Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 52
52 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
p i s t i l l s i g r ú n a r
hringdu í lögfræðing sem sagði þeim að hafa strax samband við
yfirvöld.
SEC kastaði sér strax út í rannsókn, frysti eignirnar og morguninn
eftir, 11. desember, var Madoff handtekinn á baðsloppnum á heimili
sínu. Þegar lögreglan spurði, eins og tíðkast, hvort hann hefði
einhverjar skýringar svaraði hann að bragði: „Það er engin saklaus
skýring á þessu.“ Þegar lögreglumaður sem sá um skýrslu sá töluna
50 milljarðar spurði hann hvort þetta væri ekki ásláttarvilla – hvort
þetta ætti ekki bara að vera 50 milljónir.
Fréttin olli losti í bankaheiminum. Við núverandi ástand er stærsta
svikamál sögunnar ekki nein óskastaða og enn verra er hve margar
þekktar fjármálastofnanir höfðu látið glepjast. Þar við bætist frægt
fólk eins og Liliane Bettancourt, erfingi L’Oreal og auðugasta kona í
heimi, Nóbelsverðlaunahafinn Elie Wiesel og úr kvikmyndaheiminum
félagarnir Steven Spielberg og Jeffrey Katzenberg, Kevin Bacon og
hin 91 árs gamla Zsa Zsa Gabor. Þar við bætist fullt af venjulegu fólki
sem ekki þekkti Madoff en fjárfesti í sjóðum sem mötuðu hann.
Það er óljóst hversu lengi Madoff hefur rekið svikamylluna;
spurningin er hvort hún hefur staðið í áratugi eða kannski hafist
í samdrættinum upp úr 2000. Víða eru málaferli í uppsiglingu.
Santander-bankinn hefur boðið þeim sem töpuðu á hans vegum
á Madoff takmarkaðar bætur. National Bank of Kuwait er eini
bankinn hingað til sem bætir sínum viðskiptavinum allt tapið, bæði
upphaflegu fjárhæðina og hagnaðinn sem átti að vera. Aðrir velkjast
í vafa um sína stöðu, hafa tekið út meira en þeir lögðu inn, Madoff
var sveigjanlegur – og spyrja hvort þeir eigi þá von á kröfum úr
þrotabúinu.
Var Madoff einn að verki?
Madoff sjálfur nefndi strax töluna 50 milljarðar. Yfirvöld eru þó
ekki komin svo hátt, giska á 27–41 milljarð. Stærsta talan er tap
fjárfestingarsjóðsins Fairfield Greenwich, 7,3 milljarðar, en sá sjóður
skilaði mestu til Madoffs. Náin vinatengsl voru milli Madoffs og
stjórnenda þar og því er spurt hvort þeir hafi verið í vitorði með
honum.
Sami grunur beinist að öðrum. Það kostar líka vinnu að halda
svikamyllu gangandi. Sumir giska á að það hafi þurft allt að 100
manns bara til að sinna nauðsynlegri pappírsvinnu. Rannsókn á að
leiða allt slíkt í ljós.
Madoff er í stofufangelsi en á yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi.
Það munaði reyndar ekki miklu að honum yrði stungið inn þegar í
ljós kom að hann hafði verið að dunda sér í stofufangelsinu við að
senda fjölskyldu og vinum úr og annað glingur upp á milljónir dala.
Það liggur nærri að velta fyrir sér hvers konar manngerð Madoff
sé. Það gefur ákveðna vísbendingu að vinir hans í golfklúbbnum
höfðu hann grunaðan um að gefa ekki upp rétta forgjöf. Hann þótti
oft skapstirður og hreytti illyrðum í krakka sem urðu á vegi hans. Það
gefur kannski í aðra hönd að reka svikamyllu en það bætir greinilega
ekki skapið.
Ýmsir sjóðir höfðu varað við Madoff
því þeir skildu ekki hvernig hann
starfaði. sEC, bandaríska fjármálaeft-
irlitið, rannsakaði starfsemi hans átta
sinnum á sextán árum og sá ekkert
athugavert við hana.
Fjölmiðlar vönduðu Bernard Madoff ekki kveðjurnar þegar
upplýstist um svikamylluna.
NJÓTTU ÞESS AÐ FERÐAST Á EINFALDAN HÁTT
ÞÚ KEMST ÞANGAÐ
MEÐ OKKUR!
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll
www.flugrutan.is
EX
PO
·
w
w
w
.e
xp
o
.is
BSÍ / 101 Reykjavík / Sími 580-5400 / main@re.is / www.re.is