Frjáls verslun - 01.01.2009, Qupperneq 38
texti: jón g. hauksson • Myndir: geir ólafsson
eftir mestu mótmæli á Austurvelli frá árinu 1949 féll ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar. en var æstur múgurinn eingöngu að biðja um nýjar kosningar? Hvað var
Austurvöllur að segja?
Janúarbyltingin, Búsáhaldabyltingin og Lýðræðisbyltingin. Lík-legast er nafnið Búsáhaldabyltingin að festast í sessi. Bylting á Íslandi, það er ekki á hverjum degi sem það gerist. En hverju
var bylt? Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar undir forystu
Geirs H. Haarde. En var það allt og sumt? Var æstur múgurinn ein-
göngu að biðja um nýjar kosningar? Varla. Það telst ekki mikil bylting
að stjórnarslit verði á Íslandi og efnt sé til nýrra kosninga.
Hvaða skilaboð var þá Austurvöllur að senda frá sér? Það er í raun
ekki alveg á hreinu. Flestir túlka það svo að þar hafi verið ósk um
nýja stjórnarskrá sem tryggi betur aðskilnað löggjafarvalds og fram-
kvæmdavalds! Ósk um nýja tíma, nýja hugsun. En vilja menn fara
frönsku og bandarísku leiðina, sem er að forsætisráðherra landsins
verði kosinn beinni kosningu og velji sjálfur fólk í ríkisstjórn með sér?
Að minnka þannig flokksræðið við myndun ríkisstjórna. Því hefur
verið haldið fram að stjórnmálamenn á Íslandi, hvar í flokki sem þeir
standa, taki hagsmuni flokka sinna fram yfir hagsmuni þjóðarinnar.
Austurvöllur var örugglega að biðja um eitthvað meira en nýjar kosn-
ingar í apríl. Hvað þá? Kannski mótmælendur viti ekki nákvæmlega
hverju þeir vilja breyta. Nema: Að þeir vilja breytingar.
Eftir mótmæli laugardag eftir laugardag við Alþingishúsið við
Austurvöll sauð upp úr þriðjudaginn 20. janúar svo að um munaði.
Austurvöllur logaði. Bálköstur við Alþingishúsið, það er ekki dagleg
sjón. Lögreglan beitti táragasi gegn mótmælendum og var það í fyrsta
sinn frá árinu 1949 þegar inngöngu Íslands í NATO var mótmælt.
Mótmælin héldu áfram miðvikudaginn 21. janúar, eldar loguðu,
steinum var kastað, óeirðalögregla varði Alþingishúsið, táragasi var
beitt, slasaðir lögreglumenn, slasaðir mótmælendur. Átökin bárust
upp að Þjóðleikhúsinu þar sem Samfylkingin í Reykjavík hélt fund
um að slíta stjórnarsamstarfinu.
Upp úr stjórnarsamstarfinu slitnaði að morgni mánudagsins 26.
janúar og baðst Geir H. Haarde forsætisráðherra lausnar síðar um
daginn. Samfylkingin rauf stjórnarsamstarfið, segja sjálfstæðismenn.
Forsetinn fól Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylk-
ingar, umboð til stjórnarmyndunar en óformlegar viðræður höfðu þá
verið í gangi í einhverja daga á milli frammámanna í báðum flokkum
eftir að nýr foringi Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, hafði lýst því yfir að Framsóknarflokkur myndi styðja
minnihlutastjórn þessara flokka.
Minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns
framboðs tók við völdum sunnudaginn 1. febrúar undir verndarvæng
Framsóknarflokksins.
Eftir stendur: Er byltingin að baki eða rétt að byrja?
Hvað saGði aUsTUrvöllUr?
38 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9