Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 96
96 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
Verulegur kostnaður getur
falist í kaupum fyrirtækja á
tæknibúnaði fyrir ráðstefnur og
viðburði og því kjósa margir
fremur að leigja búnaðinn.
Tækjaleiga Sense ehf. sérhæfir
sig í tækniþjónustu og leigu á
búnaði fyrir veislur, sýningar,
ráðstefnur, fundi og tónleika.
„Við höfum afar góða
reynslu af uppsetningu á bún-
aði fyrir ýmiss konar viðburði,
svo sem alþjóðlegar ráðstefnur.
Auk þess hefur Sense sérhæft sig
í að streyma fundum um netið,“
segir Gunnar Möller, tæknistjóri
Tækjaleigu Sense.
Hann segir að þeir sem
standi að ráðstefnum, ekki síst
alþjóðlegum ráðstefnum,
þurfi að huga að mörgum
hlutum. „Það þarf að
huga að því hvort
fundurinn fari fram
á mörgum tungu-
málum, hvort nota
þurfi túlkabúnað,
hvort þurfi
hljóð og myndupptöku af fund-
inum; þarf að (streyma) senda
fundinn út beint á netinu og
þurfa fleiri að taka þátt í fund-
inum annarstaðar frá en á fund-
arstað (fjarfundur/videoconfe-
rence)? Þetta eru hlutir sem við
höfum góða þekkingu á.“
Uppsetning fyrir helstu
ráðstefnur landsins
Gunnar segir að sérfræðingar
Sense búi yfir áralangri þekk-
ingu og reynslu í uppsetn-
ingu og innleiðingu á bún-
aði fyrir ráðstefnur og fundi
og að þeir séu vanir að aðlaga
sig að aðstæðum hverju sinni.
„Við höfum ann-
ast tæknimál á
mörgum af
helstu ráð-
stefnum
hér á
landi um
árabil. Má
þar nefna
Nato-ráð-
stefnur,
Norðurlandaráðstefnur (Nor-
den), ráðstefnu Alþjóða Ólymp-
íunefndarinnar, heimsóknir
erlendra þjóðhöfðingja, sjávar-
útvegssýninguna í Fífunni, og
ýmis verkefni fyrir Alþingi,
ferðaskrifstofur og viðburða-
fyrirtæki, bæði innlend sem
erlend. Einnig bjóðum við upp
á heildartækjalausnir fyrir margs
konar viðburði, t.d. veislur, tón-
leika o.fl. “
Spara ferðakostnað
með vefútsendingum
Beinar útsendingar frá fundum
og ráðstefnum hafa færst í vöxt,
að sögn Gunnars. Hann segir
að tæknin geri það að verkum
að hægt er að bjóða útsendingar
fyrir allt að tvö þúsund manns
í gegnum vefútsendingar. Sífellt
fleiri fyrirtæki velja þá leið að
varpa fundum og ráðstefnum
um netið í því augnamiði að ná
til sem flestra starfsmanna eða
viðskiptavina. Þessi lausn hentar
því mörgum fyrirtækjum enda
hefur Sense komið upp slíkum
búnaði hjá fjármálafyrirtækjum,
stofnunum og útflutningsfyr-
irtækjum. Hann segir að lausnin
geti einnig sparað fyrirtækjum
verulegan ferðakostnað.
Mikið úrval
þekktra vörumerkja
Sense ehf. er félag sem býður
stafrænar lausnir fyrir hljóð-
og myndbúnað. Félagið rekur
verslun í Hlíðasmára í Kópa-
vogi og Sony Center í Kringl-
unni. Eitt helsta markmið
Sense er að hanna og þróa full-
komnar tæknilausnir sem eru
einfaldar í notkun. Sense rekur
ráðgjafar- og hönnunardeild,
tækniþjónustu, tækjaleigu og
tvær verslanir. Auk þess starf-
rækir félagið dreifingarmiðstöð
og söludeild í Akralind. Félagið
er umboðsaðili fyrir m.a. Sony,
NEC, Panasonic, Crestron-
stjórnbúnað og annast sölu
og dreifingu á þessum vörum
ásamt vörum frá Canon, Bose
o.fl. til einstaklinga, fyrirtækja
og endursöluaðila. Markmiðið
er að bjóða fyrirtækjum, stofn-
unum og einstaklingum þjón-
ustu á sviði hljóð- og mynd-
vinnslu.
Gunnar Möller, tæknistjóri Tækjaleigu
Sense. Sense ehf. er félag sem býður
stafrænar lausnir fyrir hljóð- og myndbúnað.
Félagið rekur verslun í Hlíðasmára í Kópavogi
og Sony Center í Kringlunni.
Verulegt hagræði að
leigja tæknibúnaðinn
tækJaleiGa sense
Við höfum annast
tæknimál á mörgum
af helstu ráðstefnum
hér á landi um árabil.