Frjáls verslun - 01.01.2009, Síða 82
82 F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9
HORFT TIL FRAMTÍÐAR
S igríður Snævarr sendiherra og María Björk Óskarsdóttir viðskipta- fræðingur eiga heiðurinn af hug-
myndafræðinni „Nýttu kraftinn“ sem leggur
áherslu á að atvinnulausir nýti tíma sinn og
kraft á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.
Sigríður Snævarr, sem var sendiherra
í Svíþjóð og Finnlandi þegar þar var
mikið atvinnuleysi, brást strax við í
kjölfar bankahrunsins og þróaði með
sér fyrstu hugmyndina sem síðar varð
„Nýttu kraftinn“ á grundvelli reynslu
sinnar. Nánir vinir hennar í Svíþjóð
höfðu misst vinnuna og hún þekkti því
vel vanda þeirra sem verða atvinnulausir
að ósekju, það er missa atvinnuna í
tilviljunarkenndum hópuppsögnum þar
sem hópum einstaklinga er sagt upp vinnu
óháð frammistöðu og tilviljun ræður hvort
menn halda vinnu eða missa hana. Sigríður
hafði fljótlega samband við Maríu Björk
Óskarsdóttur, sem þá var nýbúin að missa
vinnuna í einum bankanna, og María
heillaðist strax af hugmyndafræðinni sem
þær hafa þróað frekar og fylgt sjálfar.
Áhugasviðspróf og mentorar
Nýttu kraftinn felst í að 10–15 manna
hópur atvinnulausra einstaklinga hittist
tvisvar sinnum. Hver og einn fær mentor
sem hann hittir svo á tveggja vikna
fresti í allt að þrjá mánuði. Félögum
í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur
býðst að sækja námskeiðið/ferlið sér að
kostnaðarlausu og má búast við að svo verði
um félaga í öðrum stéttarfélögum en ferlið
er rétt að byrja.
Í upphafi ferlisins hittist hver hópur í um
þrjá tíma þar sem hugmyndafræðin er kynnt
og gögn afhent, boðið er upp á fyrirlestur
um sorg og sorgarferli
tengt atvinnumissi,
talað er um
starfsráðgjöf, ferilskrá,
tengslanet og eftirfylgni
og þátttakendur taka
Strong-áhugasviðspróf,
til dæmis á vegum
Háskólans í Reykjavík.
Þátttakendur hitta
síðan mentorana
sem koma frá hinum
ýmsu fyrirtækjum og
stofnunum þjóðfélagsins. Hlutverk þeirra er
meðal annars að hvetja þann atvinnulausa
áfram, veita aðhald og leggja honum lið eins
og kostur er.
Hópurinn hittist svo aftur þremur og sex
vikum síðar. Niðurstöður áhugasviðsprófsins
eru þá kynntar, farið er yfir farinn veg og
skipst á skoðunum um hvernig hefur gengið
og þá verður boðið upp á fyrirlestur og/eða
óvæntan viðburð.
Þess má geta að fleiri en leiðbeinendur
verða viðstaddir þegar hópurinn kemur
saman en það geta verið stuðningsaðilar úr
atvinnulífinu, fulltrúar sjálfboðastarfs eða
aðilar frá háskólum og kirkjunni.
Mappan
„Þátttakendur skuldbinda sig til að verja
fjórum klukkutímum á dag í eitthvað sem
þeir geta sannað að þeir hafi gert,“ segir
Sigríður en hver og
einn fær möppu þar
sem hann safnar í alls
kyns gögnum þar að
lútandi. Um nokkurs
konar ferilskrá er að
ræða. „Það ýtir á fólk
að halda sínum gamla
farvegi. Á sumum
líkamsræktarstöðum
og sundstöðum er til
að mynda hægt að
fá staðfestingu á því
að mætt hafi verið á staðinn, viðkomandi
getur þess vegna tekið til í geymslunni og
tekið myndir fyrir og eftir því til sönnunar
og það er hægt að hjálpa nágranna sínum
við að klippa tré og taka mynd af því.
Það er margt hægt að gera sem mönnum
dettur ekki í hug að væri vinna en er vinna
þó það sé ekki borgað fyrir hana. Það er
mikilvægt að hugsa þannig. Sjálfboðavinna
er til að mynda vinna en hún er vottuð
hjá Rauða krossinum. Það er hægt að setja
í ferilskrána. Það sama er að segja um
diplóma sem fólk getur fengið eftir að hafa
„nýttu krAftinn“ fyrir AtvinnulAusA:
HVeR dAgUR seM
VINNUdAgUR VæRI
tExti: svava jónsdóttir • mynD: geir ólafsson
Mikilvægast er að
forðast einangrun og
mentorarnir okkar
eru leið til að halda
sér í tengslum við
vinnumarkaðinn með
því að hitta mentorinn á
hans vinnustað.