Frjáls verslun - 01.04.2007, Page 71
F R J Á L S V E R S L U N • 4 . T B L . 2 0 0 7 71
í það minnsta yfir ákveðinn tíma. Stefnan felur einmitt í
sér afstöðuna um þann sérstaka ávinning sem fyrirtækið
hefur að bjóða viðskiptavininum í samkeppni við önnur
fyrirtæki í atvinnugreininni og það hvernig ávinningurinn
á einstakan hátt er búinn til af fyrirtækinu í samstarfi við
viðskiptavininn og aðra hagsmunaaðila.
Algengast er að hugsa um stefnu sem tilgreinda og
skjalfesta. Mikilvægt er að átta sig á að stefna fyrirtækis
er líka til staðar í huga og höndum fólksins í fyrirtækinu.
Það að draga fram árangursríka stefnu í fyrirtæki, breiða
hana út og tryggja stefnumiðaða framkvæmd hennar er
vandasamt viðfangsefni og mikil áskorun fyrir þá sem bera
ábyrgð á stjórnun fyrirtækja, ekki síst vegna þess að fólkið
sem kemur að hverju fyrirtæki er margt og formfestan
í framsetningu á stefnu er mismikil. Stjórnendur hvers
konar stofnana, félaga eða samtaka standa frammi fyrir
sambærilegri áskorun.
HUGMYNDIR, LÍKÖN OG SAMSKIPTI
Sérhvert fyrirtæki hefur viðskiptahugmynd fyrir hverja þá
vöru og þjónustu sem boðið er upp á. Viðskiptahugmynd-
ina þarf að prófa í viðskiptalíkani sem þarf að sýna jákvæða
afkomu. Vinnslulíkan útlistar síðan hvernig tiltekin vara
verður til í fyrirtækinu og henni dreift til viðskiptavina.
Vinnslulíkan fyrir þjónustu sýnir hvernig þjónustan
verður til og hún veitt í samstarfi við viðskiptavini. Þess
utan er samkeppnislíkan sem dregur fram sérstöðu vör-
unnar eða þjónustunnar á markaðnum og hvernig best
megi tryggja viðskipti til bæði skemmri og lengri tíma.
Árangurinn veltur svo á skipulagi viðkomandi fyrirtækis
og því stjórnkerfi sem á að tryggja samstillingu starfsins.
Stefnan bæði markast af og hefur áhrif á þetta innra sam-
hengi sem hér er lýst.
Grunnurinn að fyrirtæki eru þau verðmæti sem það
býr til og gefur af sér. Fyrirtæki þarf að eiga erindi við við-
skiptavini og færa þeim nýtilegar afurðir. Samskipti við við-
skiptavini þurfa ávallt að vera í samræmi við það sem þeir
vilja og eru tilbúnir að borga fyrir. Fyrirtæki þarf jafnframt
að eiga góð samskipti við starfsmenn og gjalda þeim það
sem þeim ber, það þarf ávallt að vera í sátt við samfélagið
og einnig þjóna eigendum sínum og veita þeim eðlilega
ávöxtun. Eðli málsins samkvæmt er afstaðan og áherslurnar
í ofangreindum þáttum kjarni í stefnu sérhvers fyrirtækis.
Það er farsælt fyrir öll fyrirtæki að gæta vel að eðlilegu
jafnvægi í samskiptum við hagsmunaaðila sína og það er
grundvallaratriði fyrir stöðu og ímynd fyrirtækis í nútíma-
samfélagi að sýna af sér gegnheila samfélagsábyrgð.
STEFNA Á DÝPTINA OG BREIDDINA
Stefna til framtíðar er yfirgripsmikil afstaða til þess sem
fyrirtæki vill vera og vill verða. Stefnan hefur að geyma
lykilhugmyndir um starfsemi og þróun fyrirtækisins í því
umhverfi sem það starfar í. Stefnan er leiðbeinandi og
hún gefur fyrirtækinu ÁTTINA í starfseminni. Starfsfólk
fyrirtækisins þarf að vita hvað er norður, austur, suður og
vestur í starfseminni. Segja má að MEGINSTEFNA fyrir-
tækis sé lýsandi fyrir þá átt sem haldið er í. Framsetning á
stefnu er mismunandi á milli fyrirtækja. Mörg minni fyrir-
tæki hafa ekki formlega stefnu meðan flest stærri fyrirtæki
fara reglulega yfir stefnu sína og birta hana með einhverjum
hætti. Meginmálið er að stefnan sé skýr og sterkast er þegar
forstjóri fyrirtækisins leiðir starfið með ótvíræðum hætti.
Starfsfólk er hreyfiaflið í sérhverju fyrirtæki. Árangur fyrir-
tækis veltur á vilja og hvatningu starfsfólksins. Fyrirtæki
hafa fjölbreytta starfsemi á ólíkum mörkuðum og stærð
fyrirtækja er mismunandi. Vegna þessa flækjustigs er ávallt
nauðsynlegt að skyggnast dýpra í STEFNUNA og stilla
henni upp eftir mismunandi flokkum eða þáttum, sem eru
ólíkir að umfangi.
Hér má nefna heildarstefnu, viðskiptastefnu, rekstr-
arstefnu og stefnu fyrir einstaka starfsþætti s.s. starfs-
mannamál, fjármál og markaðsmál. Afstaðan, sem birtist
í hverjum stefnuflokki á hverjum stað, á hverju sviði og í
hverjum þætti, snertir allt fólkið í fyrirtækinu og öll önnur
verðmæti fyrirtækisins. Sú afstaða sem birtist í allri stefnu
fyrirtækisins er í eðli sínu kvik en tekur þó mismiklum
breytingum yfir tíma.
Vegna lagskiptingar í skipulagi fyrirtækja, mismunandi
umfangs í starfsemi þeirra og þeirrar dýptar sem stefna
þarfnast er ljóst að samstilling er mikilvæg. Menning innan
fyrirtækis, starfsandi og siðir, skiptir miklu fyrir samstill-
inguna.
S T J Ó R N U N
Mynd 1: Hvert stefnir fyrirtækið?
STEFNAN
N
S
V A
© RSS