Frjáls verslun - 01.01.2009, Síða 51
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 51
p i s t i l l s i g r ú n a r
mörg góðgerðarfélög. Fé úr þeirri átt varð trygg tekjulind. Mörg slík
félög hafa nú misst allt sitt fé, þökk sé Madoff.
Með tímanum vatt orðspor Madoffs og öll starfsemin upp á sig.
Undanfarin ár var orðið víðtækt net sjóða sem sóttu fjárfestingar og
dældu áfram til Madoffs. Þegar komst upp um hann voru margir sem
álitu að málið væri þeim óviðkomandi, höfðu jafnvel aldrei heyrt um
hann en komust svo að því að sjóðir sem þeir höfðu lagt peningana
sína í höfðu fjárfest hjá Madoff.
Óljós aðferðafræði
Á áttunda áratugnum lýsti Madoff fjárfestingaraðferð sinni í
viðtali við Wall Street Journal og sama gerði hann iðulega síðar í
kynningarbæklingum. Aðferðin líktist vogunarsjóðum að því leyti
að áhættan var minnkuð með gagnaðgerðum. Þar sem honum
vegnaði vel að því er virtist voru margir fjárfestar sem fylgdust með
fjárfestingarhreyfingum Madoffs.
Margir létu blekkjast af óljósu tali hans en þeir sem fóru í saumana
á fjárfestingum hans gátu þó með engu móti skilið hagnaðinn eða
náð því sama. Jöfn og stöðug ávöxtun þótti grunsamleg en sá grunur
varð aldrei annað en taut nokkurra sérfræðinga. Enginn virtist spá
í að endurskoðandi þessarar umfangsmiklu starfsemi var gamall
endurskoðandi uppi í sveit með þrjá aðstoðarmenn sem ekki voru
endurskoðendur.
Öðru hverju náði þetta taut þó eyrum fjármálaeftirlitsins, SEC, og
öðru hverju gerði eftirlitið úttekt á Madoff. Sagt er að starfsemi hans
hafi alls verið athuguð átta sinnum á sextán árum en allt kom fyrir
ekki. Einn keppinautur Madoffs sem hafði legið yfir hverri hreyfingu
hans reyndi eins og hann gat að fá SEC til að gera ærlega úttekt á
Madoff, starfsemin gæti bara ekki staðist, en allt kom fyrir ekki.
Það sem nú hefur komið í ljós er að svo virðist sem Madoff hafi
aldrei fjárfest neitt. Hann tók bara fé nýrra aðila og notaði til að
greiða arð til þeirra sem voru þar fyrir. Þetta var því eins og risastór
keðjubréfakeðja. Af því arðurinn var svo góður og reglulegur og af
því menn vissu að það væri erfitt að komast að hjá Madoff voru ekki
margir sem tóku fé sitt út. En þeir sem gerðu það fengu orðalaust
ávísun upp á eign sína hjá Madoff.
Keðjukreppa Madoffs
Madoff hafði byggt upp starfsemi í nokkrum hlutum. Sjálfur hélt
hann utan um sjóðinn sem hann kallaði vogunarsjóð og sá um
fjárfestingarnar. Þar unnu um 20 manns, um 100 manns unnu við
hlutabréfasölu sem tengdist ekki sjóðnum og svo voru tæplega 30
manns sem unnu við fjárfestingar í London. Ýmis skyldmenni unnu
hjá Madoff, meðal annars synir hans tveir, Mark og Andrew, bróðir
Madoffs og bróðurdóttir. Andrew hafði sitt fé í sjóðum föðurins en
það athyglisverða er að Mark tók sína peninga út fyrir átta árum.
Þar sem hreyfingar í sjóðum Madoffs byggðust á fé sem kom
inn var ljóst að um leið og færri kæmu inn og fleiri drægju féð út
væri spilið búið. Madoff fór líklega að finna fyrir þessu strax og
lánsfjárkreppunnar fór að gæta upp úr miðju ári 2007. Allt síðastliðið
ár barðist hann við að greiða þeim sem fóru með því að fá inn meiri
fjárfestingar. Nú voru það stóru sjóðirnar sem hann leitaði til en
róðurinn var þungur.
Í byrjun desember sagði Madoff sonum sínum að hann væri ekki
viss um að eiga fyrir kröfum upp á sjö milljarða dala. Þegar synirnir
fréttu 9. desember að pabbinn ætlaði að borga starfsfólkinu kaupauka
bönkuðu þeir upp á hjá honum á skrifstofunni daginn eftir. Það gæti
ekki staðist að borga kaupauka en eiga ekki upp í kröfur. Madoff
sagðist ekki treysta sér til að tala um þetta á skrifstofunni en skyldi
ræða við þá um kvöldið. Hann fór í jólaveislu starfsmannanna þar
sem hvorugur sonanna mætti og hitti þá svo heima hjá sér síðar um
kvöldið.
Engin saklaus skýring
Það kvöld játaði hann fyrir sonunum að féð væri uppurið, hann
hefði aldrei fjárfest heldur bara haldið keðjukerfi gangandi þar sem
50 milljarðar dala hefðu farið í súginn. Madoff sagðist ætla að gefa
sig fram en vildi fyrst borga 200–300 milljónir í kaupauka. Synirnir
Ein helsta tækni
Madoffs var að láta
alla vita að sjóður hans
væri bara fyrir fáa
útvalda. Það gerði fólk
enn ákafara að komast
í þennan hóp útvalinna.
Spilaborgin fallin. Lögregla færir Berard Madoff til yfirheyrslu, 11. desember 2008.