma-
bundið. Jafnt gengur þá yfir alla sem eru með verðtryggingu.
5. FJárlaGahallinn
Vandinn: Fjárlagahallinn nálgast að verða 150 milljarðar króna.
Þetta er nánast óyfirstíganlegur vandi. Samkomulagið við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn gengur út á að snúa þessum fjárlagahalla í plús á
næstu tveimur árum.
Hvað er til ráða?: Þetta er kannski mál málanna. En samt;
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn heldur þjóðinni í herkví með mjög
ströngum skilyrðum. Fram hefur komið að vilji íslensk stjórnvöld
breytingu á skilyrðunum, breytingar sem sjóðurinn geti ekki sætt
sig við þá, sé samstarfinu sjálfhætt. Engin miskunn. En hér má ekki
bugast. Það verður að fá sjóðinn ofan af því að hér séu okurvextir
og hótanir um aukna skattheimtu, sem lendir fyrst og fremst á ein-
staklingum, ef ekki tekst að koma böndum á ríkisútgjöldin. Ekki má
þurrka sjálfa uppsprettuna; atvinnulífið.
Framtíðin: Það verða hrikaleg átök þegar skorið verður niður á
sviði menntamála og heilbrigðismála á næstu tveimur árum. Enn-
fremur mun hrikta í sveitarfélögum sem eru flest á hvínandi kúpunni.
Hér koma tíu atriði sem upprisan af
botninum snýst um. Þessi opna segir
allt sem segja þarf um frystingu vísitöl-
unnar og afnám verðtryggingarinnar.
Hún er málið!
allt sem
segja þarf...