Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 57
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 57
ráðstefnuna, sem gerir hana að þeirri stærstu sem haldin hefur
verið í upplýsingatækni á Íslandi frá upphafi. Viðtökurnar voru
framar vonum og starfsfólk Microsoft Íslandi þurfti að beita allri
sinni skipulagshæfni til að ná að halda utan um viðburðinn.
Ráðstefnan skiptist í þrjár línur báða dagana; ein fyrir
forritara, önnur fyrir tæknimenn og sú þriðja fyrir stjórnendur.
Þar sem aðgangur var ókeypis var brugðið á það ráð að láta
gesti skrá sig í hvern fyrirlestur fyrir sig eftir áhugasviði. Það
reyndist lykilatriði í skipulagningunni því þannig var hægt að
raða fyrirlestrum í hentuga sali eftir fjölda skráðra gesta og halda
skráningum opnum lengur en ella.
Vinsælastur var fyrirlestur um Windows 7, næsta stýrikerfi
Microsoft, og Windows Server 2008 R2, næstu útgáfuna af
netþjóni Microsoft. Jafnframt vöktu fyrirlestrar Miha Kralj, eins
helsta fyrirlesara Microsoft á heimsvísu, mikla athygli. Hann
fjallaði m.a. um hvernig búast megi við að tækniþróunin verði
næstu tíu árin, auk þess að frumflytja fyrirlestur sem saminn var
fyrir ráðstefnu í Bandaríkjunum sem haldin var mánuði eftir
íslensku ráðstefnuna.
strax komnar fyrirspurnir um næsta ár
Halldór segir að sjaldan hafi starfsfólk Microsoft Íslandi fengið
jafngóð viðbrögð, ekki bara frá ráðstefnugestum heldur líka
fyrirlesurum. „Erlendu fyrirlesararnir höfðu á orði að sjaldan
hefðu þeir orðið varir við jafnmikinn áhuga hjá ráðstefnugestum
og trúðu varla hversu margir hefðu mætt. Einn þeirra greip til
höfðatölureiknings og sagði að til að halda sambærilega ráð-
stefnu í Bandaríkjunum þyrftu hátt í milljón gestir að sækja ráð-
stefnu þar í landi. Fréttir af þessu bárust hratt innan Microsoft
og við erum þegar farin að fá fyrirspurnir frá þeim sem vilja taka
þátt á næsta ári.“
Mögulegt sóknarfæri í ráðstefnugeiranum:
auðsóttara að fá erlenda
fyrirlesara og gesti
Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi, segir
að vel megi búast við að fleiri fylgi í kjölfar Microsoft og flytji
inn viðburði og ráðstefnur til að bregðast við erfiðu árferði
í efnahagslífinu. „Viðburðir sem þessir skipta miklu máli í
upplýsingatækni, en það eru margar aðrar greinar sem þurfa ekki
síður á stöðugri símenntun að halda til að starfsfólk geti haldið í
við nýjungar og staðið sig í alþjóðlegri samkeppni. Þess vegna er
ekki bara hægt að klippa bara á allt sem tengist ráðstefnusókn og
símenntun heldur þarf að leita nýrra leiða á borð við þá að færa
viðburðina hingað heim.“
Halldór bendir á að gríðarlegar kostnaðarhækkanir við ferðalög,
ráðstefnugjöld og uppihald erlendis á niðurskurðartímum setji
fyrirtæki og stofnanir í erfiða stöðu. „en það eru tvær hliðar
á þessum peningi. Lágt gengi hér á landi þýðir að þátttaka
útlendinga í ráðstefnum á Íslandi þarf ekki að kosta jafnmikið og
áður, hvort sem um fyrirlesara eða gesti er að ræða. Ísland hefur á
nokkrum mánuðum orðið tiltölulega „ódýrt“ land fyrir ferðamenn og
jafnvel svolítið meira spennandi en áður, í ljósi mikillar umfjöllunar
heimspressunnar um ástandið hér á landi. Í ljósi þessa ætti
jafnvel að felast sóknarfæri fyrir íslenska ráðstefnuhaldara – þörfin
fyrir símenntun hefur sjaldan verið jafnmikil hér á landi um leið og
auðveldara ætti að vera en áður að fá erlenda gesti.“
Halldór Jörgensson,
framkvæmdastjóri
Microsoft Íslandi.