Frjáls verslun - 01.07.2009, Page 40
40 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 9
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, og Árni Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs N1 og hugmyndasamkeppninnar,
segja að markmið samkeppninnar sé að hvetja fólk og fyrirtæki til
nýrrar sóknar og uppbyggingar um allt land og leysa nýjar hugmyndir
úr læðingi. „Spurningin sem Íslendingar standa frammi fyrir núna er
þessi: Hvernig komumst við út úr efnahagsvandræðunum? Lausnin
felst í aukinni verðmætasköpun þjóðarinnar. Með þessari hugmynda-
samkeppni vill N1 laða fram hugmyndir sem geta skapað aukin
verðmæti fyrir þjóðarbúið.“
Viljum tala kjark í þjóðina
Að sögn Hermanns sat framkvæmdastjórn N1 löngum stundum
og velti fyrir sér hvernig fyrirtækið gæti látið gott af sér leiða eftir
efnahagshrunið í október síðastliðnum. „Eitt af því sem okkur fannst
vanta var að einhver talaði kjark í þjóðina og gerði henni grein fyrir
því að það væri ekki öllu lokið þrátt fyrir erfiða tíma. Upp úr því
kviknaði sú hugmynd að efna til málþings um hvað framtíðin bæri í
skauti sér og hugmyndasamkeppni um góð viðskiptatækifæri. Fram-
kvæmdastjórn fyrirtækisins var sammála um að reyna að hvetja skap-
andi fólk og frumkvöðla á öllum sviðum til að koma fram með sínar
viðskiptahugmyndir og við myndum síðan veita viðurkenningar fyrir
bestu hugmyndirnar að mati dómnefndar og vera sigurvegurunum
innan handar við að koma þeim á framfæri. Vonin er sú að með sam-
keppninni komi fram arðbærar viðskiptahugmyndir sem geta skapað
störf og verðmæti fyrir þjóðina.
Hugmyndasamkeppnin er heimasmíðuð og ólíkt öðrum svip-
uðum samkeppnum er hún algerlega opin og óbundin. Í mörgum
keppnum að þessu tagi eru sett skilyrði um framsetningu ítarlegrar
viðskiptaáætlunar og það dregur kjarkinn úr mörgum frumkvöðlinum
sem annars hefði tekið þátt. Við lítum aftur á móti svo á að það
eigi allir að geta tekið þátt hvort sem þeir kunna að setja fram
viðskiptaáætlun eða ekki. Á Íslandi er urmull af hæfileikaríku fólki
sem kann mögulega ekki að setja fram viðskiptaáætlanir en býr yfir
góðum hugmyndum sem vel má virkja og við viljum ekki loka á
þátttöku þess fólks.“
Hugmyndasamkeppni fyrir alla
Árni segir að keppnin sé öllum opin. „Uppleggið er að fram komi
hugmyndir sem skapi verðmæti fyrir þjóðfélagið. Þetta er ekki keppni
um viðskiptaáætlanir heldur viðskiptahugmyndir, allt frá þeim
einföldustu upp í þær flóknari. Samkeppnin er ekki bara hugsuð fyrir
nýútskrifaða viðskipta- eða verkfræðinga heldur alla sem telja sig búa
yfir góðri hugmynd. Það er mjög auðvelt að taka þátt í samkeppninni
og eftir að hugmynd er komin inn leitum við eftir nánari upplýs-
ingum ef við teljum slíkt nauðsynlegt fyrir matsvinnu dómnefnd-
arinnar. Fullum trúnaði er heitið og innsendar hugmyndir eru áfram
eign höfundanna.“
Í júní s.l. stóð N1 fyrir málþingi í Borgarleikhúsinu sem hét
Start09 og í tilefni þess voru fengnir til landsins tveir erlendir frum-
kvöðlar, Salem Samhoud og Jeff Taylor, til að deila reynslu sinni
Framleiðum
hugmyndir
Hugmyndasamkeppnin Framleiðum hugmyndir
er annar áfangi verkefnisins sem N1 stendur
fyrir og nefnist Start09 og hófst með hugmynda-
fundi í Borgarleikhúsinu í júní síðastliðnum.
texti: vilmundur hansen
MyNd: geir ólafsson og gunnar sverrisson
HugMyNdaSaMkeppNi N1:
Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, og Árni Stefánsson, framkvæmdastjóri
vörustjórnunarsviðs N1 og hugmyndasamkeppninnar.
Hugmyndasamkeppnin Framleiðum hugmyndir
er öllum opin og er fyrst og fremst samkeppni
um góðar hugmyndir en ekki framsetningu fjár-
hagsáætlana.