Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 80
80 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
A thygli vekur að Samtök iðnaðarins auglýsa eftir fólki til að takast á við tækifæri í iðnaði árið 2012.
Við spyrjum Inga Boga Bogason, sviðsstjóra
mannauðs og menntunar
hjá SI, hvort það sé
raunhæft að auglýsa eftir
fleira fólki í miðri kreppu.
„Við hjá SI teljum
að nú sé rétti tíminn
fyrir ungt fólk að svara
spurningunni: Hvar vil ég
vera eftir þrjú til fjögur ár?
Óvissan í atvinnulífinu er
mikil en það er einmitt
á óvissutímum sem
einstaklingar og fyrirtæki þurfa að setja sér
stefnu. Hvað vil ég? Hvar ætla ég að vera
eftir þrjú ár?“
- Má þá telja víst að til verði fjöldi
starfa í iðnaði fyrir þá sem mennta sig í
iðngreinum?
„Nú þegar, mitt í allri kreppunni, standa
fyrirtæki frammi fyrir tækifærum.
Í málmiðnaði eru t.d. til vel rekin
fyrirtæki sem hafa nóg að gera og mörg
sprotafyrirtæki hafa bætt við sig fólki. Við
viljum ekki að atvinnuleysi sé viðvarandi
ástand. Þegar stjórnvöld segja okkur hvert
við stefnum, þá munu fyrirtækin bæta við
fólki, á næstu mánuðum og árum.“
- Má ekki búast við því að kreppan
verði löng og erfið?
„Svo er okkur sagt – og skynsamlegt að gera
ráð fyrir því en það þýðir ekki að við séum
fórnarlömb. Íslendingar hafa alltaf státað sig
af því að vera frumkvöðlar og gerendur. Við
bíðum ekki eftir tækifærunum heldur búum
þau til.“
- Hvað geta fyrirtæki gert til þess að fá
rétta fólkið til starfa?
„Einmitt núna, þegar þau eru í þrengstri
stöðu, eiga stjórnendur að íhuga hvernig
skynsamlegast er að standa
að nýliðun. Hvað þarf til
að ná settum markmiðum?
Hvers konar fólk þarf
til starfa og hvernig á að
standa að aðlögun nýs
starfsfólks? Þetta held ég
séu mikilvæg atriði.“
- Er ekki aðstaða
fyrirtækja til að móta
eigin stefnu misjöfn,
m.a. varðandi nýliðun?
„Jú. Hægt er að kaupa sérsniðna ráðgjöf en
sem betur fer liggur margt nýtilegt efni á
netinu. Varðandi nýliðun í starfi vil ég nefna
vefrit sem Samtök iðnaðarins og Háskólinn
á Akureyri gáfu út á síðastliðnu ári, Lengi
býr að fyrstu gerð. Aðgangur að því er
ókeypis á slóðinni www.si.is/thjalfun.“
Afskipti Samtaka iðnaðarins af mennta-
málum hafa þann eina tilgang að efla mann-
auð og um leið verðmætasköpun í iðnaði.
Allar tölur sýna jákvæða fylgni milli lífsgæða
og góðs menntakerfis. Þjóðarframleiðsla er
mikil hjá þjóðum með hátt hlutfall mennt-
aðs fólks. Menntakerfið er því mikilvægur
farvegur til að uppfylla þarfir fyrirtækja
fyrir vel menntað og þjálfað starfsfólk.
Það hlýtur að vera sameiginlegt áhuga-
mál atvinnulífs og stjórnvalda, ekki síst
um þessar mundir, að byggja upp mennta-
kerfi sem skilar samfélaginu verðmætum
störfum.“
sAmtök iðnAðrins
Iðnaðurinn þarf fleira fólk
Iðnaðurinn tekur
beinan þátt í
menntastarfsemi, er
bakhjarl Háskólans
í Reykjavík, nýja
Tækniskólans
og IÐUNNAR
fræðsluseturs.
Ingi Bogi Bogason, sviðsstjóri mannauðs og
menntunar hjá SI.