Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 85
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 85
Til að snúa vörn í sókn og tileinka sér
aðferðir stefnumótunar í eigin lífi gætu menn
haft erindi sem erfiði með því að kynna sér
námskeið um þetta efni hjá Endurmenntun
HÍ. Þátttakendum er þar kennt að leggja mat
á eigin veikleika og styrkleika, stíga út fyrir
hefðbundna þægindaramma og auka völd sín
og áhrif. Námsfyrirkomulag er í formi fyr-
irlestra, umræðna og
heima-
verkefna auk þess sem
nemendum er fylgt
eftir þremur mánuðum
síðar til að meta hvernig
markmiðasetningin
hefur til tekist.
„Markmiðasetning
snýst um stefnu-
mörkun í eigin lífi. Ég
kenni fólki að setja sér
markmið og taka þar með rétt skref í átt að
draumum sínum og þrám. Fólk lítur í eigin
barm, stoppar við og hugsar með sér hvað
það hefur verið að gera og hvert skuli stefna.
Ég býð fólki upp á ferðalag til að skoða sjálft
sig og nota þrautseigjuna sem hjálpartæki á
þessari vegferð. Í kreppu- og krísuástandi eru
það nefnilega fyrst og síðast viðhorf fólks sem
skapa því ný tækifæri ef menn eru tilbúnir
að opna hugann og spyrja nýrra spurninga.
Hver einstaklingur fær fullt af vöggugjöfum
við fæðingu sem nýta má á lífsleiðinni. Það
má hins vegar alltaf velta því fyrir sér hvort
bankastarfsmaður sé til dæmis að vinna í
banka af tómri innri þörf eða hvort hann
myndi vilja vera að gera eitthvað allt annað.
Stundum getur atvinnumissir verið léttir
fyrir fólk, sem ekki finnur sig í viðkomandi
hlutverki. Ég er því á námskeiðinu hálfgerð
ljósmóðir, stend á hliðarlínunni með réttu
verkfærin og hjálpa fólki við að stilla sig
af og meta stöðu sína í réttu ljósi og í takt
við raunveruleikann,“ segir dr. Árelía Eydís
Guðmundsdóttir, dósent
við viðskiptadeild HÍ.
Árelía kennir á nám-
skeiði Endurmenntunar
HÍ sem ber yfirskriftina
„Stefnumótun í eigin
lífi: Snúðu vörn í sókn“.
Það hóf göngu sína
skömmu eftir banka-
hrunið og er bæði ætlað
atvinnulausum og vinn-
andi fólki, sem vill skoða
svolítið sjálft sig upp á nýtt og í takt við
tíðarandann. Hvert námskeið stendur yfir
í þrjá morgna og hittist hver hópur svo að
afloknum þremur mánuðum til að fara yfir
markmið sín og setja sér ný.
Tímamót og tækifæri
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur
öðlist þekkingu á eigin veikleikum og styrk-
leikum, setji sér markmið að bættum árangri
í lífi og starfi og kynni sér þau viðhorf og þá
hegðun sem einkennir þá sem ná árangri.
Kynntar eru til sögunnar ýmsar kenningar
sem settar hafa verið fram um leiðtogafærni í
eigin lífi, ásamt því að fjallað er um þá þróun
og umræðu sem átt hefur sér stað um það
hvernig einstaklingar geta beitt leiðtogafærni
á sem árangursríkastan hátt á sjálfan sig sem
og starfsumhverfi. Sérstök áhersla er lögð á að
kynna ólík hugtök og sjónarhorn til að takast
á við þau vandasömu verkefni sem stjórn-
endur þurfa að glíma við og sem einstakl-
ingar þurfa að glíma við í sjálfum sér. Þátt-
takendur setja sér markmið á öllum sviðum
lífs síns, en sérstaklega er lögð áhersla á að
skilja og þekkja hugtakið vald út frá þeirri
hugmyndafræði að taka völdin í eigin lífi
og starfi. Að námskeiðinu loknu er gert ráð
fyrir að þátttakendur hafi öðlast meiri þekk-
ingu á eigin verðleikum, komi betur auga á
mögulegar hindranir, sem á vegi þeirra verða,
og læri hvernig komast megi yfir þær. Þátt-
takendur gera stefnukort út frá eigin lífi, eftir
bók Árelíu „Móti hækkandi sól, lærðu að
virkja kraft vonar og heppni í lífi þínu“.
„Námskeiðið var fyrir mig mjög gagnlegt
og hjálpaði mér að setja nýjan fókus á sjálfa
mig,“ segir Sólveig Sigurgeirsdóttir, sem fékk
uppsagnarbréf í bankahruninu eftir að hafa
verið starfandi sem verkefnisstjóri í tölvudeild
Landsbankans í eitt ár. „Námið hefur hjálp-
að mér til að byggja upp kjark til að takast
á við ný viðfangsefni enda hafa markmiðin
mín nú tekið allt aðra stefnu en áður. Ég lít á
atvinnumissinn nú sem tímamót og tækifæri
og fannst ég ljónheppin að lenda inn á svona
stuttu og hnitmiðuðu námskeiði á hár-
réttum tíma,“ segir Sólveig og bætir við að
flestir þátttakendurnir á námskeiðinu hafi
verið í tölu atvinnulausra. Hópurinn ákvað í
kjölfar námskeiðsins að halda áfram að hittast
vikulega í húsnæði Endurmenntunar til að
bera saman bækur sínar og sýna hvert öðru
stuðning í verki á krepputímum.
Lærðu að þekkja þína
eigin veikleika og
styrkleika með því að
setja þér raunhæf mark-
mið í leik og starfi. Með
því móti má snúa vörn í
sókn og fyrr en varir ertu
orðinn leiðtogi í eigin lífi.
Solveig Ýr Sigurgeirsdóttir og Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir. Á námskeiði hjá Árelíu lærði
Solveig að hlusta á sjálfa sig og setja sér ný markmið eftir atvinnumissi.
Hver ein-
staklingur
er leiðtogi
í eigin lífi
stefnumótun