Ægir - 01.07.2002, Page 26
24
F Y R I R T Æ K J A K Y N N I N G
Skaginn hf.
Bakkatúni 26
300 Akranes
Sími: 430 2000
Fax: 430 2001
Veffang:www.skaginn.is
Sigurður G. Sigurðsson, framkvæmdastjóri.
Uppsjávarkerfi frá Skaganum hf.
Á liðnum árum hefur Skaginn hf.
unnið að mikilli endurhönnun á
kerfum fyrir vinnslu á uppsjávar-
fiski. Á þessum tíma hefur fyrirtæk-
ið sett upp vinnslukerfi, bæði í landi
og á sjó. Má þar nefna vinnslukerfi
hjá Ísfélagi Vestmannaeyja, um
borð í Vilhelm Þorsteinssyni EA,
Þorsteini EA og nú er í vinnslu kerfi
fyrir Hannover EA. Nú er verið að
vinna að uppsetningu brettunar-
kerfis hjá Skinney-Þinganes á Höfn
í Hornafirði auk þess sem unnið er
að stórum verkefnum í Noregi og
Bandaríkjunum.
Vigtarkerfi
Það sem er sammerkt í þessum kerfum
er að þau byggjast upp úr einingum sem
unnt er að raða saman. Vigtarkerfið er af-
kastamikið og nákvæmt. Sem dæmi um
afköst kerfisins má nefna að um borð í
skipum með 100-150 tonna frystingu á
sólarhring er aðeins eitt vigtarkerfi. Að-
ferðin sem Skaginn notar við vigtunina
byggir á því að skipta vigtuninni í tvö
þrep. Megin hlutinn er vigtaður í trog, en
fínvigtun sett sér. Ef skammturinn er ekki
innan marka er fínvigtuninni hafnað og
nýr skammtur veginn. Þessi aðferð er nú
í einkaleyfisferli.
Pönnuflutningur og frystar
Eftir vigtun er sjálfvirkur flutningur á bökk-
um að frystum. Skaginn hefur þróað
plastbakka sem henta vel í flestar gerðir
frysta. Ál og stálpönnur ganga þó jafn vel
í kerfinu. Frystiaðferðir eru margvíslegar
og hefur Skaginn hannað innmötun og
frátöku í sjálfvirka plötufrysta, hefð-
bundna plötufrysta og blástursfrysta.
Sveigjanleiki í lausnum er aðalsmerki fyr-
irtækisins þar sem lausnin er sniðin að
þörfum viðskiptavinarins. Staðlaðar ein-
ingar eru þó innan þessara sérlausna.
Má nefna að Skaginn hefur smíðað
pönnuvagn á braut sem tengdur er sjálf-
virkri úrsláttarvél. Þessi vagn er nú í þrem
skipum frá Samherja og getur tengst
flestum hefðbundnum frystum. Hannað
hefur verið brettakerfi fyrir blástursfrysta
sem byggir á sama grundvelli og hausa-
þurrkunarkerfi Skagans og svo mætti
lengi telja.
Skaginn hefur tengt búnaðinn við mis-
munandi gerðir frysta bæði á landi og
sjó. Hefðbundnir plötufrystar eru um
borð í skipum Samherja, sjálfvirkir plötu-
frystar voru um borð í Guðrúnu Gísla-
dóttur og eru hjá Ísfélagi Vestmannaeyja,
blástursfrystar eru hjá Vågan Pelagisk í
Noregi sem er verið að framleiða kerfi fyr-
ir og svo má lengi telja. Grundvallarsjón-
armið í hönnun allra kerfanna er að lág-
marka pökkunarkostnað og hámarka
nýtingu frystitækjanna.
Brettastöflun
Frá frystunum eru pönnurnar fluttar í
sjálfvirkan úrslátt. Pönnurnar eru fluttar í
þvott og skilað aftur til vigtarkerfisins, en
blokkirnar fara í stöflun. Framan við
brettastöflunarkerfið eru pökkunarvélar
sem vefja ódýrum pappaumbúðum utan
um blokkina ef þeirra er þörf. Einnig er
unnt að setja blokkina í hefðbundnar
pappaumbúðir. Meira og meira fer þó
beint á bretti í plastpokum.
Í brettastöflunarkerfinu er blokkinni
raðað á bretti. Sjálfvirkur flutningur er á
tómum brettum að kerfinu og fullum
brettum frá því. Fullu brettin fara síðan í
vafningsvél þar sem plasti er vafið utan
um brettin og þau síðan flutt í frysti-
geymslu. Slík kerfi eru bæði í landi og um
borð í skipum þar sem gengið er frá
brettum á vinnsludekkinu og brettin flutt
tilbúin niður í frystilestina í lyftu.
Aðrar vörur Skagans
Skaginn státar af því að hafa fjölbreytta
vörulínu. Auk framangreindra uppsjávar-
kerfa framleiðir fyrirtækið krapakerfi,
þvottakerfi, karahvolfara, karaflutnings-
kerfi, snyrtilínur, lausfrysta og fleira. Á
sjávarútvegssýningunni í Kópavogi kynnir
fyrirtækið nýja viðbót við þvottakerfi
Skagans, svonefndan þvottaþræl sem er
sjálfvirkur þvottur á hreyfanlegum hlutum.
Stærsta nýjungin á sýningunni er þó ný
tækni í vinnslu á hvítfisk sem eykur verð-
mæti sjávarafla í landvinnslu umtalsvert.
Um er að ræða tækni sem tengd er laus-
frysti Skagans. Þessi aðferð er nú í
einkaleyfisferli.