Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 36
36 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
netinuAf
Þjóðin stendur frammi fyrir því að efnahagurinn er í kalda-kolum. En gjaldþrotið er ekki bara fjárhagslegt heldur líka siðferðilegt. Margir vilja gera upp við fortíðina og þar virð-ist enginn skortur á því að menn sjái brestina hjá öðrum.
Minna er um að menn finni nokkuð að í eigin ranni. Fátt er þó mik-
ilvægara en að skilja hvað fór úrskeiðis. Ekki til þess að refsa þeim
seku heldur reyna að forðast sömu mistök í framtíðinni. Stjórnmála-
menn geta ekki komist hjá því að skoða eigin störf með gagnrýnum
hætti. Þó að einhver komi fram og segist biðjast afsökunar á því sem
aflaga hafi farið „beri ég einhverja ábyrgð á því“ er slíkt ekkert annað
en kattarþvottur.
Stærstu ástæður fyrir kreppunni eru tvær: Ógætilegur vöxtur bank-
anna og óvarleg útlán til aðila sem tengdust þeim og svo auðvitað hin
alþjóðlega kreppa. Fyrri ástæðan er meginatriði og þar brugðust inn-
lendir eftirlitsaðilar og viðbragðsáætlun vantaði.
Upphaf afglapa
Líklega er upphafið að núverandi hugarfarskreppu að rekja til forseta-
kosninganna 1996. Að þeim loknum sat forsetinn sem kjörinn var
eftir með miklar skuldir sem hægt gekk að greiða. Fulltrúi hans leitaði
þá til Jóns Ólafssonar í Skífunni og Bónusfeðga um fjárstyrk. Honum
var vel tekið og skuldirnar hurfu eins og dögg fyrir sólu. Líklega var
þetta í fyrsta sinn sem viðskiptajöfrar sáu að stuðningur við stjórn-
málamann gat verið hagkvæm fjárfesting.
Um svipað leyti kom Kári Stefánsson heim til Íslands og stofnaði
Íslenska erfðagreiningu. Forsætisráðherra tók honum með kostum
og kynjum og vildi allt fyrir hann gera. Sett var sérstök löggjöf um
gagnagrunn á heilbrigðissviði og fyrirtækinu veitt einkaleyfi til nýt-
ingar grunnsins. Grunnurinn varð aldrei til og einn af yfirmönnum
fyrirtækisins sagði undirrituðum frá því að hann hefði verið nauðsyn-
legur í umræðunni vegna þess að bjóða átti út hlutabréf á almennum
markaði. Nokkrir yfirmenn í fyrirtækinu seldu almennum fjárfestum
sín hlutabréf og högnuðust vel. Almenningur græddi ekki jafnmikið
á kaupunum.
Nokkrum árum seinna var
ríkisábyrgð á lán Íslenskrar
erfðagreiningar samþykkt á
Alþingi að undirlagi forsætis-
ráðherra. Þessi ríkisábyrgð
gekk þvert á öll grundvall-
arsjónarmið Sjálfstæðisflokksins. Hún var reyndar aldrei veitt vegna
þess að hún gekk í bága við alþjóðasamninga Íslands. Gjörð þing-
manna var söm og jöfn.
Auðjöfradekur varð áberandi á 21. öldinni. Þar var áberandi að
ráðamenn virtust velja sér sína uppáhaldsauðmenn. Yfirleitt voru
auðmannavinir forsætisráðherra og forsetans að mestu aðskilin mengi
og mengi forsetans mun stærra. Hann sóttist mjög eftir nánu sam-
neyti við innlenda og erlenda ríkisbubba.
Íslendingar áttu því ekki að venjast síðari áratugi að stjórnmála-
menn sýndu mikla heift í garð þeirra sem þeim mislíkaði við, hvort
sem um var að ræða stjórnmálamenn eða aðra. Hrokafull framkoma
og heift spilla mjög fyrir málefnalegri umræðu.
Tímamót eftir aldamót
Mestu mistökin voru gerð snemma á 21. öldinni. Annars vegar þegar
horfið var frá þeirri stefnu að hafa bankana í dreifðri eignaraðild og
hins vegar með því að banna umræðu um aðild að Evrópusamband-
inu og upptöku nýs gjaldmiðils. Þetta tvennt hefur valdið mestu um
að erfiðleikarnir á Íslandi eru miklu alvarlegri en í nágrannalönd-
unum.
Árið 2002 var boðið út hlutafé í Landsbankanum, um það bil
20% hlutur. Hann seldist á örskotsstundu á dreifðan hóp. Því voru
allar líkur á því að ríkinu tækist að selja þann helming sem enn var í
eigu þess með sama hætti. Forsætisráðherra hafði lýst þeirri skoðun
sinni að setja ætti þak á eignarhlut eins aðila. Af óútskýrðum ástæðum
snerist honum hugur og ráðandi hlutir í Búnaðarbankanum og
Landsbankanum voru seldir í einu lagi, sá fyrrnefndi til vina Halldórs
Ásgrímssonar, hinn til vina Davíðs Oddssonar.
Frjáls verslun birtir hér pistil af heimur.is eftir Benedikt
Jóhannesson, ritstjóra Vísbendingar og framkvæmdastjóra
Heims, um hvar við Íslendingar fórum út af sporinu og hvar
mestu mistökin voru gerð á síðustu árum í atvinnulífinu og
stjórnmálum. Hvað fór úrskeiðis?
texti: Benedikt jóhannesson
Hvar fórUM við
úT af sporinU?
Benedikt Jóhannesson.