Frjáls verslun - 01.01.2009, Page 70
70 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
HORFT TIL FRAMTÍÐAR
Mývatnssveit er tilvalinn staður fyrir fundi og ráðstefnur enda staðsett miðsvæðis miðað við
norður- og austurhluta landsins.
Á Hótel Reynihlíð ríkir sú kyrrð og
friður sem nauðsynlegur er fyrir fundahöld
og þar er aðstaðan eins og best verður á
kosið.
Skipuleggjum ýmsar spennandi ferðir
Hlutafélag var stofnað um rekstur hótelsins
árið 1961 og hefur það verið í eigu sömu
fjölskyldu alla tíð. Hluthafar í dag eru Pétur
Snæbjörnsson, Erna Þórarinsdóttir, Páll Kr.
Pálsson og Byggðastofnun.
Að sögn Péturs Snæbjörnssonar
hótelstjóra er kjörið að funda í hinu friðsæla
og fagra umhverfi Mývatnssveitar:
,,Ráðstefnu- og fundarsalur okkar rúmar
allt að 60 manns. Salurinn er ferhyrndur
að lögun með tveimur gluggum sem
vísa í austur og þá er auðvelt að byrgja.
Til reiðu eru töflur: hvítar og svartar,
einnig slidessýningarvél og skjávarpi og
sýningartjald.
Við kappkostum að bjóða gestum okkar
upp á ýmsar spennandi ferðir, t.d. að öllum
helstu náttúruperlum sveitarinnar, svo sem
hverunum, Grjótagjá, Dimmuborgum og
Kröflu, að ógleymdum Dettifossi en á þessu
ári opnast þangað nýr vegur sem verður
opinn allt árið. Við höfum milligöngu um
og skipuleggjum jeppa- og vélsleðaferðir
Friðsælt og fagurt fundaumhverfi
HótEl rEyniHlÍð
Jarðböðin við Mývatn laða að sér mikinn fjölda gesta.