Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 72
72 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
HORFT TIL FRAMTÍÐAR
Vefprent er nútíma prent- þjónusta sem tengir saman prentkaupendur og prentsmiðju
á einfaldan og áhrifaríkan hátt í gegnum
internetið. Prentkaupandi sér um
að panta allt sitt prentverk rafrænt á
mjög einfaldan hátt sem leiðir af sér
mikinn tímasparnað og lækkun
prentkostnaðar. Aðgangsstýring tryggir
að mismunandi starfsmenn, deildir og/
eða útibú hafa eingöngu aðgang að
því prentefni sem þeim er ætlað að panta.
Að sögn Arnars Árnasonar, markaðs-
stjóra hjá Odda, er vefprentið með 24
stunda aðgengi í gegnum hefðbundinn
vefvafra sem gefur prentkaupendum
tækifæri til að kaupa prentverk á þeim stað
og tíma sem þeim hentar best:
,,Ekki er þörf á víðtækri tölvuþekk-
ingu því allt viðmót er mjög notendavænt
og auðvelt í notkun. Þar sem allt prentefni
er á einum stað er fullkomin viðskiptasaga
aðgengileg í gegnum vefprentið. Hægt er
að sjá hvað var keypt, hvenær, af hverjum,
hvert það var sent og hvað það kostaði, svo
einhver dæmi séu tekin. Mögulegt er að
nálgast nákvæma skýrslu yfir prentkaupin
aftur í tímann. Þetta hjálpar prentkaup-
endum líka við að ákvarða prentþörfina fyrir
næstu pantanir. Um er að ræða töluverða
hagræðingu í formi lægri prentkostnaðar og
tímasparnaðar.“
Vefprent – nútíma prentkaup
,,Um er að ræða töluverða hagræðingu í formi
lægri prentkostnaðar og tímasparnaðar.“
oDDi
Arnar Árnason
er markaðsstjóri
hjá Odda.
Vefverslun með prentverk•
Allt prentverk á sama stað•
Lægra verð •
Tímasparnaður = dregið úr •
kostnaði
Fullkomin yfirsýn•
24 stunda aðgengi í gegnum •
internetið
Ekki þörf á sérstöku forriti •
Fullkomin viðskiptasaga•
Aðgangsstýring• sem tryggir
að mismunandi starfsmenn,
deildir eða útibú hafa
eingöngu aðgang að sínu efni.
Fljótvirk og áreiðanleg •
skýrsluprentun
Prentsmiðjan Oddi ehf., Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
Framkvæmum
hugmyndir
Vörulýsing: nafnspjöld:300g pappír / bréfsefni: 90g skrifpappír / bæklingar: 150g pappír.
Prentað annars vegar í fullum lit. Vinnslutími er er alltaf 4 virkir dagar. Frá þriðjudegi til
föstudags og svo föstudegi til miðvikudags. Skila þarf gögnum til Odda fyrir kl. 12:00 á
skiladegi og þarf próförk að vera samþykkt fyrir kl. 14:00 sama dag. Varan er tilbúin á
afgreiðslulager Odda að Höfðabakka 7. *Verð er gefið upp án 24,5% vsk.
Birt með fyrirvara um prentvillur.