Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 114
114 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
V ið opnuðum veitingastaðinn í des- ember 2006 með það í huga að bjóða Íslendingum sem og erlendum
ferðamönnum upp á ferskan fisk daglega,
lífrænt ræktað meðlæti og heildarhugsun í
næringarfræðilegri útfærslu matarins. Þannig
völdum við að hafa skyr í sósunum, nota spelt
og bygg í deigið og nota aldrei hvítan sykur,
hvítt hveiti eða aukaefni í matargerðina. Repju-
olía er notuð til steikingar og frönskurnar okkar
eru ofnbakaðar í ólífuolíu. Allur maturinn er
unninn hér í eldhúsinu okkar. Ekkert er keypt
fyrirfram matreitt. Við erum svo heilög í
þessari framsetningu að við útbúum jafnvel
gosdrykkina sjálf úr ávöxtum og agave nectar
til að losna við sykur og aspartam,“ segir
Erna Kaaber, sem sagði skilið við fjölmiðla
fyrir rúmum tveimur árum og hóf rekstur
Icelandic Fish & Chips við Tryggvagötu.
„Ég hef frá upphafi sinnt öllum þeim
störfum sem til falla, hvort sem það er uppvask
eða skúringar, hönnun uppskrifta, matargerð
eða markaðsmál. Málningarvinnu, fyrirlestrar
og ferðaþjónusturáðgjöf hef ég einnig
gripið í sem og samningu viðskiptaáætlana,
eldamennsku og framreiðslu. Einhvers staðar
er víst skrifað að sá sem stýrir fyrirtæki þurfi
að kunna skil á öllum stigum þess og störfum.
Það datt kannski úr tísku í hinu svokallaða
góðæri. Ætli það breytist nú ekki eitthvað á
komandi árum.
Þessa dagana erum við að skoða það að
opna veitingastaði annars staðar í heiminum.
Við vorum spenntust fyrir breska markaðnum
þar sem þetta er jú þeirra þjóðarréttur, þó
matreiðslan sé kannski ekki alveg sú sama.
Við hrunið í haust breyttust allar forsendur
og í framhaldinu settum við áhersluna á
Bandaríkin. Þar erum við að skoða svæði
sem virðast vera í uppbyggingu þrátt fyrir
ástandið.
Við vonumst einnig til þess að fleiri ferða-
menn skili sér hingað vegna gengisins. Okkur
finnst eins og það séu fleiri ferðamenn hér
heldur en á sama tíma í fyrra og vonandi
verður sumarið gott. Það hefur verið afar vel
fólk
Erna Kaaber: „Eftir
því sem börnin eldast
eykst skutlið, alls kyns
æfingar og áhugamál
sem þarf að sinna og
þá er afar nauðsynlegt
að eiga góða að enda
ekki alltaf hægt að
komast úr vinnu þrátt
fyrir að ég sé minn
eigin húsbóndi.“
veitingamaður á icelandic Fish & Chips
Erna KaabEr
Nafn: Erna Guðrún Kaaber.
Fæðingarstaður: Reykjavík,
23. maí 1973.
Foreldrar: Sverrir Örn
Kaaber og Svanhildur
Guðmundsdóttir.
Börn: Emilía Sara 13 ára,
Hrafnar 8 ára og Margrét
Klara 7 ára.
Menntun: Stjórnmálafræði
og fjölmiðlafræði.
um okkur fjallað í erlendum miðlum, sér í
lagi í Bretlandi, og það er nú ekki slæmt að
fá hól úr þeirri áttinni.“
Erna á þrjú börn: „Það elsta fermist í vor
og yngri börnin tvö eru bæði farin að reima
skóna sína en við þann áfanga breytist ansi
margt. Ég fæ mikla hjálp með börnin frá for-
eldrum mínum. Eftir því sem börnin eldast
eykst skutlið, alls kyns æfingar og áhugamál
sem þarf að sinna og þá er afar nauðsynlegt
að eiga góða að enda ekki alltaf hægt að kom-
ast úr vinnu þrátt fyrir að ég sé minn eigin
húsbóndi. Stelpurnar æfa listdans á skautum
og ég hef mjög gaman af því að skauta með
þeim. Einkasonurinn er svo í fótbolta en þar
er ég ekki liðtæk. Okkur þykir hins vegar
öllum gott að fara í laugarnar og það gerum
við reglulega saman. Annars finnst okkur
allra skemmtilegast að lesa. Saman eða sitt í
hvoru lagi. Náttborðin okkar eru alltaf full
af bókum og sumir fjölskyldumeðlimir fara
helst ekki úr húsi án þess að hafa eina bók
meðferðis.“
Tækjaleiga Sense býður fyrirtækjum og einstaklingum bestu fáanlegu þjónustu þegar
skipuleggja á viðburð. Hvort sem um tónleika, ráðstefnur, fundi, sýningar eða veislur
er að ræða getur Tækjaleigan veitt bæði búnað og tækniþjónustu fyrir verkið. Með eitt
stærsta framboð búnaðar og helstu sérfræðinga landsins á sínu sviði verður umgjörðin
vel heppnuð.
Við veitum lausnir á sviði hljóð- og myndbúnaðar, ljósabúnaðar, tölvubúnaðar, prent-
búnaðar, túlkabúnaðar og streymiþjónustu yfir netið.
Vertu laus við áhyggjur af tæknimálum og hafðu samband við sérfræðinga okkar
á leiga@sense.is.