Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 112
fólk
112 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
Hjörtur Örn Hjartarson:
„Því var beint til mín að
sennilega tækist okkur
aldrei að selja vatn í
brúsum á Íslandi, þar
sem kranavatnið væri
svo gott. Ég tók þessu
sem áskorun.“
Nafn: Hjörtur Örn Hjartarson.
Foreldrar: Anna M.
Þorláksson og Hjörtur
Hjartarson
Maki: Hrefna Hrólfsdóttir.
Börn: Arnar 33 ára, Hjörtur
27 ára, Hrafn 22 ára.
Menntun: Verslunarskóli
Íslands, tvö ár í viðskipta-
fræði við HÍ.
selecta fyrirtækjaþjónusta var stofnuð af mér og fjölskyldu minni árið 1994. Ég hafði frétt af starfsemi Selecta AB
í Svíþjóð og hreifst af hugmyndinni. Ég setti
mig í samband við fyrirtækið og í heim-
sókn til Stokkhólms fékk ég að kynnast starf-
seminni,“ segir Hjörtur Örn Hjartarson fram-
kvæmdastjóri.
„Viðskiptamódelið er að sjá fyrirtækjum
og stofnunum fyrir heildarþjónustu við starfs-
menn og viðskiptavini með uppsetningu og
rekstri véla sem afgreiða heita og kalda drykki
og jafnvel samlokur og snarl. Þjónustumenn
Selecta sjá síðan um að vélarnar virki eins og
þær eiga að gera, afgreiða hráefni og fylla á sjálf-
sala þar sem við á.
Þegar við byrjuðum hér á landi þótti mörg-
um þetta nokkuð framandi þar sem menn voru
vanir því að einhver starfsmanna sæi um að
hella upp á kaffið og færi út í búð til að kaupa
hráefni. Þá var kaffið á vinnustöðum oft staðið
og rammt, eftir að hafa staðið á hitaplötu heilu
og hálfu dagana. Menn tóku þessari nýjung
hins vegar opnum örmum og fyrirtækið óx
úr tveggja manna fyrirtæki í byrjun upp í 32
starfsmenn á tiltölulega fáum árum.
Árið 1995 var ég sem oftar á fundi hjá
Selecta AB og þar var m.a. verið að fjalla um
aukna notkun á vatnskælum á vinnustöðum
víða í Evrópu. Því var beint til mín að senni-
lega tækist okkur aldrei að selja vatn í brúsum
á Íslandi, þar sem kranavatnið væri svo gott. Ég
tók þessu sem áskorun og þegar heim kom fór
ég að kanna hjá gosdrykkjaframleiðendum o.fl.
hvort einhver hefði trú á þessu og væri tilbúinn
að sjá um áfyllingu á 19 lítra vatnsbrúsum.
Mér finnst sem ég heyri hláturinn ennþá því
enginn hafði trú á þessu tiltæki. Þá gerum við
þetta sjálf, hugsaði ég. Ég keypti áfyllingarvél
frá Texas, þá afkastaminnstu sem fannst, og við
byrjuðum að fylla á brúsana. Ég lánaði fyrstu
kælana í Íslandsbanka á Kirkjusandi í þeirri
von að þeir myndu vekja athygli þar. Þetta
virkaði því innan fárra daga fengum við fyrir-
spurnir úr öðrum bönkum og fyrirtækjum. Á
fyrsta heila árinu afgreiddum við um 3-400
brúsa á mánuði en með árunum hefur þetta
magn margfaldast. Tilfellið var að góða íslenska
vatnið var stundum ekki gott í stórum byggin-
gum nema það væri látið renna lengi. Einnig
var aðgengið oft ekki sem best, en vatnskæli
með brúsa má staðsetja hvar sem er.
Síðan hafa fleiri möguleikar komið til og
við setjum upp mjög mikið af vatnskælum
sem tengjast við vatnslögn, en eru með ákveð-
num búnaði sem gerir vatnið ferskt og gott. Ég
seldi fyrirtækið fyrir þremur árum til Innnes
ehf. en hef haldið áfram að stýra því sem fram-
kvæmdastjóri.“
Hjörtur stundaði nám í Verslunarskóla
Íslands og lauk þaðan stúdentsprófi 1972 og
var eftir það í tvö ár í viðskiptafræði í HÍ. Með
námi stundaði hann kennslu, m.a. í Hagaskóla.
„Ég er kvæntur Hrefnu Hrólfsdóttur flugfreyju
hjá Icelandair og við eigum tvo syni, Hjört og
Hrafn sem eru 27 og 22 ára. Áður átti ég Arnar
sem er 33 ára.
Hrefna er mikil áhugamanneskja um hunda-
rækt og ræktar hunda af tegundinni Cavalier
King Charles Spaniel. Fljölskyldan á síðan sam-
eiginleg áhugamál sem eru m.a. laxveiði og
matseld. Við fórum síðast öll saman í Langá á
Mýrum í ágúst í fyrra þar sem fór saman gott
veður og ágæt veiði. Ferðir til útlanda eru einn-
ig í uppáhaldi hjá okkur og þar eru Ítalía og
Bandaríkin efst á blaði.“
framkvæmdastjóri Selecta
Hjörtur örn Hjartarson
TExTi:
hilmar
karlsson
MyNDiR:
geir
ólafsson