Frjáls verslun - 01.01.2009, Blaðsíða 111
F R J Á L S V E R S L U N • 1 . T B L . 2 0 0 9 111
Danny Boyle stofnar
sjóð fyrir leikara sína
Slumdog Millionaire sem Danny Boyle
(Trainspotting, 28 Days Later) leikstýrir
hefur fengið frábærar viðtökur, bæði áhorf-
enda og gagnrýnenda og er ein mest
verðlaunaða kvikmynd ársins. Myndin
er gerð eftir þekktri skáldsögu Vikas
Swarup, sem kom út í íslenskri þýðingu
fyrir tveimur árum, undir heitinu Viltu
vinna milljarð?
Hún fjallar um indverskan ungling
sem tekur þátt í spurningaleiknum Hver
vill verða milljónamæringur og var tekin í
Mumbai á indlandi. Í mörgum hlut-
verkum eru ung indversk börn sem flest
eru frá mjög fátækum fjölskyldum og eiga
ekki bjarta framtíð hvað varðar menntun
og störf. Boyle hefur ekki gleymt þessum
börnum og í kjölfar vinsælda mynd-
arinnar hefur hann stofnað sjóð þeim til
handa. Mun sjóðurinn tryggja að börn-
in fái alla þá menntun sem í boði er fyrir
þau og fjárhagslegt sjálfstæði að loknu
skólanámi kjósi þau að mennta sig enn
meira. Þess má geta að þegar fólk á
vegum Boyles fór að leita uppi börn-
in fannst ekki Azharuddin ismail, sem
leikur aðalpersónuna þegar hún er barn
að aldri. Þegar Azza loks fannst var hann
meðal betlara, sofandi ofan á bílþaki.
Danny Boyle með leikurum sínum við
tökur á Slumdog Millionaire.
Yfir landamærin
Ekki hefur mikið farið fyrir Harrison Ford
að undanförnu, hann hefur aðeins leikið
í tveimur kvikmyndum á síðustu fimm
árum, Firewall og Indiana Jones and the
Kingdom of the Crystal Skull. Ford hefur
þó ekki sagt skilið við kvikmyndirnar
og síðar á árinu verður sýnd Crossing
Over, dramatísk spennukvikmynd þar
sem þemað er ólöglegir innflytjendur
í Bandaríkjunum og aðlögun þeirra að
samfélaginu í Los Angeles. Ford leikur
landamæravörð sem kemst á snoðir um
víðtæka glæpastarf- semi. Helstu mót-
leikarar Fords eru Sean Penn, Ray Liotta
og Ashley judd. Leikstjóri er Wayne
Kramer og skrifar hann handritið, eftir
handriti stuttmyndar sem hann hafði áður
gert og vakti athygli.
Harrison Ford í hlutverki landamæra-
varðar í Crossing Over ásamt Alica Braga.
tvöfeldni
julia Roberts hefur aðallega verið í móð-
urhlutverki á síðustu árum enda á hún
þrjú lítil börn með eiginmanni sínum
Daniel Moder og er mikið stúss í kringum
þau. Hún hefur þó leikið í einni kvikmynd
á ári og kvikmynd hennar þetta árið er
Duplicity, þar sem mótleikari hennar
er Clive Owen en þau léku saman eft-
irminnilega í Closer. Hér leika þau njósn-
ara sem verða að snúa bökum saman
við uppljóstrun á erfiðu máli. Samstarfið
er ekki auðvelt þar sem þau höfðu átt í
ástarsambandi fyrir nokkrum árum sem
endaði ekki vel. Aðrir leikarar eru m.a.
Paul Giamatti og Tom Wilkinson. Leikstjóri
er Tony Gilroy (Michael Clayton). julia
Roberts mun halda sínu striki og kvik-
myndin með henni árið 2010 verður The
Friday Night Knitting Club, sem lítið annað
er vitað um en að hún er byggð á skáld-
sögu eftir Kathleen jacobs og fjallar um
saumaklúbb í New york.
og er ekki annað hægt að segja en að hann endi
ferilinn með glæsibrag. Í upphafi leikferilsins
átti Eastwood erfitt uppdráttar, en hreppti gott
hlutverk í sjónvarpsseríunni Rawhide. Ekki
hafði það áhrif á feril hans í kvikmyndum og lék
hann í mörgum kvikmyndum meðfram því að
leika í Rawhide, yfirleitt án þess að nafns hans
væri getið. Það var ekki fyrr en með spaghetti-
vestrunum þremur, í leikstjórn Sergio Leones,
sem Eastwood festi sig á spjöld sögunnar og er
ferill hans glæsilegur hvort sem litið er til hans
sem kvikmyndaleikara eða leikstjóra, en hann
leikstýrði sinni fyrstu kvikmynd, Play Misty For
Me, árið 1971.
Þær kvikmyndir sem Eastwood hefur leik-
stýrt hafa fengið misjafna aðsókn, sumar góða
aðsókn, aðrar ekki, en aldrei hafa þær fengið
slæma dóma og það er meira en sumir af frem-
stu leikstjórum dagsins í dag geta státað af.
Hverjar eru bestu kvikmyndirnar sem Clint
Eastwood hefur leikstýrt? Því er vandsvarað en
upp í hugann koma The Outlaw Josey Wales, The
Unforgiven, The Bridges of Madison County, Mys-
tic River, Million Dollar Baby og Letters From
Iwo Jima.
Við látum Clint Eastwood eiga síðustu orðin
sem er svar hans við þeirri spurningu hvers
vegna hann ætlar að hætta að leika: „Þegar þú
ert búinn að vera jafnlengi og ég í bransanum
og enn fær um að gera þitt besta er gott ráð að
hætta. Þú vilt ekki verða eins og hnefaleikakappi
sem hefur verið of lengi í hringnum og ósjálfrátt
er farið er að vorkenna honum.“
KViKMyNDAFRÉTTiR
Clint Eastwood
í hlutverki Walts
Kowalskis, ásamt
nýliðanum
Bee Wang, sem
leikur Thao.