Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Síða 34

Frjáls verslun - 01.01.2009, Síða 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 Forsíðugrein Þ að þótti snjallt þegar Geir H. Haarde, fyrrverandi forsæt-isráðherra, fékk gömlu brýnin Ásmund Stefánsson, Val Valsson og Magnús Gunnarsson til að taka við stjórn-arformennsku í nýju ríkisbönkunum þremur. Valur og Ásmundur voru orðnir pensjónistar og áttu náðuga daga og á margan hátt skrítið að þeir skyldu nenna að taka þetta að sér. Magnús hefur rekið sitt eigið fyrirtæki í ráðgjöf og alþjóðlegum viðskiptum; Capital í Kringlunni. Hann tók m.a. að sér haustið 2003 að leysa upp gamla Eimskipafélagið eftir að nýir eigendur með Björgólf Guðmundsson komu þar við sögu. Núna hafa þeir Magnús og Valur sagt af sér for- mennsku. Þeir voru beðnir með að bíða með það fram yfir aðalfundi bankanna, en þeir gáfu sig ekki. Ásmundur Stefánsson varð formaður stjórnar í Nýja Landsbanka, Valur Valsson í Nýja Glitni og Magnús Gunnarsson í Nýja Kaup- þingi. Þetta byrjaði allt saman ágætlega; „þeir gömlu“ komu inn í bankana sem reynsluboltar í viðskiptum sem áttu að endurreisa bankakerfið. En skyndilega fóru ýmsir boltar að rúlla. Fyrst varð ókyrrð í kringum Ásmund Stefánsson þegar hann skipaði sig tímabundið í starf bankastjóra Landsbanka Íslands eftir að Elín Sigfúsdóttir bankastjóri tilkynnti að hún stæði fast á þeirri ákvörðun sinni að hætta í bankanum í lok febrúar. Ásmundur ætl- aði að brúa bilið á meðan leitað yrði að nýjum bankastjóra. Það að Ásmundur skipaði sjálfan sig í bankastjórastarfið kom flatt upp á Það þótti snjallt þegar geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fékk gömlu brýnin Ásmund stefánsson, Val Valsson og Magnús gunnarsson til að taka við stjórnarformennsku í nýju ríkisbönkunum. Þetta byrjaði allt saman ágætlega; traustir bankamenn af gamla skólanum. En svo kom babb í bátinn. TExTi: gísli kristjánsson • Mynd: geir ólAFsson MaGnús oG Valur sÖGÐu aF sér eitthvert aðgengi að erlendu lánsfé yfirleitt. Þetta hangir því allt saman. Eftir því sem markaðurinn er lokaðri er virði lánasafnsins minna.“ Mun hagkvæmara að fá beinan aðgang að kröfuhöfum Vilhjálmur nefnir sem dæmi fasteignalán til einstaklinga. „Þau eru skrifuð niður og flutt úr gömlu bönkunum í nýju bankana miðað við eitthvert verðmat, einhvern afslátt sem tekur mið af áætluðu gengi, greiðslugetu og veðhæfni eignanna, þ.e. verðmæti eignanna sem standa þarna að baki. Setjum svo að einstaklingur skuldi erlent fasteignalán. Bankinn hans, sem ríkið á, fær t.d. 50% afslátt og setur það inn í efnahagsreikning bankans. Ef ríkið léti þennan afslátt til einstaklingsins þá gæti hann líklega borgað lánið. Ætlar ríkið að koma í gegnum bankann sinn og halda kröfunni í toppi? Þegar einstaklingurinn getur ekki borgað, ætlar ríkið þá að selja húsið á útsölu og afskrifa síðan lánið þannig í gegnum gjaldþrot hjá þessum ein- staklingi? Sömu sögu er að segja með fyrirtækin. Þau væru í betri málum ef þau fengju afsláttinn beint. Mér sýnist þetta ákveðinn ómöguleiki. Það tapa allir á þessu. Miklu betra væri ef einstakling- urinn fengi miklu beinni aðgang að þeim sem á raunverulega þessa kröfu, sem eru lánadrottnar gömlu bankanna. Þannig mætti vinna með þeim. Mér finnst að erlendir kröfuhafar gömlu bankanna eigi að vera hluti af lausninni en ekki aðalvandamálið. Besta leiðin fyrir alla er að virkja þessa kröfuhafa og fá þá til að taka þátt í endurreisn íslenska bankakerfisins. Að mínu mati er lykilatriði að fá þá til að eignast bankana. Það myndi auka verðmætin fyrir alla.“ komu alls staðar að luktum dyrum Vilhjálmur segir að vinna sé nú þegar í gangi hjá erlendum lána- drottnum að skoða þessa leið. „Ég veit ekki nákvæmlega hver staðan er á þessari stundu en það er mjög mikilvægt að mínu mati að þessar breytingar verði sem fyrst. Strax eftir fall bank- anna voru staddir hér á landi tugir ef ekki hundruð fulltrúa þess- ara erlendu fjármálastofnana en það mátti enginn tala við þá. Þeir komu alls staðar að luktum dyrum hjá þeim sem réðu og fóru af landi brott með óbragð í munninum yfir því hvernig var farið með þá. Síðan var byrjað að reyna að virkja þessa erlendu kröfuhafa og því er nú málið komið í vinnslu. Meginmálið er að bankarnir þurfa að vera mjög öflugir og í eigu aðila sem hafa aðgang að erlendu lánsfé. Einungis þannig verður hægt að snúa við blaðinu og koma efnahagslífinu í gang aftur.“ Meginmálið er að bankarnir þurfa að vera mjög öflugir og í eigu aðila sem hafa aðgang að erlendu lánsfé. einungis þannig verður hægt að snúa við blaðinu og koma efnahagslífinu í gang aftur.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.