Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 27

Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 27
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 27 orðum; skattgreiðendur, sem eru að sligast heima hjá sér undan verð- tryggingu og verðbótum, þyrftu líka að standa undir verðtryggingu og stórauknum fjármagnskostnaði ríkissjóðs. Um leið kæmi mikil pressa á ríkisstjórn að hækka skatta almennings til að standa undir þessum auknu álögum – því litla skatta mun ríkið sækja til fyrirtækja eins og staðan í atvinnulífinu er núna. Verðtryggðu húsnæðislánin eru ótvírætt einn versti óvinur íslenskra fjölskyldna. Mörg heimili hafa orðið tæknilega gjaldþrota undanfarna mánuði, eftir fall bankanna. Lánin hafa rokið upp á meðan íbúðaverð hefur hrunið og fjöldi fólks hefur misst vinnuna. Svo ekki sé nú talað um ástandið á þeim heimilum sem tóku erlend myntkörfulán til að standa undir útbólgnu íbúðaverði á tímum útlánaból- unnar. hringrásin má ekki rofna Það má halda því fram að hin bráðnauð- synlega hringrás á milli banka, heimila og fyrirtækja rofni síður ef vísitalan verður fryst í öllum lánasamningum og vextir stórlækkaðir með handafli. Ekkert er eins mikilvægt fyrir atvinnulífið. Það segir sig sjálft að heimili og fyrirtæki, sem fara á höfuðið, eru ekki sterkir greiðendur hjá bönkum, Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum. Í raun þurfa þessar lánastofnanir að afskrifa þessi lán. En hvers vegna ekki að frysta vísitöluna strax ef það mætti koma í veg fyrir frekari gjaldþrot – og þann harmleik sem þeim fylgir? Það væri í sjálfu litlu að tapa fyrir Íbúðalánasjóð, lífeyrissjóðina og bankana sem mega alls ekki við því að 30 til 40 þúsund manns, flest ungt fólk með börn, flýi land eftir gjaldþrot. Eða vegna þess að fyrir- tækin, sem þau vinni hjá og eru hin raunverulega uppspretta lífeyr- issparnaðar í landinu, eru farin á höfuðið vegna verðtryggingar og okurvaxta. Þegar ég hef viðrað þessar hugmyndir mínar um að frysta vísitöl- una og aftengja þannig verðtrygginguna tímabundið hef ég orðið fyrir miklum ákúrum frá kollegum mínum á meðal viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Þá hafa ótrúlega margir stjórnmálamenn og verka- lýðsforingjar sett sig upp á móti því að aftengja verðtrygginguna með því að frysta vísitöluna. Mig furðar raunar hvað margir hagfræðingar og fjárfestar vilja ekki aftengja verðtrygginguna og lækka stýrivexti niður úr öllu valdi í einum grænum til að koma atvinnulífinu á hreyf- ingu og láta það lifa af. Hvaða hluthafar vilja ekki lækka vexti, afnema verðtryggingu og lækka fjármagnskostnað til þess að fyrirtækin sem þeir eiga í dafni betur? Fjárfestar geta ekki endalaust einblínt á skuldabréf, það þarf víst líka að borga af þeim eins og lífeyrissjóðir og fleiri fjárfestar hafa komist að raun um að undanförnu. Verðbólgan á Íslandi er sem betur fer að hjaðna. Hún er þó enn þannig að hún mælist 18% á síðustu tólf mánuðum. Mánaðarhækkunin er minni. En 18% er mikil verðbólga og setur auðvitað alla venjulega skuldara á höfuðið þegar þeir þurfa þess utan í mörgum tilvikum að greiða yfir 10% vexti ofan á verðtrygg- inguna. Þetta er galið í dýpstu kreppu sem riðið hefur yfir lýðveldið Ísland. Vöxtum er yfirleitt beitt gegn eftir- spurnarverðbólgu en á Íslandi hefur um langa hríð verið kostnaðarverðbólga vegna gengishruns krónunnar. Laun hafa lækkað undanfarna mán- uði, bensín hefur lækkað og húsnæðisverð hefur lækkað. Vísitala neysluverðs, sem lánin taka mið af, hefur hins vegar hækkað vegna kostnaðarverðbólgunnar. Þeir sem eru andvígir því að frysta vísitöluna og aftengja þannig verðtrygginguna í lánasamningum hafa sagt að það væri glapræði við núverandi aðstæður og að eina raunhæfa leiðin til að losna við verð- trygginguna og fylgikvilla hennar sé að skipta um gjaldmiðil. Það myndi þyngja lánsklyfjar fólks. Það eru ekki eðlilegir tímar í hagkerfinu. Þess vegna gengur skyndi- hjálpin út á að koma með úrræði NÚNA, annars heitir hún ekki skyndi- hjálp. Að skipta um gjaldmiðil til að losna við verðtrygginguna er fram- tíðarmúsík. Flest bendir núna til þess að ekki verði hægt að skipta um gjaldmiðil fyrir en eftir 10 ár, svo harðir eru hagfræðingar á því að ein- Verðtryggðu húsnæðislánin eru ótvírætt einn versti óvinur íslenskra fjölskyldna. Mörg heimili hafa orðið tæknilega gjaldþrota undanfarna mánuði, eftir fall bankanna. VÍTAHringurinn Verðbólgan að lækka og vextir fylgja eitthvað niður í kjölfarið. Seðlabanki ákveður þá að afnema gjaldeyrishöft. Fjármagnið flýr land og gengið hríðfellur. Verðbólgan fer hratt af stað aftur og menn horfa aftur á vaxtahækkanir. Verðtryggingin setur heimili, fyrirtæki og ríkissjóð í miklu erfiðari skuldastöðu. Aftengd verðtrygg- ing. skuldir hækka ekki vegna verð- bólgu. forVörn:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.