Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 56

Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 56
56 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 Efnahagshrunið á Íslandi hefur ýmsar hliðar. Ein þeirra varð starfsfólki Microsoft Íslandi ljós upp úr miðju síðasta ári en varð átakanlegri eftir því sem leið á haustið. „Við höfum skipulagt og haldið utan um ferðir íslensks tæknifólks á stóru Microsoft-ráðstefnurnar á borð við TechEd og Convergence, sem haldnar eru árlega í Bandaríkjunum og Evrópu. Þetta eru mikilvægir viðburðir fyrir þá sem starfa í þessum geira, þar sem þarna er fjallað um nýjustu þróun og nýjungar sem tæknifólk þarf að kunna skil á til að dragast ekki aftur úr í samkeppninni. Árið 2007 fóru um 350 Íslendingar á þessa viðburði. Árið í fyrra fór rólega af stað en svo fóru afpantanirnar að streyma inn. Á endanum fóru ekki nema 60 manns á ráðstefnurnar erlendis árið 2008 – sem er yfir 80% hrun frá árinu á undan,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi. „Copy-paste“ ráðstefna Þessi þróun kemur í sjálfu sér ekki á óvart, enda þurftu fyrirtæki og stofnanir á Íslandi bæði að skera verulega niður um leið og kostnaður við utanlandsferðir hækkaði upp úr öllu valdi í kjölfar falls krónunnar. Engu að síður er ástæða til að vera uggandi yfir þessu því símenntun er einn lykilþáttanna í að standast keppinautunum snúning á hinum alþjóðlega upplýsingatæknimarkaði. „Við gátum ekki setið hjá og hreinlega horft á íslenskt tæknifólk dragast aftur úr erlendum keppinautum og það á tímum sem beinlínis krefjast þess að upplýsingatæknigeirinn á Íslandi komi sterkar inn við uppbyggingu atvinnulífsins. Þess vegna ákváðum við að efna til okkar eigin ráðstefnu hérna heima og fá til liðs við okkur marga af helstu fyrirlesurunum sem hafa tekið þátt í stóru alþjóðlegu ráðstefnunum. Það má eiginlega segja að við höfum gert svona „copy-paste“, svo maður noti vafasama íslensku,“ segir Halldór. Úr varð „Það besta frá TechEd og Convergence“, tveggja daga ráðstefna sem haldin var á Grand Hóteli um miðjan janúar síðastliðinn. Fyrirlesarar voru bæði sjóaðir erlendir sérfræðingar frá Microsoft sem fluttu sömu fyrirlestra og þeir höfðu flutt á stóru ráðstefnunum erlendis og eins kynntu fulltrúar íslenskra fyrirtækja, sem hafa vakið athygli fyrir hugbúnaðarþróun, starfsemi sína. Ákveðið var að hafa ókeypis aðgang til að tryggja að allir sem áhuga hefðu á efninu gætu sótt ráðstefnuna óháð fjárhag. Viðbrögðin framar vonum Viðbrögð íslenskra tæknimanna, forritara og stjórnenda sýndu svo um munaði að þörf var á þessu framtaki. Alls sóttu um 850 manns Stærsta ráðstefna í upplýsingatækni á Íslandi var haldin í janúar: RÁðstefnan flutt inn fyRst ÍslendingaRniR komust ekki út Ráðstefnan var vel sótt. RÁÐSteFNUR MyNdiR: geir ólafsson
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.