Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2005, Síða 96

Frjáls verslun - 01.02.2005, Síða 96
96 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 5 AMERÍSKIR DAGAR Umsvif Vélasviðs Heklu hafa aukist jafnt og þétt síðustu misseri - og sem fyrr er sala og þjónusta á vélum og tækjum frá Cater- pillar mikilvægur hluti starfseminnar. „Markmiðið er að veita viðskiptavinum okkar bestu þjónustu sem völ er á. Stór hluti af velgengni okkar er það traust sem viðskiptavinir sýna. Slíkt er ómetanlegt. En ekki er sjálfgefið að ná einum besta árangri í heiminum við sölu Caterpillar, miðað við mark- aðsstærð, eins og gerðist hér á landi í fyrra. Þetta var engu að síður raunin og við fengum sérstaka viður kenningu framleiðandans fyrir árangur og erum ákaflega stolt af því,“ segir Ásmundur Jóns- son, framkvæmdastjóri Vélasviðs Heklu. Framkvæmdir kalla á þjónustu Höfuðstöðvar Caterpillar eru í Peoria í Illinois í Bandaríkjunum. Starfsemin teygir þó anga sína um heim allan og verksmiðjur eru víða, svo sem í Evrópu, Asíu, Suður-Ameríku, auk Bandaríkjanna. Mest af þeim vélum sem Hekla selur hér á landi eru framleiddar í Evrópu en ýmsar stærri vélar koma þó frá Band- aríkjunum og Suður-Ameríku. Caterpillar framleiðir flestar gerðir vinnuvéla, svo sem traktorskröfur, belta- og hjólagröfur, jarðýtur, hjólaskóflur, veghefla, námutrukka, liðtrukka og fleira. Áhrif stórframkvæmda í landinu hafa sett sitt mark á rekstur Vélasviðs Heklu. Framkvæmdir til að mynda á Austurlandi: við Kára- hnjúkavirkjun og álver í Reyðarfirði hafa kallað á meiri þjónustu og athygli og samhliða því hefur sala véla og tækja aukist. Á liðnu ári voru alls fluttar inn til landsins um 320 nýjar vinnuvélar, stórar og smáar og árið 2003 var innflutningurinn um 350 vélar í heildina talið. Þetta er ríflega helmingi meiri en gerist í meðalári. Hlutdeild Cater- pillar á markaðnum hvort ár um sig var um fjórðungur. Áreiðanleiki og gæði „Flest stærri verktakafyrirtæki landsins eru í hópi ánægðra viðskiptavina okkar. Stjórnendur þeirra leggja áherslu á áreiðanleika og gæði tækjanna og þjónustu við þau og eiga að geta gengið að slíku vísu hjá okkur,“ segir Ásmundur. Innflutningur og sala á Caterpillar lyfturum hefur einnig verið í örum vexti. „Við lögðum ekki áherslu á þennan markað að ráði fyrr en Caterpillar í öndvegi VÉLASVIÐ HEKLU HF. Tryggvi Jónsson, forstjóri Heklu og Ásmundur Jónsson, framkvæmdastjóri Vélasviðs Heklu. „Flest stærri verktakafyrirtæki landsins eru í hópi ánægðra viðskiptavina okkar.“ árið 2001. Það ár var Caterpillar með 5% markaðs- hlutdeild í sölu lyftara hér á landi en núna erum við komin upp í rétt tæp 20% af kökunni. Línan hefur verið nánast beint upp. Þetta er ánægjuleg þróun og í fullu samræmi við þann árangur sem fyrirtækið hefur náð í heild sinni. Heildarvelta vélasviðsins í fyrra var rúmir 3,2 milljarðar og hlutur Caterpillar er um helmingur af því,“ segir Ásmundur. Vélasvið Heklu selur einnig Caterpillar afl- vélar í skip og báta – sem og rafstöðvar fyrir landnotkun og annast þjónustu við þessi tæki. Árangur hefur verið mjög góður, þó markaðurinn hafi heldur dregist saman undanfarin ár. Stærsti jarðbor landsins, Geysir, sem er í eigu Jarðbor- ana, er knúinn af þremur stórum Caterpillar raf- stöðvum, sem framleiða alls rúmlega 3 MW. Rafstöðvar þessarar gerðar eru einnig í notkun víða um land hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum. Þjónustunet um allt land Fyrir hálfu öðru ári fluttist aðsetur Véla- sviðs Heklu frá Laugavegi 170 í Klettagarða 8-10 í Reykjavík. Alls er aðstaðan 4.350 fermetrar og þjónustuverkstæðið þar er búið fullkomnasta búnaði sem býðst. „Við erum með þjónustunet um allt land, en auk þjónustumiðstöðvarinnar við Klettagarða erum við með aðra slíka undir merkjum Heklu á Austurlandi ehf. á Reyðar- firði, sem við eigum og rekum í samvinnu við heimamenn eystra. Þá er Vélasvið Heklu einnig með þjónustu og varahlutalager við Kára- hnjúka þar sem við sinnum vélum helstu verktaka við framkvæmdir þar. Í samstarfi við Trukkinn ehf. á Akureyri er veitt þjónusta á Norðurlandi,“ segir Ásmundur sem bætir því við að þjónusta við atvinnutæki sem næst vinnusvæðum skipti sköpum fyrir verktaka- fyrirtækin. Því fyrr sem hægt er að bregðast við, því greiðar gangi verkin, frátafir verði minni og verulegir fjármunir sparist. Þungavinnuvélar seljast sem aldrei fyrr. Hag- kvæmar lausnir, góð aðstaða og frábær þjón- usta hjá Vélasviði Heklu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.