Frjáls verslun - 01.01.2009, Side 59
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 59
Þórkatla Aðalsteinsdóttir. „Það hjálpar í þessu millibilsástandi að hreyfa sig, borða hollan mat, hitta skemmtilegt og jákvætt fólk, sinna
áhugamálum sínum og líta á atvinnuleitina sem vinnuna sína.“
„Við hjá Lífi og sál hittum margt kvíðið og
smeykt fólk. Óvissan var algjör og þarf af
leiðandi óöryggið mikið.“
Þáttur áfallahjálpar, bæði hvað varðar
einstaklinga og hópa, hefur að sögn
Þórkötlu snaraukist; hún segir þó að vegna
efnahagsástandsins spari margir við sig
sálfræðiviðtöl ef þeir þurfa að borga fyrir
þau sjálfir.
„Fólk, sem hefur misst vinnuna, finnur
fyrir minnkandi sjálfstrausti, óöryggi, fælni
við að taka ákvarðanir og verkkvíða. Smæstu
mál verða að stórmálum. Oft talar fólk í
þessari stöðu um veikari sjálfsmynd og erfitt
oft að ná aftur í gömlu jákvæðu myndina
um drífandi og áhugaverða manneskju.
Það hvað við störfum er stór partur af því
hvað við erum – allavega erum við vön að
líta þannig á og það er heilmikil kúnst að
aðlagast nýrri stöðu og finna virði sitt þrátt
fyrir atvinnuleysi.“
Ekki endir heldur kaflaskipti
Þórkatla beitir hugrænni atferlismeðferð og
jákvæðri sálfræði. Um er að ræða samtals-
meðferð en þá er verið að aðstoða fólk við
að finna sjálft leiðir og síðan er því hjálpað
að feta þær. „Þessar leiðir felast kannski
mest í hugarfarinu – að breyta um viðhorf
sem hjálpar viðkomandi í stöðunni og finna
styrk sinn og möguleika.
Fólk sem kemur hingað og hefur nýlega
orðið fyrir því áfalli að missa vinnuna missir
eðlilega innra jafnvægi um stund og upp-
lifir sterkar og erfiðar tilfinningar. Það er
svo í verkahring okkar sálfræðinganna að
aðstoða fólk við að ná jafnvægi á ný. Það
gerum við með ýmsu móti, til dæmis með
því að hjálpa fólki við að endurskilgreina
og endurorða það sem gerðist og sjá atburði
á hlutlægari hátt en það gerir það viðráð-
anlegra að komast yfir áfallið. Það að missa
vinnuna þýðir að við lendum á krossgötum
og þurfum að setja okkur ný markmið.
Það er auðvitað mikið álag en það er líka
spennandi. Galdurinn er að ná að horfa á
það þannig og trúa því. Í stað þess að líta
á atvinnumissi sem lokun og endi er betra
að líta á hann sem kaflaskipti. Það gagnast
okkur best og hjálpar okkur að ná betri
líðan og krafti á ný.“